Morgunblaðið - 20.07.2017, Blaðsíða 72

Morgunblaðið - 20.07.2017, Blaðsíða 72
72 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 20. JÚLÍ 2017 ✝ Halldór Þórð-arson fæddist 19. nóvember 1933 á Stóra-Fljóti í Biskupstungum. Hann lést 6. júlí 2017 á Dvalarheim- ilinu Ási í Hvera- gerði. Foreldrar hans voru Þorbjörg Hall- dórsdóttir, f. 1892, d. 1967, og Þórður Kárason, f. 1889, d. 1968, sem bjuggu lengst af á Litla-Fljóti. Hann var eina barn foreldra sinna en þau ólu einnig upp Ás- laugu Magnúsdóttur og Alfreð Jónsson. Þau eru bæði látin. Halldór kvæntist Guðmundu Júlíönu Tyrfingsdóttur, f. 1930. Þau slitu samvistum. Börn þeirra eru Þórður Jó- hannes, f. 1956, búsettur á Litla-Fljóti, Tyrfingur, f. 1958, búsettur á Eyrarbakka, Björg, f. 1963, búsett í Ölfusi, og Kristín Margrét, f. 1964, búsett í Svíþjóð. Barnabörnin eru átta talsins og barnabarnabörnin fimm. Við sex ára ald- ur flutti Halldór að Litla-Fljóti með foreldrum sínum og bjó þar síðan allan sinn búskap. Á yngri ár- um stundaði hann nám við smíðaskólann í Hólmi og búnaðarnámskeið í Stóru- Sandvík. Áhugi hans beindist ávallt að ættfræði og kveðskap. Síðustu æviárunum eyddi hann á Dvalarheimilinu Ási í Hvera- gerði. Útför Halldórs fer fram frá Skálholtskirkju í dag, 20. júlí 2017, og hefst athöfnin kl. 14. Jarðsett verður á Torfastöðum. Kominn er sá tímapunktur í líf- inu að við kveðjum okkar hjarta- hlýja og yndislega afa. Minning- arnar streyma og setjum við nokkrar niður á blað til að minn- ast hans. Afi Dóri var bóndi í Biskups- tungunum og munum við eftir til- hlökkuninni að komast í sveitina í öllum fríum. Þar fengum við að bralla mikið með honum í úti- störfunum og var hann þolinmóð- ur og yfirvegaður í að kenna okk- ur handtökin. Tilraunir með rabarbara, kúmentínsla og við- gerðir með baggaböndum eru nokkur atriði sem koma upp í hugann á meðan við ritum þessi orð. Við munum svo sannarlega sakna þess að fá ekki kúmenið hans afa til að setja í uppskriftina að brauðinu sem við fengum hjá ömmu. Hann unni landinu, fjölskyld- unni og sveitinni sinni mikið. Hann fór ófáar ferðirnar og alltaf sagði hann sögur eftir á. Að mörgu leyti má segja að Hvítár- nes hafi verið einn af hans uppá- haldsstöðum og hafði hann gam- an af því að segja okkur sögur af draugnum þar. Afi var mikill sagnamaður og áhugamaður um ættfræði. Þegar hann sagði sögur fyllti hann inn í þær með alls kon- ar upplýsingum og vísum sem gerði það að verkum að sögurnar urðu langar. Alltaf komst hann þó aftur á sporið og eftir sátu ofsa- lega miklar upplýsingar. Hann var mikill grúskari og safnari og hélt mikið upp á hand- verk og bækur. Ef okkur vantaði upplýsingar um forna hætti þá var hann hafsjór. Hann var einnig handlaginn maður og mikill smið- ur. Hann eyddi ófáum stundum í gamla bænum og smíðaði marga fallega hluti sem við höldum mik- ið upp á. Einnig metum við vís- urnar sem hann samdi en það má segja að afi hafi getað allt. Hann var sannkallaður súperafi. Afi tók sér góðan tíma í að hlusta á hvað við vorum að brasa og var áhugasamur um líf okkar. Hann hvatti okkur áfram og var stoltur af afrekunum. Elsku afi, mikið ofsalega eigum við eftir að sakna þín. Þótt við get- um ekki leitað til þín þá gerum við það í hjarta okkar og í minning- unum því þar munt þú ávallt vera. Hvíldu í friði, elsku afi. Júlíana Tyrfingsdóttir, Garðar Tyrfingsson og Halldór Tyrfingsson. Kæri Halldór. Það eru orðin nokkur ár síðan ég hitti þig fyrst, þegar Júlíana bauð mér fyrst að koma með ríð- andi í réttir. Mikið er ég fegin að hafa þegið það boð, því að það var upphafið að því að ég eignaðist aukafjölskyldu. Allir tóku mér svo vel, þú bauðst mig velkomna og sagðir að ég mætti haga mér eins og heima hjá mér. Það var alltaf svo gaman að hitta þig og hlusta á þig segja sögur. Eitt sinn hafðirðu áhyggjur af því að mér leiddist að hlusta á „svona gamlan karl röfla“. Ég svaraði að mér þætti nú vænt um þennan gamla karl, þar sem ég ætti engan afa á lífi til að segja mér sögur. Þú varst snöggur að svara: „Ætli þú megir ekki eiga svolítið í mér.“ Mikið þótti mér vænt um þessa setningu og það hefur einkennt samskipti mín við þig og alla þína fjölskyldu. Mér finnst eins og ég eigi bara pínulítið í ykkur öllum. Ég mun varðveita minningu þína í hjarta mínu. Hvíl í friði, kæri vin- ur. Dóra Guðrún Ólafsdóttir. Halldór á Litla-Fljóti var jöfur sinnar sveitar. Ekki að hann bæri það með sér enda ævilangt frem- ur heilsulítill bóndi. En ríki hans í Tungum var bæði stærra og merkara en svo að stundarleg vel- ferð skipti þar nokkru. Enginn annar Tungnamaður reiddi inn í 21. öldina jafn magnaðan fjársjóð sagna og minninga. Og Dóri hafði einstakt lag á að njóta þessa arfs og auðga með honum líf sitt og annarra. Bar hér margt til að skapa Dóra sérstöðu í samfélagi mann- anna. Þótt fæðing hvers manns sé vissulega kraftaverk þá átti það enn frekar við en endranær hinn 19. nóvember 1933 þegar hús- freyjan Þorbjörg Halldórsdóttir frá Hrosshaga fæddi einkasoninn Halldór. Hún var komin yfir á fimmtugsaldur og hafði verið í barnlausu hjónabandi í 13 ár. Og þar með var ekki öll sagan sögð því í stórfjölskyldu Þorbjargar húsfreyju var barnsfæðing þessi mikil tímamót. Sex af átta bræðrum frá Bræðratungu kvæntust en ef frá var talinn Þórður eldri sem týnd- ist til Ameríku hafði enginn þeirra náð því að verða afi. Þegar hér var komið sögu var það mót öllum vonum að orðið gæti. Á þriðja áratug 20. aldar efaðist enginn um að hérlendis yrði al- dauða öll ætt Halldórs Þórðar- sonar hreppstjóra í Bræðra- tungu. Með óvæntri fæðingu Dóra varð þar breyting. Þessi einkasonur á Fljóti varð við fæðingu arftaki mikillar sögu sem hann varðveitti af trú- mennsku þess sem gefið var gott minni. Það hefur þurft sterk bein til að vera einasta ungmenni stórrar ættar og sjálfur hefur Halldór lýst vel því frjálsræði sem hann naut í uppvextinum. Honum voru ekki ætluð störf inn- anhúss og hann taldi sig heldur ekki mikinn búmann. En Dóri hafði annað sem vó þyngra í því að miðla áfram arfi sinnar ættar. Hann var sagna- maður af Guðs náð og naut þess að segja frá. Þar sagði hann hverja sögu eins og hann heyrði hana en var um leið fús til að ræða þær skekkjur sem laumast höfðu inn í hinar munnlegu sagnir og stundum mátti rétta til með sam- anburði við skjallegar heimildir. Á Litla-Fljóti opnaðist sýn inn í löngu horfið bændasamfélag Biskupstungna. Það var fjarri Dóra að miklast af ætt sinni eða draga um of taum hennar í frá- sögum. Þar fékk hver að njóta sinna verka en sögur af spaugi- legum hliðum tilverunnar ekki dregnar í dilka. Oflof hæfir illa í minningar- greinum og vitaskuld átti Dóri á Fljóti eins og allir menn sína sigra og sína ósigra. Búskapur hans á Litla-Fljóti var langt frá því að teljast til fyrirmyndar og heilsuleysi hafði áhrif á alla lífs- göngu bóndans. Halldór var oft harla frjálslegur og um margt nokkur munur á allri framkomu hans og þeirra veraldarhöfðingja sem samtími okkar mælir sig við. Þá var skipbrot áratuga hjúskap- ar honum ekki létt. En einmitt í grallaralegu hisp- ursleysi Dóra gagnvart gjörvallri veröldinni lá falin sú forna höfð- ingslund sem lét veraldlegt gengi aldrei beygja sig. Þeim sem gaf sér tíma til að hlusta duldist ekki að það gull sem þessi gamli þulur lumaði á var honum til meiri ánægju og blessunar en nokkurt það veraldarinnar góss sem hæst er jafnan hampað. Blessuð sé minning Halldórs Þórðarsonar. Bjarni Harðarson. Á kveðjustundu þökkum við kærum vini, Dóra á Litla-Fljóti, allar samverustundirnar, visku hans og ótæmandi fróðleikinn. Við söknum hans úr sæti sínu í eldhúshorninu hjá okkur en þar ræddum við saman marga stund- ina, um fortíð sem nútíð, um fjall- ferðir og horfna vini og vanda- menn. Alltaf var hann fræðarinn og við ræddum hve gott hefði ver- ið ef hann hefði átt þess kost að ganga menntaveginn en þar hefðu hæfileikar hans nýst til fullnustu. Ég heyrði fljótt að hug- ur Dóra hafði staðið til þess á yngri árum en sem einbirni taldi hann það skyldu sína að stofna til búskapar á föðurleifð sinni á Litla-Fljóti. Nú síðustu árin eftir að við vor- um öll flutt til Hveragerðis styrktist vináttan enn frekar og má segja að við höfum nær dag- lega annaðhvort hist eða rætt saman í síma. Og margt var þá rætt og rifjað upp en Dóri hélt einstöku minni sínu fram í andlát- ið. Við biðjum fyrir honum og fjöl- skyldu hans og þökkum allar góðu samverustundirnar. Þær verða ekki fleiri í bili en enginn veit hvað síðar verður. Við biðjum Dóra Guðs blessunar á nýjum lendum. Drottinn veg þér vísi, vel þig ætíð geymi; ljósið bjart þér lýsi leið í nýjum heimi. (HA) Elínborg og Snorri. Halldór Þórðarson Nafni breytt Við úrvinnslu minning- argreinar Sigurðar J. Jóns- sonar um Júlíönu Hinriks- dóttur var nafni dóttur hans breytt vegna misskilnings, Sigurða var kölluð Sigurður og því mátti svo á líta að hann ætti tvo syni en ekki son og dóttur. Útgangsorð grein- arinnar eru því svohljóðandi eftir leiðréttingu: Elsku Beta og Guðmundur Heiðar, Siggi og Sjöfn og fjöl- skyldur, og aðrir ættingjar og vinir. Á þessari stundu eigið þið hug og samúð okkar Sæju og fjölskyldna þeirra Sig- urjóns og Sigurðu. Geymið allt hið góða tengt Júllu í hjörtum ykkar. Þá mun vel farnast. LEIÐRÉTT ✝ Guðni Baldurs-son fæddist í Reykjavík 4. mars 1950. Hann lést á heimili sínu 7. júlí 2017. Foreldrar Guðna eru Baldur H. Aspar, prentari frá Akureyri, f. 8.12. 1927, og Þóra Guðnadóttir, fyrrv. móttökuritari frá Reykjavík, f. 17.2. 1931. Guðni lauk landsprófi frá Vogaskóla 1966, stúdentsprófi frá Menntaskólanum við Hamrahlíð 1970 og viðskipta- fræði frá HÍ 1976. Guðni var í símavinnu nokkur sumur og hóf störf hjá Hagstofu Íslands með- fram námi í viðskiptafræðinni og síðar Þjóðskrá og vann hann þar til dánardags. Guðni stóð að stofn- un Samtakanna ’78, mannréttindafélags hinsegin fólks, og sat í stjórn þess lengi vel. Hann kom einnig að stofnun Alnæmissamtak- anna á Íslandi, síðar HIV Ísland, 1988 og sat í stjórn þess frá upphafi til dánar- dags. Guðni hóf sambúð vorið 1979 með Helga Viðari Magnússyni, starfsmanni á Landspítala, f. 11.3. 1955, d. 17.12. 2003, og gengu þeir í staðfesta samvist 23.11. 1998. Útför Guðna fer fram frá Fossvogskirkju í dag, 20. júlí 2017, klukkan 13. Í dag kveðjum við kæran frænda okkar, Guðna Baldurs eins og hann var alltaf kallaður í fjölskyldunni til aðgreiningar frá öllum hinum Guðnunum. Guðni var elstur okkar systkinabarna, einkasonur föðursystur okkar Þóru Guðnadóttur og Baldurs Aspar. Þegar fjölskyldan unga beið eftir að íbúðin í Sólheimum 25 yrði tilbúin bjó hún hjá okkur í Skeiðarvoginum um tíma og síðan þá hefur alltaf verið mikill sam- gangur milli fjölskyldnanna. Enda þótt Guðni væri fáskiptinn maður og segði ekki mikið að fyrra bragði gátu runnið upp úr honum sögur af fólki og fyrir- brigðum ef sá gállinn var á hon- um. Kom þá í ljós hve fjölfróður og athugull hann var um margt og var jafnan stutt í íronískan húmor hans. Frá unga aldri hlustaði Guðni mikið á tónlist. Á unglingsárunum var hann orðinn ákafur safnari, bæði á það nýjasta og það sér- kennilega í tónlist, t.d. skrýtnar útgáfur á Bítlalögunum í flutningi ýmissa listamanna. Í þá daga var nýjasta dægurlagatónlistin lengi að berast til Íslands en Guðni hlustaði á Radio Luxemburg og fleiri útlendar stöðvar og tók upp alla nýjustu tónlistina á risastórt segulbandstæki. Hann var því kominn með allt það nýjasta nýtt 2-3 vikum áður en það heyrðist í útvarpi landsmanna. Guðni kom eins og hvellur inn í pólitík og samfélagsumræðu með stofnun Samtakanna ’78, baráttu- samtaka samkynhneigðra. Kjark- ur Guðna og áræði kom okkur öll- um á óvart þegar þessi hægláti frændi okkar varð fyrsti formað- ur samtakanna. Fumlaust tók hann sér stöðu með öðrum frum- kvöðlum sem ruddu brautina fyrir þá sem á eftir komu. Með einurð sinni og rökfestu átti hann stóran þátt í að opna umræðu um sam- kynhneigð sem fram að þessu hafði verið þögguð í þjóðfélaginu. Sambýlismaður Guðna var Helgi Viðar Magnússon. Hann lést úr krabbameini árið 2003 og var lát hans Guðna mikill missir. Við þökkum Guðna samfylgdina og sendum Þóru og Baldri okkar dýpstu samúðarkveðjur. Systkinin í Skeiðarvogi 1, Sigurbjörg, Guðmundur, Jónína, Bjarni og Snjáfríður. Guðni Baldursson er látinn 67 ára að aldri. Útför þessa einstaka brautryðjanda og baráttumanns fyrir mannréttindum og réttlát- ara samfélagi fer fram í dag. HIV Ísland, áður alnæmisam- tökin, voru stofnuð 1988. Guðni var einn af stofnfélögunum og var hann beðinn um að taka sæti í fyrstu stjórninni og hafði hann svo til óslitið setið í stjórn síðan, eða í tæplega 30 ár, félaginu til mikilla hagsbóta. Það var ómet- anlegt að fá greindan og lífs- reyndan baráttumann í fé- lagsstarfið, Guðni þekkti hlutina eftir að hafa rutt brautina í byrjun fyrir mannréttindum homma og lesbía árin á undan. Það var styrkur í nærveru þessa hógværa og æðrulausa manns, á þeim þungbæru tímum þegar alnæm- isfaraldurinn var að breiðast út. Ástandið var ólýsanlega erfitt á þessum árum þegar ungt fólk þurfti að mæta dauða sínum í skugga fordóma, útskúfunar og ótta. Auður Matthíasdóttir var fyrsti formaður félagsins, en hún lést á síðasta ári, þau Guðni urðu ekki gömul, blessuð sé minning þeirra beggja. Við erum fjölmörg sem eigum Guðna mikið að þakka, hann var fyrsti formaður Samtakanna ’78 og hans þáttur í réttindabaráttu og sýnileika samkynhneigðra á Íslandi er stór og má ekki gleym- ast. Úthald, kjarkur, eldmóður og þrautseigja þeirra sem stóðu í stafni á þessum árum var svo öfl- ug að þess verður lengi minnst. Baráttumenn eins og Guðni sem hér er minnst, Hörður Torfason og Þorvaldur Kristinsson og fleiri hafa, sem betur fer, orðið heiðurs aðnjótandi fyrir störf sín. Líklega tók þetta allt meiri toll en menn gerðu sér grein fyrir, heilsa Guðna fór versnandi síðustu árin, hann var einmana, átti í erfiðleik- um með áfengisneyslu sína og dró sig í hlé, hann saknaði Helga heit- ins Magnússonar mannsins síns mikið. Þrátt fyrir allt hafði Guðni gaman af ferðalögum og hann átti ferðafélaga úti í Evrópu og fóru þeir víða. Við Guðni þekktumst í marga áratugi og vorum meira að segja tengdir fjölskylduböndum. Við náðum stundum að spjalla og þeg- ar vel lá á Guðna gat hann alveg sagt virkilega góða brandara og þá var hlegið dátt. Ég veit að ég tala fyrir hönd margra þegar ég segi að Guðna, þessa velviljaða drengs, er minnst með virðingu og hlýhug og honum þökkuð samferðin. Við vinir hans hjá HIV Ísland sendum foreldrum hans, þeim Þóru og Baldri, okkar innilegustu samúðarkveðjur. Einar Þór Jónsson. Við Guðni kynntumst á vett- vangi Bandalags jafnaðarmanna árið 1983. Þar var hann ekki mættur til leiks af persónulegum pólitískum metnaði heldur til þess að berjast fyrir auknum sýnileika og jafnrétti samkynhneigðra á við aðra. Þess vegna var það honum kappsmál að vera titlaður formað- ur Samtakanna ’78 á framboðs- listanum fremur en viðskipta- fræðingur – og til marks um tíðar- andann má nefna að mörgum fannst djarft af Vilmundi Gylfa- syni að samþykkja þetta. Í dag þegar viðhorf til hinsegin fólks hér á landi hafa gjörbreyst hefur það að einhverju leyti gleymst hvernig staðan var þegar Guðni og nokkrir aðrir brautryðj- endur hófu baráttuna. Fjölmargir sem nú njóta góðs af voru heldur ekki einu sinni fæddir á þessum tíma. Það er skiljanlegt að þeir átti sig kannski ekki á þeim gríð- arlega kjarki sem þurfti til að vera í framvarðasveit Samtak- anna ’78 fyrstu árin og fórnunum sem margir af kynslóð Guðna færðu. Við eigum þeim svo óend- anlega mikið að þakka. Guðni fór fremstur í flokki sem fyrsti formaður samtakanna og ötull talsmaður – á tímum þegar vanþekking í þjóðfélaginu var slík að fólki fannst fjarstæðukennt að samkynhneigð fyrirfyndist á Ís- landi. Og orðin hommi og lesbía voru hreinlega bönnuð í Ríkisút- varpinu. En Guðni stóð ekki einn. Fyrir utan félagana í Samtökun- um gekk Helgi, maðurinn hans, með honum fram fyrir skjöldu. Þeir opnuðu heimili sitt fyrir fjöl- miðlafólki, fóru í viðtöl og sátu fyrir á myndum. Með þessu afsöluðu Guðni og Helgi sér á vissan hátt einkalífi sínu í okkar litla samfélagi. Það var örugglega ekki auðvelt. Guðni sagði mér eitt sinn frá blaðamanni sem kom í heimsókn til þeirra, horfði undrandi í kringum sig og sagði: „Þetta er bara eins og „venjulegt“ heimili.“ Já, þannig var þekkingarleysið, við þetta var að glíma, og margir hefðu eflaust gefist upp. En Guðni var hugsjónamaður og takmarkið var að ná fram lagalegu jafnrétti, fullum mannréttindum. Síðar tóku aðrir við keflinu og hann dró sig í hlé, búinn að missa Helga sinn. Mig grunar að baráttan hafi kostað þennan sómamann meira en margir áttuðu sig á. Guðni Baldursson reyndist mér traustur og ráðagóður þegar ég leitaði til hans nokkru eftir pólitískt brölt okkar í Bandalagi jafnaðarmanna. Ég sagðist finna fyrir tilfinningum sem hefðu kom- ið mér gjörsamlega á óvart. Var hugsanlegt að ég væri allt í einu orðin ástfangin af konu, liðlega þrítug manneskjan? Guðni spurði ýmissa spurninga, velti vöngum og kvað svo upp úrskurð: „Þetta er ást.“ Við rifjuðum þetta samtal oft upp síðar þegar leiðir lágu saman á förnum vegi. Ég dáðist að Guðna Baldurs- syni og bar til hans mikinn hlý- hug. Þáttur hans í mannréttinda- baráttu hinsegin fólks var stór og má alls ekki gleymast. Jónína Leósdóttir. Þegar ég kom á vettvang Sam- takanna 78, árið 1987, var fyrsti formaður félagsins, Guðni Bald- ursson, búinn að draga sig í hlé. Bæri nafn hans á góma var það jafnan nefnt af virðingu en ég skynjaði undir niðri að leiðir hafði skilið. Eftir sjö ára starf hafði Guðni gengið vígamóður af velli. Með óbilandi pólitíska hugsjón að vopni tók hann að sér formennsku í örsmárri fylkingu samkyn- hneigðra á Íslandi þegar réttinda- leysi hinsegin fólks var algert og hommar voru barðir til óbóta fyrir það eitt að vera til. Stjórnmál voru Guðna hugleik- in og fljótlega á formannsferlin- um lagði hann til atlögu við Al- þingi. Hann bauð sig fram, fyrstur Íslendinga, sem opinber- lega samkynhneigður maður, með Bandalagi jafnaðarmanna í upp- hafi níunda áratugarins. Þögnin var rofin og málefni samkyn- hneigðra komust á dagskrá lög- gjafarþingsins. Fyrst kom ein þingsályktunartillaga, svo önnur, og árið 1993 skipaði forsætisráð- herra nefnd til að rannsaka stöðu samkynhneigðra á Íslandi og gera tillögur um úrbætur. Örlögin hög- uðu því svo að þar kynntist ég Guðna Baldurssyni. Nefndin fundaði vikulega í Bankastræti og síðan sátum við Guðni meira og minna allar helg- ar á skrifstofunni hans á Hagstof- unni. Borðuðum bútterdeigshorn með sardínum og fengum okkur bollasúpur með rjóma. Þetta var fyrir tíma internetsins og heim- Guðni Baldursson
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.