Morgunblaðið - 20.07.2017, Page 50
50
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 20. JÚLÍ 2017
Þorsteinn Friðrik Halldórsson
tfh@mbl.is
Svo gæti farið að á Íslandi rísi
fyrsta verksmiðja heims sem end-
urvinnur veiðarfæri til fulls. Bret-
inn Paul Rendle-Barnes skoðar
möguleikann á að reisa verksmiðj-
una hérlendis en hann segir Ís-
land ákjósanlegt land fyrir starf-
semi af þessum toga.
Rendle-Barnes hefur verið í
endurvinnslubransanum í 18 ár.
Hann byggði tvær verksmiðjur
sem hann síðar seldi og starfar í
dag sem þróunarstjóri hjá endur-
vinnsludeild fyrirtækisins Avanti
Environmental í Bretlandi. Nú er
stefnan sett á Ísland.
Nýti bara það verðmætasta
„Þetta yrði fyrsta verksmiðjan
sem endurvinnur veiðarfærin að
fullu. Sum fyrirtæki segjast end-
urvinna veiðarfærin en þau nýta
bara verðmætasta hlutann og
henda rest,“ segir hann í samtali
við Morgunblaðið.
Rendle-Barnes kom til Íslands
fyrir tveimur árum til þess að
kanna hversu fýsilegt væri að
koma upp starfseminni. Hér hitti
hann Sigurð Halldórsson, fram-
kvæmdastjóra Pure North Recycl-
ing, og leiddu þeir hesta sína sam-
an.
„Ég ræddi við Sigga um það
hvernig við gætum haldið virðinu
innan landsins, í svona efnahags-
legri hringrás. Ísland hefur grænt
orðspor en það eru tækifæri vegna
þess að það er enn verið að setja
mikið magn af plasti í landfyll-
ingar eða flytja það til annarra
landa.“
Mikill kostnaður í hreinsun
Í veiðarfærum eru þrjár gerðir
af plasti. Tvö er hægt að end-
urvinna með sérstökum búnaði en
þriðja efnið þarf að höndla með
efnablöndun. Hjá Avanti Environ-
mental hefur Rendle-Barnes ein-
blínt á efni sem eru erfið viðfangs
en það getur verið kostnaðarsamt
að endurvinna þau.
„Þetta eru efni sem þurfa með-
höndlun svo hægt sé að gæða þau
virði, gera neikvætt virði að já-
kvæðu. Ef þú hefur mengað efni
þarftu að hreinsa það og í mörg-
um löndum getur falist mikill
kostnaður í því, en jarðvarminn á
Íslandi býður upp á mörg tæki-
færi.“
Skotar skerast í leikinn
Tæknin sem notast verður við
var upphaflega hönnuð fyrir ann-
ars konar ferli og verður verk-
smiðjan því nýjung í þeim skiln-
ingi. Endanleg ákvörðun um
staðsetningu verður tekin í ár en
Ísland er ekki eina landið sem
kemur til greina. Að sögn Rendle-
Barnes hefur skoska heimastjórn-
in sýnt verkefninu mikinn áhuga.
„Skotar vilja endilega fá verk-
smiðjuna en ég held að það séu
meiri tækifæri á Íslandi vegna
jarðvarmans og tengslanna sem
ég hef myndað hérna.“
Allir séu með á vagninum
Stefnt er á að hefja samstarf við
útgerðirnar um veiðarfæri og eru
nú þegar hafnar viðræður þess
efnis. Það er til mikils að vinna en
Rendle-Barnes segir að fyrir
hvert tonn sem er framleitt af
endurunnum vörum sparist 1,7
tonn af olíu.
„„Build it and they will come,“
sagði Kevin Costner en það getur
verið dýrt spaug,“ segir hann.
„Þetta er stór fjárfesting og í slík-
um tilvikum viltu vera viss um að
allir séu með á vagninum.“
Vill ryðja brautina í endurvinnslu veiðarfæra
Verksmiðjan yrði sú fyrsta í heiminum sem endurvinnur veiðarfæri að fullu Jarðvarmi Íslands
sagður bjóða upp á mörg tækifæri Skoska heimastjórnin einnig sýnt verkefninu mikinn áhuga
Stefnt á samstarf við íslensku útgerðirnar og viðræður hafnar Þrjár gerðir af plasti í veiðarfærum
Morgunblaðið/Golli
Stórhuga Paul Rendle-Barnes segir að meiri tækifæri séu á Íslandi en í Skotlandi, til dæmis vegna jarðvarmans sem hér er að finna. Myndin sýnir frá starfsemi Pure North Recycling í Hveragerði.
Morgunblaðið/Golli
Þróunarstjóri Paul Rendle-Barnes.