Morgunblaðið - 20.07.2017, Blaðsíða 38

Morgunblaðið - 20.07.2017, Blaðsíða 38
BAKSVIÐ Sunna Ósk Logadóttir sunna@mbl.is Líkt og margir aðrir íbúar Norður-Írlands finnst Jake mikil einföldun og hreinlega rangt að tala um að Vandræðin svokölluðu (The Troubles), sem stóðu í þrjátíu ár og kostuðu á fjórða þúsund manns lífið, hafi verið milli mót- mælenda og kaþólikka. „Við trúum öll á sama guð, þetta snerist um pólitík en aldrei um trúarbrögð,“ segir hann. Átökin voru milli þeirra sem vildu að Norður-Írland tilheyrði áfram Stóra-Bretlandi og þeirra sem vildu sameinað Írland. Kaþólikkar voru flestir þjóð- ernissinnar en mótmælendur drottningar- hollir, þ.e. sambandssinnar. Sögulegar ástæð- ur voru svo fyrir því að þessir hópar bjuggu oft á tíðum hvor í sínum borgarhlutanum. Sú skipting jókst enn frekar á ófriðartímanum. Því má svo ekki gleyma að átökin voru einnig á milli hópa innan hverfanna. Ekkert var annað- hvort svart eða hvítt í þessum efnum frekar en í öðrum styrjöldum nútímans. Reiðin kraumaði Þegar Jake fæddist árið 1968 voru Vand- ræðin að hefjast. Á svæðum sem voru á mörk- um hverfa andstæðra fylkinga brutust ítrekað út átök og augljóst var að reiði kraumaði undir niðri. Rætur ólgunnar lágu m.a. í því að sam- bandssinnar höfðu áratugum saman haft meirihluta í norðurírska þinginu og töglin og hagldirnar í allri stjórnun landsins. Þeir gerðu tilraunir til að leysa pólitískar illdeilur og stinga á samfélagsmeinum, s.s. mismunum gegn kaþólikkum sem var útbreitt vandamál, en fóru sér of hægt að mati þjóðernissinna og of hratt að mati sambandssinna. Mismununin var að hluta til stjórnarskrárbundin. Kosn- ingaréttur var á þessum árum bundinn við stöðu og eignir fólks. Þá var kjördæmaskipan kaþólikkum í óhag og það reyndist þeim erfitt og jafnvel ómögulegt að fá stöður hjá hinu opinbera. Á sjöunda áratugnum spruttu víða um heim upp hreyfingar sem kröfðust bættra mannrétt- inda. Boðskapur þeirra fór ekki framhjá kaþ- ólikkum á Norður-Írlandi, sem þráðu jafnrétti. Svo fljótt kviknaði ófriðarbálið árið 1969 að breski herinn var nokkrum mánuðum síðar kvaddur á vettvang til að stilla til friðar. En allt kom fyrir ekki. Ólgan magnaðist og árið 1972 var norðurírska þingið leyst upp og Bret- ar tóku stjórn landsins að fullu í sínar hendur. Köstuðu steinum yfir múrinn Jake ólst upp í hverfi þar sem flestir íbúanna voru mótmælendur. Hann rámar í nokkuð frið- sæla tíma, þar sem hann átti vini handan múrs- ins, en svo kom að því að reiðin smitaði út frá sér og smaug inn í alla þætti samfélagsins. Þar með talin samskipti barnanna. „Ég hélt um tíma að allir væru vondir hinum megin,“ rifjar hann upp. „Ég lék mér í sótsvörtum flökum bíla sem sprengdir höfðu verið í loft upp. Við köstuðum steinum yfir múrinn. Ég sá vini mína setta í fangelsi og ég fylgdi sumum þeirra til grafar.“ Börnin fengu ólíkt uppeldi eftir því í hvaða hverfi þau ólust upp. Í skólum kaþólikka var áhersla lögð á írska menningu. Í skólum mót- mælenda var börnunum innrætt bresk menn- ing. Allt jók þetta á óeiningu í landinu. Jake segist hafa verið heppinn. Hann hafi tekið þá ákvörðun að ganga ekki til liðs við hópana sem stjórnuðu öllu og voru virkir þátt- takendur í átökunum. „Það var eiginlega ætl- ast til þess, að beggja vegna múrsins myndi ungt fólk taka þátt í þessu.“ Hann ólst upp við óöldina en varð síðar vitni að því er friðurinn færðist yfir. Fyrir það er hann þakklátur. Við og þeir Billy er á sjötugsaldri. Hann man sann- arlega tímana tvenna í Belfast. Er hann var að alast upp voru mörg hverfi borgarinnar blönd- uð, þar bjuggu bæði mótmælendur og kaþ- ólikkar þótt oft gengju börnin í sinn skólann hvor. Áður en Vandræðin hófust var því ákveð- inn aðskilnaður þegar til staðar og hafði svo Múrar enn á vígvelli Vandræðanna Múrinn sem aðskilur hverfi kaþólikka og mótmælenda í norðurírsku borginni Belfast var reistur við lok 7. áratugar síðustu aldar og átti að standa í sex mánuði. Hann stendur enn, tæpum fjörutíu árum síðar. „Ég vona að ég lifi nógu lengi til að sjá hann fara,“ segir Jake sem fæddist árið áður en bygging múrsins hófst. Hann rennir augunum upp eft- ir margra metra háum steinveggnum og á gaddavírinn sem komið hefur verið fyrir ofan á honum. „Það er sagt að þetta sé til að vernda íbúana. En múrar byggja ekki brýr milli fólks,“ segir hann ábúðarfullur. „Svo mikið er víst.“ Vandræðin (The Troubles) » Átökin á Norður-Írlandi á síðari hluta tuttugustu aldar eru kölluð Vandræðin (The Troubles). Meira en 3.600 manns létust og þúsundir særðust. » Sárin eru ekki síst á sálinni og margir eru enn að fást við tilfinningaleg áföll sem þeir urðu fyrir. » Í þrjá áratugi var ofbeldið á götum Norður-Írlands nær daglegt brauð. » Átökin smituðu að ákveðnu leyti út frá sér til annarra landa, aðallega Bret- lands og Írlands. » Nokkrar tilraunir voru gerðar til að koma á friði en slíkt náðist þó ekki fyrr en árið 1998. Hluti af samkomulaginu var að koma á heimastjórn á Norður- Írlandi á ný. Samkomulagið er sagt hafa bundið enda á Vandræðin. » 34 kílómetrar af múrum aðskilja enn hverfi í borgum og bæjum í landinu. Stefnt er að því að fjarlægja þá alla fyrir árið 2023. Morgunblaðið/Sunna Falls Road Við götuna Falls Road í vesturhluta Belfast voru Vandræðin sérstaklega skæð. Þar voru sett upp hlið til að girða af hverfið. Hliðin standa enn og er enn lokað og læst á nóttinni. 38 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 20. JÚLÍ 2017 Friður í Belfast í 18 ár
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.