Morgunblaðið - 20.07.2017, Side 34
34 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 20. JÚLÍ 2017
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Steinullarverksmiðjan varð pólitískt
bitbein þegar hún var reist með þátt-
töku ríkisins fyrir rúmum þremur
áratugum. Tekist var á um hvort
verksmiðjan ætti að vera í Þorláks-
höfn eða á Sauðárkróki og ekki var
spáð vel fyrir henni þegar ákveðið
var að reisa hana fyrir norðan.
Margir voru ósáttir við niðurstöðuna
og vakti það athygli þegar Sverrir
Hermannsson iðnaðarráðherra not-
aði tækifærið þegar hann flutti ræðu
við opnun verksmiðjunnar til að
bjóða öll hlutabréf ríkisins til sölu.
Steinull hf. sem áður hét Steinull-
arverksmiðjan hefur gengið í gegn-
um súrt og sætt á þessum tíma. Rík-
ið átti 40% í upphafi á móti
heimamönnum og fleiri aðilum. Ein-
ar segir að þegar framleiðsla hófst á
árinu 1985 hafi fyrirtækið ekki verið
fullfjármagnað. Finnska fyrirtækið
Paroc sem alla tíð hefur verið í sam-
starfi við verksmiðjuna um tækni- og
sölumál kom inn með nýtt hlutafé og
eignaðist 28% hlut.
Byggingavörusalar komu inn
Verksmiðjan stóð undir öllum fjár-
magnskostnaði og í kjölfar þess að
síðasta stofnlánið var greitt upp, rétt
fyrir aldamót, var félagið einkavætt.
Ríkið og Sauðárkróksbær seldu sína
hluti og Paroc minnkaði við sig.
Kaupfélag Skagfirðinga bætti við sig
og Byko og Húsasmiðjan, aðaldreif-
ingaraðilar afurða verksmiðjunnar,
eignuðust tæplega fjórðungs hlut
hvort fyrirtæki og starfsmenn eign-
uðust 15%. Ríkið fékk stofnframlag
sitt til baka með ávöxtun og enginn
tapaði á því að leggja fé í fyrirtækið.
Eignarhlutir Byko og Húsasmiðj-
unnar varð tilefni til rannsóknar
samkeppnisyfirvalda sem settu skil-
yrði fyrir kaupunum, meðal annars
um að allir ættu jafnan aðgang að
sölu á afurðunum. „Það er ekki
ákjósanlegasta staðan að aðal-
viðskiptavinirnir skuli eiga fyr-
irtækið en við verðum að vinna út frá
henni og reynum að fylgja reglum
samkeppnisyfirvalda til hins ýtr-
asta,“ segir Einar.
KS keypti hlut starfsmanna og Pa-
roc í byrjun síðasta árs og á helming
hlutafjár á móti fjórðungs hlut Byko
og Húsasmiðjunnar.
Reksturinn hefur gengið vel á
undanförnum árum. Fyrirtækið var
lengi með um 90% hlutdeild á ís-
lenska markaðinum fyrir óbrenn-
anlega einangrun. Einar bendir þó á
að innflutningur hafi aukist á allra
síðustu árum, einkum við stór-
framkvæmdir. Erlend risafyrirtæki
á þessu sviði geti undirboðið í slíkum
verkum án þess að það hafi áhrif á
þeirra eigin markaði. Steinull geti
ekki svarað slíkum boðum vegna
þess að fyrirtækið er bundið skil-
yrðum sem fyrirtækið hefur und-
irgengist sem markaðsráðandi fyr-
irtæki.
Um þriðjungur fluttur út
Í þenslunni fyrir bankahrun jókst
framleiðsla og sala á innanlands-
markaði ævintýralega. Salan fór yfir
9 þúsund tonn á árinu 2007 en féll
niður í rúmlega 2 þúsund tonn á
árinu 2010. Síðan hefur verið jöfn og
stöðug aukning. Á síðasta ári var sal-
an innanlands um 5 þúsund tonn sem
er svipað og á árunum 2001 og 2002.
Salan það sem af er þessu ári bendir
til verulegrar aukningar í ár. Ónýtt
afkastageta er notuð til að framleiða
vörur til útflutnings og þá leiðina
hefur þriðjungur framleiðslunnar
oftast farið.
„Við vorum brenndir af um-
ræðunni á upphafsárunum þar sem
fyrirtækið var talið vonlaust og þess
vegna lögðum við áherslu á að greiða
niður lán og minnka skuldir. Þegar
hrunið varð vorum við nánast skuld-
laust fyrirtæki. Það sem skipti þó
meira máli var að vegna lækkunar á
gengi krónunnar tvöfaldaðist verð-
mæti útflutningsins. Það borgaði sig
því að halda dauðahaldi í útflutning-
inn, þrátt fyrir að eftirspurn á innan-
landsmarkaði hefði á árinu 2007 ver-
ið orðin það mikil að við þurftum í
raun ekki á útflutningi að halda það
ár,“ segir Einar.
Heildartekjur Steinullar hafa flest
árin verið rúmar 700 milljónir. Tekj-
urnar nærri tvöfölduðust árið 2007
og eru nú orðnar svipaðar að krónu-
tölu. Einar tekur þó fram að þetta
séu ekki jafn verðmætar krónur og
voru fyrir tíu árum. Hagnaður hefur
verið á fyrirtækinu öll árin, meira
segja í hruninu, þótt hann hafi
minnkað verulega á því ári.
Mikilvægur vinnustaður
Um 40 starfsmenn eru hjá Steinull
hf. sem er mikilvægur vinnuveitandi
í Skagafirði. Fyrirtækinu hefur hald-
ist vel á starfsmönnum. Í þenslunni
fyrir hrun var aukið við þegar fjölgað
var vöktum og verksmiðjan snerist
allan sólarhringinn. En eftir hrun,
þegar viðskiptin drógust saman,
þurfti að fækka vöktum og segja upp
fólki. Á árinu 2015 var vöktum aftur
fjölgað og er steinullarverksmiðjan
nú rekin á þrískiptum vöktum allan
sólarhringinn frá sunnudegi til föstu-
dags og laugardagarnir notaðir til
viðhalds.
Útflutningur kom
verksmiðjunni í
gegnum hrunið
Ekki var spáð vel fyrir steinullarverksmiðjunni þegar
hún hóf starfsemi fyrir 32 árum Allir fengu sitt til baka
Morgunblaðið/Helgi Bjarnason
Gæðaeftirlit Eiríkur Jónsson vigtar og skoðar einangrunarplötur til að
tryggja að viðskiptavinurinn fái það sem hann greiðir fyrir.
Skagafjörður Steinullarverksmiðjan
stendur við sjóinn, nyrst á Sauðárkróki.
HAGI ehf Stórhöfða 37 • 110 Reykjavík • S. 414-3700 • hagi@hagi.is • Hagi ehf HILTI
Hágæða
vinnuföt
í miklu úrvali
Sérmerkjum fyrir fyrirtæki
Verkfæri og festingar
Mikið úrval af öryggisvörum
Nú fástSnickers vinnuföt í