Morgunblaðið - 20.07.2017, Síða 40
40 FRÉTTIRErlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 20. JÚLÍ 2017
FRÉTTASKÝRING
Jón Birgir Eiríksson
jbe@mbl.is
Óumdeild er sú breyting er orðið hef-
ur með tilkomu netsins og annarra
tækninýjunga á 21. öld. Netið hefur
breytt landslagi fjölmiðla, viðskipta,
daglegs lífs fólks og þannig mætti
áfram telja.
Árum saman hafa menn haft
áhuga á vélmennum, gervigreind og
sjálfvirkni, jafnvel óttablandinn
áhuga. Þannig hræðast sumir það að
vélmenni geti orðið svo greind að þau
muni geta tekið öll völd úr höndum
mannskepnunnar. Ekkert skal full-
yrt um slíkar hugmyndir hér, en ljóst
þykir að vélmenni og tölvur munu í
náinni framtíð sinna miklum fjölda
þeirra starfa sem manneskjur sinna
nú, með hjálp gervigreindar. Sér-
fræðingar keppast nú við að spá fyrir
um hvaða störf það verði sem muni
þurrkast út.
Ólík iðnbyltingunni
Ein af niðurstöðum nýlegrar rann-
sóknar ráðgjafarfyrirtækisins
McKinsey & Company, var að 30%
einstakra verkefna í 60% starfs-
greina yrðu framkvæmd af tölvum,
fyrr eða síðar. Andy Haldane, yf-
irhagfræðingur breska seðlabankans
hefur sagt að 80 milljónir starfa í
Bandaríkjunum og 15 milljónir starfa
í Bretlandi verði unnin af vélmenn-
um.
Einna áhugaverðast við vélmenna-
væðinguna er að hún er talin óskyld
iðnbyltingu 18. og 19. aldar að því
leyti að sú fyrrnefnda geri ekki nokk-
urn greinarmun á störfum líkt og hin
síðarnefnda, en þá voru störf verka-
fólks „í meiri hættu“ en störf ann-
arra. Þannig munu vélmenni t.d. geta
sinnt ýmsum störfum og verkefnum
sem unnin eru á skrifstofum, en ekki
aðeins „á gólfinu“.
Endurteknar athafnir
og fyrirsjáanleg verkefni
Í rannsókn sem unnin var við Ox-
ford-háskóla í Bretlandi árið 2013,
voru 702 störf athuguð með tilliti til
möguleika á sjálfvirkni og þróunar
gervigreindar og vélmenna. Margoft
hefur verið vitnað til þessarar rann-
sóknar síðan.
Í niðurstöðum fræðimannanna
kom fram að sum störf eru mun lík-
legri en önnur til að verða unnin af
vélmennum innan tíðar. Nánar til-
tekið eru það einna helst störf sem
fela í sér endurteknar athafnir og
viðfangsefnin eru fyrirsjáanleg.
Efst á blaði er starf símasölu-
manna, en 99% líkur eru á að tölvur
muni sinna slíkri sölumennsku í
framtíðinni. Næst í röðinni eru
starfsmenn banka sem sinna lána-
viðskiptum með 98% líkur og gjald-
kerar með 97% líkur.
94% líkur eru á því að störf fulltrúa
á lögmannsstofum og aðstoðarmanna
lögmanna verði sjálfvirknivædd og
89% líkur á að starf leigubílstjórans
verði þannig leyst af hendi. 81% líkur
eru svo á því að starf skyndibita-
kokka verði sjálfvirknivætt.
Hvaða störf eru
í minnstri hættu?
Samkvæmt rannsókn Oxford-
háskóla eru þau störf minnst við-
kvæm fyrir tækniframförunum sem
fela í sér umönnun og mannleg sam-
skipti. Einnig eru „örugg“ störf sem
fela í sér sköpun, þ.e. störf lista-
manna, vísindamanna og frumkvöðla.
Starfsmenn trúfélaga, prestar
t.a.m., eru neðstir á blaði, en 0,81%
líkur eru á því að störfum þeirra
verði sinnt með sjálfvirkum hætti.
Næst koma læknar og skurðlæknar
með 0,42% líkur og þar á eftir nær-
ingarfræðingar með 0,42% líkur.
0,39% líkur eru á því að starf iðju-
þjálfa verði leyst af hendi af vél-
mennum og 0,3% líkur á að störf
starfsmanna í félagsþjónustu sem
vinna með sálræna kvilla og fíkni-
sjúkdóma.
Er kannski ekkert að óttast?
Að margra mati eru kenningar og
fregnir af útrýmingarhættu tiltek-
inna starfsgreina stórlega ofmetnar
og halda hinir sömu því margir fram
að tæknin hafi búið til fleiri störf en
hún hafi útrýmt.
Að því er fram kemur í nýlegri
grein Quartz er aðeins eitt starf í
Bandaríkjunum sem hefur fallið í
hendur vélmenna frá árinu 1950, en
það er starf lyftuvarðarins. Nú má
komast milli hæða í húsum með því
einu að velja hæð á takkaborði, líkt
og kunnugt er.
Af 250 starfsgreinum sem skráðar
voru í Bandaríkjunum árið 1950 eru
232 enn til. 32 þeirra hurfu vegna
þess að ekki var eftirspurn eftir þeim
lengur og fimm starfsgreinar dóu út
af öðrum ástæðum.
Enginn veit fyrir víst hver þróun
starfsgreina verður með tilliti til vél-
mennavæðingar og gervigreindar, en
það er þó víst að þróunin er gífurlega
hröð og breytingar handan við
hornið.
Hvaða verkum sinna vélmennin?
Fræðimenn meta líkur á að störf verði vélvædd Ólíklegt að umönnunarstörf verði sjálfvirk Störf
sem fela í sér endurtekningu í hættu Vélmenni hafa tekið yfir eina starfsgrein í Bandaríkjunum
Ljósmynd/AFP
Vélþjónn Á veitingastað í borginni Multan í Pakistan þjóna nú til borðs vélmenni með hjálp gervigreindar og tölva.
Pierre de Villiers, yfirmaður franska
hersins, sagði af sér í gær vegna
sparnaðaráforma Emmanuels Mac-
ron Frakklandsforseta. Stutt er síð-
an de Villiers deildi opinberlega á
forsetann vegna áforma hans um að
minnka útgjöld ríksins til varnar-
mála.
Í yfirlýsingu frá de Villiers segir
að hann hafi átt einskis annars úr-
kosti en að segja af sér. Hann hafi
reynt að gera franska hernum kleift
að tryggja varnir landsins, þrátt fyr-
ir að það verði stöðugt erfiðara
vegna þeirra sparnaðarkrafna sem
gerðar séu. „Við núverandi aðstæður
tel ég mig ekki geta tryggt þann öfl-
uga herafla sem ég tel nauðsynlegan
til að halda uppi vörnum fyrir Frakk-
land og Frakka núna og í framtíðinni
og viðhalda um leið varnarstefnu
landsins,“ sagði de Villiers. Hann
kvaðst því hafa afhent Macron af-
sagnarbréf og forsetinn hefði sam-
þykkt að leysa hann frá störfum.
De Villiers hafði verið yfirmaður
hersins í þrjú ár og notið mikilla vin-
sælda meðal franskra hermanna, að
sögn fréttaveitunnar AFP.
Macron hafði sagt að ef ágreining-
ur kæmi upp milli forsetans og yfir-
manns hersins væri það sá síðar-
nefndi sem þyrfti að breyta afstöðu
sinni. Stjórnarandstæðingar sökuðu
Macron um að hafa auðmýkt de Vill-
iers en forsetinn sagði í ræðu á
þinginu að sem hershöfðingi gæti
hann ekki lagst gegn stefnu forset-
ans.
Macron hyggst minnka útgjöld
ríkisins, meðal annars til varnar-
mála, um 4,5 milljarða evra til að
minnka fjárlagahalla.
Sagði af sér vegna
deilu við Macron
Yfirmaður franska hersins fór frá
vegna deilu um sparnaðaráform
AFP
Fer frá De Villiers kveðst ekki hafa
átt annars úrkosti en að segja af sér.
Bandaríski bifreiðaframleiðandinn Tesla er leiðandi í raf-
bílaframleiðslu í heiminum. Árið 2014 kynnti fyrirtækið
fyrst sjálfstýringu í bifreiðum sínum og uppfærða útgáfu
árið 2016. Enn hefur Tesla aðeins náð stigi tvö af fimm
skilgreindum stigum sjálfstýringar, en í því felst m.a. að
enn er þörf á því að manneskja geti gripið í taumana ef
eitthvað kemur upp á. Nokkrir framleiðendur hyggjast
kynna bifreiðar sem standast stig þrjú innan fimm ára,
en bifreiðar á stigi þrjú munu í auknum mæli geta tekið
sjálfstæðar ákvarðanir.
Ásamt öðrum fyrirtækjum er Tesla ekki aðeins á góðri leið með að „út-
rýma“ störfum atvinnubílstjóra, heldur má einnig nefna að fyrirtækið hefur
vakið athygli fyrir að í verksmiðju þess eru 200 vélmenni, þ. á m. tíu
stærstu vélmenni í heimi. Þar starfa aðeins um sex þúsund starfsmenn.
Aðeins 6.000 starfsmenn
TESLA ER HÁTÆKNIFYRIRTÆKI, LEIÐANDI Á HEIMSVÍSU
Tesla er leiðandi.
Opið 09-23 | Laugavegi 12 | 101 Rvk | Sími 551 5979 | lebistro.is
Gypsy Jazz
Með Gunnari H
ilmarsyni og ge
stum
Alla föstudaga
og laugardaga
kl: 22:00
HAPPY
HOUR
eftir kl
. 22:00
Django Nights