Morgunblaðið - 20.07.2017, Síða 49

Morgunblaðið - 20.07.2017, Síða 49
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 20. JÚLÍ 2017 Ljósmynd/Gauti Jóhannesson Helgi Bjarnason helgi@mbl.is „Áhugi á fiskeldi er að aukast, það vantar báta sem eru fljótari í för- um en tvíbytnurnar,“ segir Vil- hjálmur B. Benediktsson, fram- kvæmdastjóri Pípulagningarþjónustu Vilhjálms og Axels og Bátasmiðjunnar Ránar á Djúpavogi. Bátasmiðjan er að þróa harðbotna hraðbáta af mis- munandi stærðum sem sérstaklega eru hugsaðir fyrir fiskeldið. Þrír bátar hafa verið afhentir og sá fjórði og stærsti, rúmlega níu metra bátur, er langt kominn. Vilhálmur hefur unnið að því að sjóða saman sjókvíar í fimmtán ár. Það hófst með því að stór framleið- andi, Aqualine í Þrándheimi, fól fyrirtækinu að setja saman eld- iskvíar í Noregi á árinu 2002. Síðan hefur fyrirtækið verið með mikil verkefni fyrir Aqualine, mest í Noregi en einnig víðar um Evrópu og allt suður til Tasmaníu í Eyja- álfu. Einstaka verkefni hafa verið við sjókvíar hér á landi, þegar sjók- víafyrirtæki hafa keypt búnað frá þessu fyrirtæki. Fram undan eru verkefni í Ástralíu og víðar. Vilhjálmur er með sjö menn fast í sjókvíasamsetningum, við bætast afleysingamenn og skrifstofumaður hér heima. Þeir byrja í janúar og vinna fram á haust. Ekkert lát á uppbyggingu „Mikil uppbygging er í eldi í Noregi, það virðist ekkert lát vera á því. Mest eru þetta nýjar stöðvar en einnig endurnýjun á eldri. Sjókvíarnar verða sífellt stærri og öflugri,“ segir Vilhjálmur. Talsverð umræða hefur verið um hættuna á því að lax sleppi úr kví- um, í tengslum við uppbyggingu sjókvíaeldis hér á landi. Vilhjálmur bendir á að hringirnir séu mjög öfl- ugir. Nótin sem haldi fiskinum inn- an kvíanna sé veiki hlekkurinn en alltaf sé verið að bæta þann búnað einnig. „Ég hef hitt marga fiskeld- ismenn en veit ekki um neinn sem ekki leggur áherslu á að hafa hlut- ina í lagi,“ segir Vilhjálmur. Hann segir að fiskeldismenn í Noregi taki ábyrgð sína alvarlega. Enginn vilji missa fisk og komast um leið í brennidepil hjá náttúruvernd- arfólki. Vilhjálmur segir að mikil verk- efni skapist í byggðarlögum þar sem fiskeldi byggist upp. „Þetta er hátækniiðnaður með fjölda starfa,“ segir hann. Þróun báts er þolinmæðisverk Vilhjálmur hugsaði sér bátasmíð- ina sem íhlaupavinnu, þegar minna væri að gera við samsetningu eld- iskvía úti í Noregi. Notað er að hluta til sama efni og er í eld- ishringjunum. Hann segir að það kalli á mikla vinnu, þolinmæði og kostnað að þróa nýja gerð af báti. Smíðar báta fyrir fiskeldi  Fyrirtæki á Djúpavogi hefur unnið í 15 ár við að setja saman laxakvíar í Noregi og víða úti um heim  Verkefni framundan í Ástralíu  Dauði tíminn notaður til að þróa hraðbáta fyrir fiskeldismenn  Þrír bátar þegar afhentir Morgunblaðið/Helgi Bjarnason Stýrishúsið Vilhjálmur segir þróun báts þarfnast bæði vinnu og þolinmæði. Við bryggju Hraðbátarnir eru sérstaklega hugsaðir fyrir fiskeldið.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.