Morgunblaðið - 20.07.2017, Síða 68

Morgunblaðið - 20.07.2017, Síða 68
68 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 20. JÚLÍ 2017 Útilegur og útivist Ásgeir Ingvarsson ai@mbl.is Í sumar stendur Elín Esther Magn- úsdóttir vaktina á tjaldsvæðinu við Úlfljótsvatn. Hún er skáti með meiru, hefur yndi af útivist og er rétta mann- eskjan til að leita til þegar vantar góð ráð fyrir útileguna. Elín segir ekki hlaupið að því að gefa algild ráð um hvernig á að und- irbúa útilegu. „Í dag ferðast fólk á svo fjölbreyttan hátt og á tjaldsvæðinu okkar sjáum við t.d. allt frá ferða- löngum sem eru að skoða landið á reiðhjóli með allt sitt hafurtask í þremur litlum töskum yfir í fjöl- skyldur sem koma með tíu metra hjólhýsi með gervihnattamóttakara í eftirdragi. Báðir eru þessir hópar í útilegum, en eru að sækjast eftir gjörólíkri upplifun.“ Sjálf grípur Elín oft til þess ráðs að setja upp excel-skjal þar sem hún skipuleggur hvað taka þarf með í lengri ferðir. „Það þarf að hugsa um grunnþarfirnar, sem eru þær sömu hjá öllum: við þurfum að sofa og borða, okkur þarf að vera hlýtt og það er voðalega gott ef það er líka gaman hjá okkur.“ Notalegur nætursvefn Nokkrir hlutir eru ómissandi, þeg- ar Elín heldur af stað út í náttúruna: „Það er útbreidd mýta hjá Íslend- ingum að fólki verði að vera kalt þeg- ar sofið er í tjaldi. En við sem gerum það að gamni okkar að sofa uppi á jöklum vitum að til er einfalt ráð til að leysa þennan vanda og nokkuð sem margir gleyma: að hafa góða dýnu til að einangra svefnpokann frá jörðinni. Þessar dýnur geta kostað sitt, en verðið á þeim nær samt ekki upp í kaupverðið á dráttarbeisli á góðu hjólhýsi.“ Það er ágætt að vera vel útbúinn og í fötum sem halda líkamanum þurrum og hlýjum. En Elín segir marga gera þau mistök að kaupa mun fullkomnari og dýrari útivistarfatnað en þörf er á ef ætlunin er að fara í ósköp venjulega íslenska útilegu. „Það er auðvelt að láta glepjast af flottum merkjum, en líka auðvelt að skjóta hátt yfir markið í búnaði. Rán- dýr þriggja laga fatnaður er til dæm- is ekki endilega nauðsynlegur í dæmigerðar útilegur og gönguferðir og flíkur sem eru frekar gerðar fyrir erfiðar vetrarferðir,“ útskýrir Elín. „Þriggja laga fatnaðurinn hefur þann eiginleika að anda vel, en það er nokkuð sem við þurfum ekki á að halda á sumrin og dugar þá einfald- lega að renna niður ef fólki verður of heitt. Í sjálfu sér kemur fullkomni búnaðurinn ekki niður á útilegunni, að öðru leyti en því að fólk borgar of mikið fyrir hann.“ Ferðast létt og útsofin Segir Elín ekkert til að skammast sín fyrir að taka með meira en minna, en samt sé alltaf gott að geta sloppið við að burðast með óþarfa í útileg- unni. „Með reynslunni má byrja að sigta út hvað það er sem raunveru- lega er notað í útilegunum og hvað hefði alveg mátt skilja eftir heima. Að rogast ekki um með of mikið af dóti er hluti af því að upplifa frelsið í nátt- úrunni.“ Fleira en rétti útbúnaðurinn lætur útileguna heppnast vel: „Ég myndi segja að það væru lykiltriði að fá góð- an nætursvefn og borða vel. Fyrir mig persónulega var það ákveðin uppljómun að skilja að maður þyrfti ekki að borða núðlur í öll mál í útilegu og vel hægt að láta það eftir sér að elda góðan mat í ferðinni.“ Er líka óþarfi að vera í algjörum spreng í útilegunni. „Eitt af því sem mér finnst skipta mestu máli er að muna að hægja aðeins á mér, vera ekki að rembast við að komast yfir tuttugu áfangastaði á einni helgi heldur leyfa mér að slaka á með fjöl- skyldunni og njóta samverunnar.“ Síminn látinn í friði Þessu tengt reynir Elín líka að lág- marka notkun raftækja í útilegum og kveðst ekki nota farsímann nema í hana sé hringt. Segir hún sérstaklega vert að prófa það með unga fólkinu að slökkva á raftækjunum. „Við erum með skólabúðir hér á Úlfljótsvatni á veturna og tökum á móti nokkur hundruð börnum yfir veturinn. Gildir sú regla að ekki má vera með síma á meðan dvalið er í búðunum og það fyrsta sem við gerum við komu barnanna er að fara í tveggja tíma fjallgöngu, sama hvernig viðrar. Þeg- ar komið er upp á fjall með hóp af 14- 15 ára krökkum er algengt að þau væli bæði yfir veðrinu og símal- eysinu, en svo gerist eitthvað innra með þeim þegar við byrjum að fikra okkur niður í móti og þau fara að átta sig á hvað þau hafa afrekað og fer að líka við útivistina,“ segir hún. „Þar með er ekki sagt að það sé nokkuð at- hugavert við að halla sér aftur í hjól- hýsinu á kvöldin og horfa á fréttirnar í símanum eða jafnvel á flatsk- jássjónvarpi, en það er einfaldlega önnur upplifun.“ En hvert á að halda? Ef dæmigerð íslensk vísitölufjölskylda ætlar að skapa góðar útileguminningar, hvert á að setja stefnuna? Ætti kannski að elta veðrið, eða forðast kraðakið við vinsælustu náttúruperlurnar? „Sjálf reyni ég að velja staði sem bjóða upp á fallegt útsýni og möguleika á að skoða mig um á nokkuð stóru svæði. Ég vil líka hafa aðgang að vatnssal- erni og heitum sturtum og að eitt- hvað sé í boði fyrir yngstu fjölskyldu- meðlimina,“ segir Elín. „Oft er stefnan sett á vinsæla staði á borð við Ásbyrgi eða Hamra við Akureyri, og leitað að góðu tjaldstæði á vefsíðum eins og www.tjalda.is, en svo er þeirri reglu fylgt að ef við keyrum fram hjá tjaldsvæði sem okkur líst vel á þá ein- faldlega er stoppað þar þá nóttina.“ Morgunblaðið/Kristján Ekki fara dýnulaus í útilegu  Elín Esther segir dýnuna einangra svefnpokann frá kaldri jörðinni, og ætti það að bæta nætur svefninn  Það gerir útileguna skemmtilegri að borða góðan mat og vera ekki í algjörum spreng á milli áfangastaða Morgunblaðið/Hanna Rólegheit Elín Esther Magnúsdóttir segir allt í lagi að hægja stundum ferð- ina. Að vera á miklum þeytingi í útilegu er ekki endilega skemmtilegt. Eitt er það sem ekki má gleyma að taka með í útileg- una: ruslapokinn. Segir Elín að flestir gangi vel um og skilji ekki annað eftir sig í náttúrunni en fótsporin. Virð- ist það einkum á stórum hátíð- um sem slæm umgengni getur farið úr böndunum, en það vill líka henda að fólk gerir óvilj- andi mistök. „Ég varði einmitt drjúgum parti af mánudeg- inum í að hreinsa upp rusl af hluta af tjaldstæðinu okkar við Úlfljótsvatn því einhver hafði skilið eftir ruslapoka úti og refurinn komist í og tætt um allt svæðið,“ segir Elín og hamrar á því að nokkrir sam- anbrotnir ruslapokar séu ómissandi hluti af útilegubún- aðinum. „En það verður líka að ganga rétt frá ruslinu og muna að villtu dýrin geta sótt í ruslapoka sem skildir eru eft- ir.“ Ruslapokinn er ómissandi Minningar Börn að leik á tjörn við tjaldsvæði. Ekki má gleyma að finna eitthvað skemmtilegt fyrir yngstu kynslóðina að dunda sér við.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.