Morgunblaðið - 20.07.2017, Side 62
62
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 20. JÚLÍ 2017
Garðs Apótek Sogavegi við Réttarholtsveg
Opið kl. 9-18 virka daga | Sími 568 0990 | www.gardsapotek.is
Appótek: www.appotek.is
Einkarekið apótek í 60 ár
Lágt lyfjaverð - góð þjónusta
Ný glæsileg
heimasíða
acredo.is
Hátúni 6a Sími 577 7740
carat.is acredo.is
Trúlofunarhringir
fh
Giftingarhringir
fh
Demantsskartgripir
Sigurður Þorri Gunnarsson
siggi@mbl.is
Útvarpsstöðin K100 er í stöðugum
vexti um þessar mundir og bætir
nú við sig öflugum mannskap sem
mun standa vaktina í útvarpinu í
sumar.
Dans Hans liggur á línunni
Þóra Sigurðardóttir og Jóhann
G. Jóhannsson leysa Svala og
Svavar af í sumar og endurnýja
kynnin hvort af öðru, en heil kyn-
slóð krakka ólst upp með Bárði og
Birtu í Stundinni okkar á RÚV,
sem þau léku. „Mér finnst gríð-
arlega gaman að vinna í útvarpi, ég
var með þátt á Rás 2 í nokkur ár
með Atla Þór Albertssyni. Þetta er
fjölbreytt og skemmtileg vinna,“
segir Jóhann, eða Jói eins og hann
er alltaf kallaður, og bætir við að
ekki skemmi fyrir að fá að takast á
við þetta verkefni með Þóru vin-
konu sinni. Eðli málsins samkvæmt
þarf að vakna snemma þegar mað-
ur stjórnar morgunþætti og segir
Jói það ganga fínt að vakna á
morgnana. „Vekjaraklukkan er
stillt á 05:45 og þó ég sé hálfnaður
á Selfoss þegar ég kem af Seltjarn-
arnesi þá næ ég að koma mér upp
í Hádegismóa á um það bil 12-15
mínútum án þess að brjóta umferð-
arlög. Það eru ekki margir á ferð-
inni á þessum tíma,“ segir Jói og
bætir við að hann sé A-manneskja
í vinnslu. „Ég var mikill B-maður
en hef á síðustu árum verið að fær-
ast í A þannig að þetta venst og er
hætt að vera vont,“ segir Jói og
brosir. Eins og fram kom hér að
ofan störfuðu Þóra og Jói lengi
saman í Stundinni okkar. „Við unn-
um saman á hverjum degi í um það
bil fjögur og hálft ár, síðast að ein-
hverju ráði 2006 en höfum haldið
sambandi. Hún flutti til Bahama og
fór svo á kaf í veitingageirann og
ritstörf en það er dásamlegt að
rifja upp sambandið. Við erum
miklir vinir og eigum mjög auðvelt
með að vinna saman. Hún er svo
skemmtileg,“ segir Jói og bætir við
að upplegg þáttanna verði að hafa
gaman og koma hlustendum rétt-
um megin fram úr rúminu á
morgnana. Jói segir að Birta og
Bárður muni ekki spila rullu í
þættinum en þó hefur gamall vinur
bankað fast á hurðina undanfarna
daga. „Dans-Hans liggur á línunni.
Við þorum ekki að hleypa honum
að,“ segir Jói og hlær.
Verður með EM á hreinu
Valtýr Björn Valtýsson er
flestum landsmönnum kunnur fyrir
störf sín í fjölmiðlum. Valtýr er nú
mættur til leiks á K100 og mun
flytja hlustendum fréttir af gengi
stelpnanna okkar á EM í knatt-
spyrnu sem fer fram í Hollandi um
þessar mundir. „Mér líst mjög vel
á K100. Starfsandinn hér er æð-
islegur og það má segja að þessi
stöð sé lítil og krúttleg en á hraðri
uppleið. Ég er fenginn hingað
vegna EM kvenna í fótbolta og það
verkefni leggst vel í mig. Vonandi
verður íslenska liðið sem lengst í
keppninni en þrátt fyrir tap í
fyrsta leik gegn Frökkum þá lofar
leikur liðsins góðu upp á fram-
haldið að gera,“ segir Valtýr og
bætir við að hann muni einnig læða
sér inn í önnur verkefni á stöðinni
á næstunni. „Ég er með fastar inn-
komur í morgunþættinum sem og í
Magasíninu. Þá læðir maður sér
inn annars staðar og á laugardag
leikur Ísland sinn annan leik í riðl-
inum og þá verð ég ásamt Kristínu
Sif í loftinu frá kl. 12-16 en leik-
urinn hefst klukkan 16,“ segir Val-
týr, en hann mun einnig taka þátt í
að skemmta landsmönnum um
verslunarmannahelgina á K100.
Valtýr er nokkuð bjartsýnn á
gengi stelpnanna á mótinu. „Ég
held og vona að þær eigi eftir að
komast í 8-liða úrslit að minnsta
kosti. Þær eru með risastórt
hjarta, eru skipulagðar og agaðar í
leik sínum. Þetta á vonandi eftir að
fleyta þeim langt,“ segir Valtýr.
Hefur rennt hýru
auga til útvarpsins
Friðrika Hjördís Geirsdóttir
fjölmiðlakona, betur þekkt sem
Rikka, hefur gengið til liðs við síð-
degisþáttinn Magasínið á K100 og
mun leysa af Huldu Bjarnadóttur
sem er í sumarfríi. Rikka hefur
áralanga reynslu úr fjölmiðlum og
hefur starfað við sjónvarp og
prentmiðla en spreytir sig nú í
fyrsta sinn í útvarpi. Rikka segir
það leggjast vel í sig að hefja störf
í útvarpi. „Ég hlusta mikið á út-
varp og hef rennt hýru auga til
miðilsins undanfarið, þetta er því
ljómandi skemmtilegt tækifæri
sem ég hlakka til að takast á við,“
segir Rikka. Hún er hvað þekktust
fyrir störf sín í sjónvarpi á Stöð 2
og segir hún ekki mikinn mun vera
á miðlunum. „Hvort tveggja snýst
um að undirbúa sig vel og vera
maður sjálfur í því sem maður er
að fást við. Mér finnst því kær-
komin áskorun að vera í beinni út-
sendingu í útvarpi og sjónvarpi á
sama tíma,“ segir Rikka, en K100
sendir einnig út í sjónvarpi á
K100.is og á Rás 9 í Sjónvarps-
þjónustu Símans.
Öflugt fólk stendur vaktina í sumar
Morgunblaðið/Golli
Kvíðablandin tilhlökkun Þóra og Jói þegar þau voru upplýst um að það þyrfti að stilla vekjaraklukkuna á 05:45!
Við hljóðnemann Rikka hefur rennt hýru auga til útvarpsins og hlakkar til að starfa í Magasíninu.
Reynslubolti Valtýr Björn spáir því að stelpurnar
okkar komist í 8-liða úrslit.