Morgunblaðið - 20.07.2017, Side 36

Morgunblaðið - 20.07.2017, Side 36
36 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 20. JÚLÍ 2017 SVIÐSLJÓS Guðmundur Magnússon gudmundur@mbl.is „Fréttaljósmyndun sem starfs- grein þróaðist með tilkomu dag- blaða, prenttækni og myndavéla. Fréttaljósmyndun á Íslandi á sér rúmlega 100 ára sögu. Myndir í dagblöðum fyrstu hálfa tuttugustu öldina voru teknar af ljósmynda- áhugamönnum og svo síðar af blaðamönnum. Ljósmyndanotkun jókst með ári hverju eftir því sem tæknin varð betri og samgöngur urðu greiðari. Starf frétta- ljósmyndarans varð til í lok árs 1940 og þróaðist svo fram til árs- ins 1965 þegar ljósmyndarar urðu fullgildir meðlimir Blaðamanna- félags Íslands. Réttindi frétta- ljósmyndara urðu þá jöfn við blaðamenn og 1978 voru Samtök fréttaljósmyndara stofnuð en það er uppistaða þeirra samtaka sem eru starfrækt í dag.“ Fyrsta blaðaljósmyndin 1890 Þetta má lesa í nýrri háskóla- ritgerð Þorvaldar Arnar Krist- mundssonar um sögu og stöðu blaðaljósmyndara á Íslandi. Fram kemur að ljósmynd birtist í fyrsta sinn í dagblaði í hollenska blaðinu Amsterdamsche Courant, Nieuws- en Adverentieblad 24. febrúar árið 1890. Hér á landi var prenttæknin lengi vel langt á eftir öðrum þjóð- um. Það var ekki fyrr en árið 1855 að fyrsta myndin var prentuð í ís- lensku blaði. Var það teikning af fiski sem þótti vera einkennilegur í lögun og útliti og birtist hún í Norðra 16. apríl 1855. Enn var þá töluvert í land á Ís- landi að ljósmynd birtist á síðum fréttablaðs, en fyrsta andlitsmynd af manni birtist í blaðinu Skuld 19. ágúst árið 1880. Var myndin af Jóni Sigurðssyni forseta. Ritstjóri blaðsins var Jón Ólafsson og birti hann fjölda andlits- og frétta- mynda í blaðinu þar til það lagði upp laupana 1883. Myndir í íslenskum dagblöðum héldu áfram að birtast með prent- tækni þar sem útbúnar voru sér- stakar tré- eða dúkristur og var töluvert í að myndir eftir íslenska fréttaljósmyndara sæjust á prenti. Flest dagblöð hér á landi eftir 1885 höfðu tileinkað sér mynd- skreytingar og sum blöð fóru að gefa sig út fyrir að vera sérstök myndablöð. Fyrsta frétta- ljósmyndin sem sýnir raunveruleg- an fréttaatburð birtist í Ísafold 17. febrúar 1906. Um var að ræða dúkristu eftir ljósmynd frá ávarpi Friðriks VIII Danakonungs í Amalíuborg. Það var svo árið 1910, segir í ritgerð Þorvaldar, að íslensk ljós- mynd birtist í fyrsta skipti í dag- blaði, en það var mynd af Ástu Árnadóttur málara sem nýverið hafði lokið meistaraprófi í mál- araiðn. Þess er ekki getið hver tók ljósmyndina. Þegar Íslendingar fengu loks tækni til prent- myndagerðar á árunum 1919 til 1920 varð íslensk dagblaðaútgáfa jöfn þeirri tækni sem notuð var í erlendum prentsmiðjum. Hinn eig- inlegi íslenski fréttaljósmyndari var ekki til á þessum tíma og þurftu blöðin oftast að kaupa þjón- ustu atvinnuljósmyndara sem sér- hæfðu sig í mannamyndum, lands- lagi og póstkortum. Þó fór að bera á því að nöfn ís- lenskra ljósmyndara birtust við myndir í blöðum og tímaritum. Magnúsi Gíslasyni ljósmyndara er t.d. eignuð mynd af íbúðarhúsi sóknarprestsins í Grímsey og birt- ist hún í Óðni 1. ágúst 1911. Þann 3. maí, árið 1924, er mynd í Morg- unblaðinu eignuð Magnúsi Ólafs- syni úr kröfugöngu verkalýðs- félaganna 1. maí það ár. Á þessum árum voru myndavélar að verða smærri og hentugri í meðförum en áður, og voru að verða vinsæll gripur á meðal blaðamanna og al- mennings. Blaðamenn fóru að taka myndir í ríkara mæli í sínu starfi og ljósmyndin varð æ vinsælli. Frægasta fréttamyndin Ein frægasta fréttamynd 20. aldar á Íslandi, segir Þorvaldur, var tekin af Finnboga Rúti Valdi- marssyni, ritstjóra Alþýðublaðs- ins, og sýnir hún sjórekin lík skip- verja franska rannsóknarskipsins Pourquoi Pas, sem fórst út af Mýrum 16. september 1936. Þessi mynd er að mati Þorvaldar upp- hafið að hinni eiginlegu frétta- ljósmyndaöld sem hófst skömmu síðar, þegar blöðin hófu að ráða til sín ljósmyndara í fullt starf. Ólafur K. Magnússon var fyrsti fastráðni fréttaljósmyndarinn. Hann hóf störf á Morgunblaðinu árið 1947 og vann á blaðinu í nær hálfa öld. Á þessum tíma var ekki litið á ljósmyndara sem jafningja blaðamanna og var því aðild Ólafs að Blaðamannafélaginu hafnað. Þegar Blaðamannafélagið end- urskoðaði afstöðu sína síðar og bauð Ólafi þátttöku, hafnaði hann því þar sem honum var misboðið þegar honum var upphaflega synj- að um inntöku. Ólafur K. gekk því aldrei í Blaðamannafélagið í þau tæplega 50 ár sem hann starfaði við blaðaljósmyndun. Árið 1957, eða tíu árum eftir ráðningu Ólafs, hófu önnur blöð að fastráða ljósmyndara og á skömm- um tíma voru stærstu dagblöðin og tímaritin komin með sína eigin fréttaljósmyndara, enda blaða- myndir orðnar ómissandi hluti frétta og frásagna. Ljósmyndarar í stóru hlutverki  Ljósmyndarar áttu í byrjun erfitt uppdráttar innan Blaðamannafélagsins  Eru nú viðurkenndir sem blaðamenn  Skrásetja fréttaviðburði á sinn hátt  Íslensk fréttaljósmynd birtist fyrst 1910 Morgunblaðið/Ásdís Að störfum Fréttaljósmyndararnir Kristinn Ingvarsson og Þorvaldur Örn Kristmundsson munda vélar sínar við mótmæli á Austurvelli fyrir nokkrum ár- um. Þeir hafa báðir starfað á Morgunblaðinu. Fréttamyndir eru mikilvægur þáttur í skráningu sögulegra viðburða. Morgunblaðið/RAX Björgunarmenn Ein af þekktari fréttaljósmyndum seinni ára er sú sem Ragnar Axelsson tók fyrir Morgunblaðið eftir snjóflóðið á Flateyri 1995. Þorvaldur Örn Kristmunds- son þekkir vel til frétta- ljósmyndunar, enda vann hann við hana í rúma tvo áratugi, frá 1991 til 2012, aðallega hjá Morgunblaðinu og DV. Hann sat lengi í stjórn og samninganefnd Blaðamannafélags Íslands og var formaður Blaðaljósmynd- arafélags Íslands í 12 ár. Í dag er hann forstöðumaður við- skiptavers hjá Inkasso og stundar nám í fjölmiðlafræði við Háskólann á Akureyri. Þorvald- ur hefur ekki lagt vélina á hill- una og er enn virkur ljósmynd- ari þótt afraksturinn sé nú frekar á sýningum en í blöðum, bæði hér heima og utanlands. LANGUR FERILL Þorvaldur Örn Kristmundsson Þekkir vel til í greininni Guðrún Antonsdóttir lögg. fasteignasali Vantar allar stærðir og gerðir fasteigna á sölu. Mjög mikil eftirspurn og lítið framboð. Núna er tækifærið ef þú vilt selja. Hringdu núna í 697 3629 og fáðu aðstoð við að selja þína eign, hratt og vel. Ertu í söluhugleiðingum? Lágmúli 5, 108 Reykjavík | Sími 571 5800 | gudrun@garun.is | garun.is

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.