Morgunblaðið - 20.07.2017, Page 60

Morgunblaðið - 20.07.2017, Page 60
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 20. JÚLÍ 2017 TIPPAÐU Á EM MEÐ K100 Tippaðu á leik dagsins á mbl.is og þú gætir unnið glæsilega vinninga! Áfram Ísland! Sigurður Þorri Gunnarsson siggi@mbl.is Á morgun, föstudag, kemur út lagið Litir regnbogans sem verður opinbert lag Hinsegin daga 2017. Daníel Arnarsson flytur lagið en hinn kunni lagahöfundur Örlygur Smári vann lagið með honum. Daníel er nýútskrifaður úr Háskóla Íslands með BA-gráðu í félagsfræði og starf- ar sem framkvæmdastjóri Samtak- anna 78 auk þess sem hann sinnir sönglistinni í hjáverkum. „Ég hef alltaf haft mikinn áhuga á söng og tónlist og hef sungið á síðustu tíu ár- um í afmælum, brúðkaupum, jarð- arförum og í raun við hvaða tilefni sem er. Á sama tíma hef ég reynt fyrir mér með nokkrum hljóm- sveitum, unnið með lagahöfundum, tekið upp demó og þess háttar,“ seg- ir Daníel þegar hann er spurður út í bakgrunn sinn í tónlist. Grísku goðin innblástur Daníel segir að hann hafi lengi langað til þess að gera eitthvað fyrir Hinsegin daga en ekki vitað hvar styrkur sinn lægi fyrir hátíðina. „Ég hef komið fram á síðustu opn- unarhátíðum og hef haft mjög gam- an af því en svo fór ég að pæla með lag fyrir Hinsegin daga, hafði sam- band við stjórn Hinsegin daga og þau voru til í að vinna þetta með mér. Ég hafði rakleiðis samband við Örlyg Smára, því ég hef alltaf haft mikið dálæti á honum og hans mús- ík, og hann í raun sagði já strax og var mjög til í þetta verkefni. Textinn er svo saminn af manninum mínum, Hólmari Hólm, sem er menntaður í fornfræði, grísku og latínu, sem út- skýrir kannski ýmsar vísanir í gríska og rómverska guði og gyðjur, sem binda textann í raun saman,“ segir Daníel og bætir við að lagið sé óður til ástarinnar, regnbogans og grísku goðanna Afródítu, Erosar og Írisar. „Kveikjuna að laginu má rekja til fornra höfunda og heim- spekinga, eins og Hesíódosar og Parmenídesar, sem nefna Eros einna fyrstan í tilurð heimsins en hann þekkja flestir sem guð ást- arinnar, Amor. Þannig er heimurinn ekkert án ástarinnar, sem Eros og Afródíta standa fyrir. Eins tekur regnboginn á sig aðra mynd en hann var tákn sendigyðjunnar Írisar sem sá um að tengja ólíka heima guða og manna. Nú er regnboginn auðvitað tákn fjölbreytileikans og þar sem ólíkir heimar mætast gefur fjöl- breytileikinn lífinu lit,“ segir Daníel. Verðmætt að vera hluti af hátíðinni Daníel segir það vera góða til- finningu að gera lag fyrir Hinsegin daga. „Það er ótrúlega verðmætt að vera hluti af þessari hátíð sem mér þykir afskaplega vænt um því hún sameinar alla í ástinni. Sama hver þú ert eða hvaðan þú kemur þá geturðu fagnað ástinni með öllum öðrum á Hinsegin dögum,“ segir Daníel sem mun koma fram á hátíðinni og flytja lagið. „Ég mun koma fram á opn- unarhátíð Hinsegin daga sem fram fer í Gamla bíó 10. ágúst og mjög lík- lega á stóra sviðinu á laugardeginum þegar ganga fer fram,“ segir Daníel. Eins og áður segir kemur lagið út á morgun, föstudag, og verður það frumflutt á K100 klukkan 11:30 í fyrramálið. Óður til ástarinnar og regnbogans  Hátíðin Hinsegin dagar eða Reykjavík Pride fer fram dagana 8.-13. ágúst  Sérstakt einkennislag hátíðarinnar verður gefið út í ár. Morgunblaðið/Freyja Gylfa Ljósmynd/Ernir Eyjólfsson Einkennislagið Örlygur Smári semur lagið ásamt Daníel. Fjölbreytileiki Hinsegin dagar 2017 fara fram dagana 8.-13. ágúst í ár. Skapandi Daníel ásamt mann- inum sínum Hólmari Hólm sem semur texta lagsins.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.