Morgunblaðið - 20.07.2017, Side 52

Morgunblaðið - 20.07.2017, Side 52
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 20. JÚLÍ 2017 Skeifunni 8 | Kringlunni 4-12 | Glerártorgi, Akureyri | Sími 588 0640 | casa.is Hugmyndir í jólapakkann Cuero Mariposa Hönnuðir: Bonet, Kurchan & Ferrari Hannaður 1938 Íslensk gæra verð 209.000,- Leður verð 149.000,- Skoðaðu úrvalið á nýju heimasíðunni okkar casa.is Alexandra Sif Tryggvadóttir alexandrasif@mbl.is Árið 2007 byrjaði Bjarni að inn- rétta efri hæð verkstæðisins sem íbúð og flutti þar inn ári seinna en neðri hæðina notar faðir Bjarna enn sem verkstæði. „Ég sá alltaf fyrir mér að búa í svona hálfgerðu lofti eins og í New York eða San Francisco,“ sagði Bjarni en hann bjó í San Francisco í mörg ár þar sem hann kláraði meistaranám í myndlist. Loftíbúðir eru vinsælar í stór- borgum Bandaríkjanna og ein- kennast af opnum og björtum rýmum sem áður voru notuð fyrir einhverskonar iðnað. „Lofthæð íbúðarinnar er mjög há og ekkert nema flot á gólfunum en við vilj- um ekkert annað,“ segir Bjarni um íbúð þeirra hjóna. Bjarni segir íbúðina vera með „bóhemískt vintage lúkk“ en þeim hjónum finnst gaman að blanda saman fjölbreyttum hönn- unarstefnum. Bjarni smíðaði mat- arborðið og sófaborðið á heimilinu sjálfur en svo eru þau með stóla frá alls kyns hönnuðum eins og Chesterfield, Bauhaus og Le Corbusier. „Þetta er ekkert mjög fínt eða pússað,“ segir Bjarni þegar hann ber íbúð þeirra hjóna saman við týpískt íslenskt heimili. „Þetta er meira svona kaótískt, en samt al- Morgunblaðið/Hanna Innlit í loftíbúð í Kópavoginum Í sjarmerandi íbúð í Kópavoginum, sem áður var vélsmiðja, búa listamennirnir Bjarni Sigurbjörnsson og Ragnheiður Guð- mundsdóttir. Húsið byggði faðir Bjarna á árunum 1978 til 1983 og var það upphaflega hugsað sem verkstæðishúsnæði. Borðstofuborð Bjarni smíðaði borðið sem er fjögurra metra langt. Plexígler Listaverk Bjarna eru notuð til að skipta upp rýmum heimilisins.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.