Morgunblaðið - 20.07.2017, Qupperneq 73

Morgunblaðið - 20.07.2017, Qupperneq 73
MINNINGAR 73 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 20. JÚLÍ 2017 ✝ Margeir Bene-dikt Steinþórs- son fæddist á Skagaströnd 19. ágúst 1932. Hann lést á Hlévangi, Reykjanesbæ, 10. júní 2017. Foreldrar Mar- geirs voru Jósefína Guðmundsdóttir, vinnukona í Skaga- firði, f. 19. mars 1908, d. 8. september 1989, og Steindór Sigtryggur Guðmanns- son, vinnumaður í Skagafirði, f. 10. mars 1903, d. 22. mars 1954. Eina barn þeirra hjúa var Mar- geir Benedikt (skráður Stein- þórsson). Margeir Benedikt ólst upp fyrstu ár ævi sinnar hjá for- eldrum sínum er voru þá vinnu- hjú á bæjum. Síðan var hann settur í fóstur. Árið 1952 kemur Margeir sem vinnumaður í Aðalból í Austurárdal í Miðfirði, síðar fer hann í Borgarfjörð, að Kjalvararstöðum í Reykholts- dal, fer svo aftur norður 1954 á Aðalból en var hjá sitt hvorum bóndanum þar. Margeir er svo lengst á Skeggjastöðum, eða frá 1956-1964, en hann klárar skól- ann á Hólum í Hjaltadal. Á ár- unum 1977-1978 kemur Margeir til Hólmavíkur sem flutningabíl- riksdóttir. 3) Bjarni, f. 3.5. 1957, verkamaður, búsettur í Garði, sambýliskona Irena María Mo- tyl, f. 19.10. 1963. Fyrrverandi eiginkona Bjarna Guðmundína Lára Guðmundsdóttir, f. 19.12. 1959, d. 16.8. 1995. Börn þeirra eru þrjú: a) Brynja Ósk, f. 15.12. 1983. Unnusti hennar er Hjalti Snær Heiðarsson. Dóttir Brynju er Aþena Mist, saman eiga þau Söndru Maríu og Aron Heiðar. b) Birgir Óttar, f. 2.6. 1986. Eiginkona hans Sigrún Inga Ævarsdóttir og dóttir þeirra Rakel Júlía. c) Börkur Óðinn, f. 22.2. 1989. Hann á einn son, Ótt- ar Bjarna. 4) Kristín, f. 28.3. 1962, sjúkraliði, búsett á Akra- nesi. Eiginmaður Árni Magnús Björnsson, f. 11.8. 1962, stýri- maður. Börn þeirra eru þrjú: a) Steingrímur Guðni, f. 16.9. 1981. Eiginkona Svala Ástríðar- dóttir. Börn þeirra eru þrjú: Gabríel, Ástríður Kristín og Ás- rún Magnea. b) Ásdís Birna, f. 7.3. 1985. Unnusti hennar Ólaf- ur Hallur Halldórsson. Börn þeirra eru Valgerður Ósk, Kristbjörg Árný og sonur Ásdís- ar Daníel Bergmann. c) Björn Árnason, f. 12.8. 1990. Unnusta er Rúna Dís Þorsteinsdóttir, þau eiga eina dóttur saman, Ís- old Nótt, og börn Rúnu eru Sól- dögg Rún og Ástrós Tara. 5) Loftur Hilmar, f. 17.7. 1963, verkamaður. 6) Finnbogi Guð- björn, f. 17.7. 1963, d. 13.8. 1993. Útför Margeirs hefur farið fram í kyrrþey. stjóri. Þar kynnist hann Ástu Bjarna- dóttur, bónda og húsmóður, frá Stað í Steingrímsfirði. Þau byrja að búa saman með börnum hennar og móður. Þau undu sér vel á Hólmavík og voru virk í félags- störfum. Árið 1988 flytja þau til Njarð- víkur og byrja að búa þar. Mar- geir giftist Ástu hinn 25. desem- ber 1983. Ásta Bjarnadóttir og Steingrímur Bergmann Lofts- son, látinn, eignuðust sex börn. Börn Ástu og Steingríms eru: 1) Andvana fæddur drengur, f. 26.6. 1954. 2) Magnús, f. 24.5. 1955, bóndi á Stað, kona hans Marta Sigvaldadóttir, f. 30.10. 1957, bóndi. Börn þeirra eru þrjú; a) Erlendur Breiðfjörð, f. 28.5. 1976, eiginkona Aðal- heiður Jóhanna Hjartardóttir. Börn þeirra eru þrjú: Jóhann Breiðfjörð, Alexander Breið- fjörð og Hjörtur Magnús. b) Guðrún Hildur, f. 13.7. 1978. Unnusti hennar er Magnús Thorlacius Doyle og sonur þeirra er Víkingur Týr. c) Sig- valdi Bergmann, f. 30.3. 1984. Unnusta er Margrét Lilja Frið- Þar kom enn eitt kallið og mað- ur fyllist sorg og söknuði og ég fer að rifja upp liðnar stundir. Mamma og Margeir kynntust á Hólmavík og man ég vel eftir honum þegar ég sá hann fyrst. Hann var svo stór og sterklegur maður með mikið skegg. Hann var snöggur í snúningum og vipp- aði sér léttur úr flutningabílnum, hann kallaði með svo rámri rödd: „Daginn stelpa!“ Hann kom til mín og heilsaði mér. Mamma og Margeir byrjuðu að búa saman, þá bjuggum við þrjú systkinin hjá þeim og amma Guðbjörg. Mar- geir tók okkur öllum vel, hann var ávallt kurteis við okkur systk- inin og ömmu. Hann hafði gaman af lífinu og öllu í kringum sig. Þegar ég var á leiðinni suður þá fékk ég að sitja með honum í flutningabílnum og man ég að einu sinni þurftum við að stoppa á Ennishálsinum í fljúgandi hálku og hann þurfti að bakka niður. Bíllinn rann út á kantinn og ég stelpurófan var beðin að stíga á bremsuna og ekki hreyfa mig þar. Ég var hrædd en sterk. Hann keðjaði bílinn á mettíma og upp fórum við. Ég fór aftur seinna með honum suður, en var- að var við slæmri spá í Hvalfirð- inum. Margeir ákvað að taka Akraborgina frá Akranesi til Reykjavíkur. Í Akraborginni var ástandið rétt þolanlegt. Margeir varð sjóveikur, hljóp inn á kló- sett. Til baka kom hann, ekki sáttur, en það flaut upp úr kló- settum vegna veðurs. En ferðirn- ar hjá honum gengu alltaf vel fyr- ir sig þrátt fyrir að hann hafi farið út um allar trissur í allrahanda veðri og ófærð. Margeiri leið vel á Hólmavík með Ástu og fjölskyldu og vinum. Hann var skemmtilega stríðinn, las mikið af bókum og beið alltaf eftir Strandapóstinum inn um dyrnar. Margeir prjónaði af list og saumaði í, hann spilaði bridge og félagsvist. Margeir þekkti landið okkar mjög vel og fór hringveginn og öræfin mörgum sinnum. Hann gat alltaf leiðrétt mann ef maður fór ekki með rétt kennileiti um landið. Margeiri þótti vænt um allt sitt samferðafólk. Hann talaði fallega um fólkið í Húnavatnssýslunni og í Skagafirðinum. Margeir sagðist vera frá Brautarholti í Skagafirði og að hann hefði verið nokkur ár á Skeggjastöðum við Húnaflóa og víða þar í kring. Þegar mamma og Margeir fluttu til Njarðvíkur fékk hann strax vinnu í Nesfisk. Seinna fær hann heilablóðfall og verður veik- ur. Margeir var ekki þekktur fyr- ir að gefast upp, en sterkur var hann og duglegur og náði sér vel til baka nema hægri höndin var óþekk, að hans sögn. Hann fór í reglulegar gönguferðir með staf- inn sinn. Mamma mín var dugleg og mjög þolinmóð en hún hjálpaði honum mikið. Við fórum margar ferðir til hans, þá á rúntinn um Suðurnes- in, við drukkum kaffi og komum með blóm og súkkulaði sem hon- um þótti gott. Við sýndum honum myndir af börnunum okkar og sögðum fréttir. Þetta ár hrakaði heilsu Mar- geirs og fór hann í hjólastól. Mar- geir veiktist fyrir um hálfum mánuði og náði sér ekki upp úr þessu, svo hægt og hægt dró af honum blessuðum. Elsku ástkæri fóstri minn og vinur okkar, hafðu hjartans þökk fyrir samfylgdina og Guð blessi minningu þína. Þín Kristín Steingrímsdóttir og Árni M. Björnsson. Okkur langar að minnast afa okkar Margeirs. Margeir þekktum við ekki öðruvísi en afa okkar þrátt fyrir að vera seinni maður ömmu okk- ar, Ástu Bjarnadóttur. Hann var blíður og góður við okkur systk- inin og kom alltaf vel fram. Hann átti ekki erfitt með að spjalla við okkur um daginn og veginn, hann var áhugasamur um okkur og skemmtilegur. Hann átti það til að grínast í okkur og okkur fannst það gaman. Þegar við komum inn úr kuldanum tók hann ávallt í hendurnar okkar og kreisti vel. Það var hans aðferð að hita upp hendurnar og sú að- ferð virkaði vel. Við komum til ykkar ömmu í heimsókn og feng- um ávallt nýlagað kaffi og kökur. Þið voruð oftast með einhver verkefni handa okkur til að hjálpa ykkur við, eins og hand- og hársnyrtingu, þrif, að setja upp gardínur og fleira. Það var alltaf velkomið í okkar huga að rétta ykkur hjálparhönd, enda við heimalningar hjá ykkur frá fæðingu. Það er erfitt að kveðja þig, afi sæll, en við vitum þú ert á góðum stað núna og þér líður vel. Við þökkum þér fyrir allar okkar stundir og við söknum þín, kæri afi. Margs er að minnast, margt er hér að þakka. Guði sé lof fyrir liðna tíð. Margs er að minnast, margs er að sakna. Guð þerri tregatárin stríð. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Gekkst þú með Guði, Guð þér nú fylgi, hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt. (Valdimar Briem.) Guð blessi minningu þína. Þín Steingrímur, Ásdís og Björn. Margeir Benedikt Steinþórsson ✝ Björn Harald-ur Sveinsson fæddist í Reykja- vík 6. júlí 1940. Hann lést á heimili sínu, Hafnarstræti 3, Akureyri, 6. júlí 2017. Foreldrar Björns voru Sveinn Jón Sveins- son frá Stóru- Mörk, f. 30. mars 1901, d. 24. febr- úar 1969, og Þórunn Úlfars- dóttir frá Fljótsdal í Fljótshlíð, f. 31. janúar 1903, d. 21. des- ember 1988. Björn átti fjögur hálfsystkini, sammæðra: 1) Njáll Haraldsson, f. 25. ágúst 1926, d. 30. desember 2012. 2) Úlfar Haraldsson, f. 2. mars 1928, d. 15. október 2000. 3) Soffía Haraldsdóttir, f. 6. jan- úar 1930, d. 28. febrúar 1984. 4) Birna Haraldsdóttir, f. 6. janúar 1930, d. 13. desember 1937. Björn kvæntist þann 31. desember 1968 Kolbrúnu Jónasdóttur frá Dalhúsum, f. 23. mars 1940, d. 15. febrúar 2015. Börn þeirra eru: 1) Sæv- Önnu Karen Sigurjónsdóttur, f. 1991, eiginmaður Almar Örn Sigurðsson, f. 1989. Synir Önnu og Almars eru Baltasar Patrik, f. 2011, Sebastian Óli- ver, f. 2013. b) Sylvíu Sigfús- dóttur, f. 1994, d. 1995. 4) Sveinn Björnsson, f. 1968, eig- inkona Leena-Kaisa Viitanen, f. 1977. Synir þeirra eru Sveinn Verneri, f. 2000, Atli Þór, f. 2002, Úlfur Sami, f. 2007, Stefán Paavo, f. 2010. 5) Birgitta Linda Björnsdóttir, f. 1972, eiginmaður Kristján Heiðar Kristjánsson, f. 1979. Börn þeirra eru Kristján Ingi, f. 2010, og Ólöf Birna, f. 2014. Björn kynntist Kolbrúnu í Reykjavík og bjuggu þau þar í 13 ár þar sem Björn lærði hús- gagnabólstrun. Árið 1970 fluttust þau til Akureyrar í Hafnarstræti 3 þar sem þau bjuggu allar götur síðan. Björn sinnti ýmsum störfum en hann vann meðal annars hjá Eimskipafélagi Íslands, Sani- tas, Húsgagnaversluninni Ein- ir og Bólstrun KB. Lengst af rak hann þó sitt eigið bólstr- unarverkstæði á Akureyri allt þar til hann hætti störfum vegna aldurs árið 2015. Björn var virkur í Oddfellowreglunni á Akureyri frá árinu 1996. Útför Björns fer fram frá Akureyrarkirkju í dag, 20. júlí 2017, klukkan 13.30. ar Már Björnsson, f. 1959. Eiginkona Inga Randvers- dóttir, f. 1963. Börn þeirra eru Kolbrún Egedía, f. 1996, unnusti Mar- inó Hólm Ingvars- son, f. 1988. Sonur Kolbrúnar og Mar- inós er Björn Ingv- ar, f. 2017. Elísa- bet Ingibjörg, f. 1999. Fyrir á Inga eina dóttur, Fjólu Ómars- dóttur, f. 1986. Börn Fjólu eru Ómar Freyr, f. 2007, Sævar Orri, f. 2013. 2) Sigurlaug Björnsdóttir, f. 1964, eig- inmaður Jóhannes Ævar Jóns- son, f. 1965. Sonur Sigur- laugar er Björn Már Jakobsson, f. 1981, unnusta Rósa Guðjónsdóttir, f. 1981. Dætur Björns og Rósu eru Katrín Rós, f. 2004, og Kol- brún, f. 2008. 3) Jónas Björns- son, f. 1965, eiginkona Ásta Garðarsdóttir, f. 1974. Synir þeirra eru Dagur Freyr, f. 2003, Jónas Guðni, f. 2005. Fyrir á Ásta tvær dætur: a) Pabbi minn, já elsku pabbi minn, það er ótrúlega skrítið að þú sért farinn frá okkur í þitt síðasta ferðalag. Mér finnst það bara mjög óraunverulegt og ég bíð alltaf eftir því að þú kíkir til okkar hvort sem það er í mat eða bara kíkir inn í smástund með blöðin eins og þú gerðir svo oft. Alltaf hljóp litla stelpan mín á móti þér fagnandi og fékk afaknús. Það var mikið högg að þú skyldir fara svona snöggt frá okkur og án nokkurs fyrirvara, en það er eitthvað sem við verðum að sætta okkur við. Þú varst yndislegur og góðhjart- aður maður, pabbi minn, vildir allt fyrir alla gera og máttir ekkert aumt sjá, varst vinur vina þinna og stutt í húmorinn. En nú eruð þið mamma sam- einuð á ný og eruð eflaust að njóta ykkar í Sumarlandinu. Við höfum gengið í gegnum ótrúlega hluti með þér og við vitum öll að þér leið ekki vel og því verður nú ekki neitað að ég hugsa oft hvernig lífið hefði mögulega getað verið öðruvísi, án áfengisins. Ég trúi því að það hafi verið tilgangur með þessu, kannski til að gera okkur sterkari. Engu að síður, elsku pabbi, þá eru það góðu minningarnar sem standa upp úr. Hláturinn og góðmennskan. Það er svo ótrúlega tómlegt og sárt að hafa þig ekki með okkur og ég vildi óska þess að þú hefðir fengið fleiri góðar stundir með okkur og afa- og langafabörnum sem voru þér svo kær. Ég man þegar ég var ung- lingur þá fórum við svo oft á rúntinn um helgar fórum á bíla- sölurnar og ég benti á bílana sem ég gat keypt fyrir pening- inn sem ég átti og enduðum svo á að fá okkur ís. Það voru ófáar söluferðirnar sem þú fórst með mér í út á land, þér fannst ótrú- lega gaman að fá bara að sitja og njóta ferðarinnar og ekki fannst mér verra að hafa þig með. Londonferðin okkar var líka æðisleg, skoðunarferðirnar og sérstaklega Queen showið, þetta fannst þér geggjað eins og þú sagðir sjálfur. Já, þessar og margar fleiri góðar minningar eigum við saman og þær geym- ast vel. Elsku pabbi, ég kveð þig með kveðjunni sem þú samdir til mömmu þegar hún kvaddi okk- ur. Þegar kallið kemur og líkaminn kólna fer veit ég að Jesú Kristur tekur á móti þér. (BHS) Linda. Elsku afi minn. Nú er svo margt sem ég vil segja en kem engu orði að. Ég hélt ég fengi meiri tíma með þér, besta vini mínum, meiri tíma til að koma í heimsókn og spjalla saman um hitt og þetta. Gera grín og segja brandara eins og þér var einum lagið. Panta pitsur og eiga góð- ar stundir saman. Ég bíð alltaf eftir símtali og það er sárt að þurfa að sætta sig við að þau verða ekki fleiri. Þau eru mér ofarlega í huga öll skiptin sem ég gisti hjá þér og ömmu, sat inni hjá þér með- an þú varst í leik í tölvunni, lást inni í rúmi að lesa Fréttablaðið eða hlusta á útvarpið. Bara að vera hjá þér, skipti ekki máli hvað við gerðum. Allir íshokkí- leikirnir sem ég fór á með þér, bíltúrarnir, sundferðirnar og laugardagsnammi á Byggðavegi eða vera hjá þér á verkstæðinu. Allt eru þetta yndislegar minn- ingar sem ég er svo heppin að eiga. Sérstaklega á svona stund- um þegar söknuðurinn er sem mestur og sárastur. Þú ert besti maður sem ég hef kynnst. Duglegur og svo góðhjartaður og vildir öllum vel. Varst alltaf í góðu skapi, lést aldrei sjá á þér ef það var eitt- hvað að. Enda man ég aldrei eftir að hafa séð þig í vondu skapi. Það er reyndar eitt skipti, þegar ég var að gista hjá ykkur ömmu og hafði verið að gefa ketti að éta fyrir utan húsið þegar hann kom inn seinna um kvöldið. Þá man ég að þú varst ekkert rosalega glaður að hafa ekki náð kettinum strax. En við hlógum bara daginn eftir. Nú ertu kominn upp til ömmu. Það gefur mér huggun að vita að þið séuð saman aftur. Enda voruð þið alltaf best sam- an. Bestu amma og afi í heimi. Ég elska þig svo mikið, elsku besti afi minn. Ég mun aldrei gleyma þér og ég mun alltaf sakna þín. Litli Björn mun fá að heyra sögur af langafa sínum þegar hann verður eldri. En nú er komið að kveðjustund í hinsta sinn. Fallegi engill að ei- lífu. Þín Kolbrún (Kolla). Björn Haraldur Sveinsson ildaöflunin kostaði bæði tíma, út- sjónarsemi, faxtæki og símhring- ingar. Eina leiðin til að sigrast á þessu risavaxna verkefni var að gera eins og músin sem át fílinn, taka einn bita í einu. Slík var þrá- seta okkar við skýrslugerðina að á endanum var Guðni klagaður til yfirmanns Hagstofunnar fyrir að halda við einhverja stelpu og nota vinnustaðinn til þeirra verka. Sú uppákoma hvatti okkur auðvitað enn frekar til dáða! Guðni átti mikið safn erlendra bóka og al- þjóðlegra tímarita og gat dregið fram ótrúlegustu úrklippur með fróðleik um stöðu mála í öðrum löndum. Þetta smá mjakaðist. Í október 1994 skilaði nefndin af sér og lagði til löggjöf um stað- festa samvist og verndarákvæði fyrir samkynhneigða. Það var stórsigur sem skaut Íslandi í fremstu röð mannréttindaþjóða á þeim tíma. Þess ber þó að geta að fulltrúar Samtakanna 78 börðu höfðinu lengi, en algjörlega ár- angurslaust, við stein Þjóðkirkj- unnar í nefndinni góðu. Jarðnesk- ir fulltrúar almættisins töldu einkarétt á hugtakinu og fyrir- bærinu „hjónabandi“ vera sinn og þar máttum við Guðni lúta í lægra haldi um stund. „Staðfest sam- vist“ varð málamiðlunin, með að- stoð Íslenskrar málstöðvar, en kirkjan mátti seinna játa sig sigr- aða þegar Ísland tók upp eitt hjónaband fyrir alla, á 21. öldinni. Feimni þögli maðurinn, sem talaði helst bæði lítið og lágt í fjöl- menni, opnaði sig smám saman á tveggja manna tali okkar í verk- efninu stóra, sagði mér brandara og tísti af hlátri með drengslegt blik í augunum. Þarna var hann á heimavelli að vinna að sínu helsta hugðarefni, jöfnum mannréttind- um fyrir alla, óháð kynhneigð. Sú glóð lifði í huga Guðna þar til yfir lauk. Hann missti lífsförunaut sinn, Helga Magnússon, langt fyr- ir aldur fram árið 2003, aðeins 48 ára gamlan, og seinni árin voru Guðna án efa erfið. Mér er efst í huga þakklæti fyrir að hafa fengið að kynnast góðum manni og merkum brautryðjanda og sendi mínar innilegustu samúðarkveðj- ur til fjölskyldu hans og vina. Hin- segin samfélagið á Guðna Bald- urssyni mikið að þakka. Lana Kolbrún Eddudótt- ir, fyrrverandi formaður Samtakanna 78. Ekki óraði okkur, samstarfs- fólk Guðna hjá Þjóðskrá Íslands, fyrir því að hann yrði svo fyrir- varalaust hrifinn á brott þegar hann var við störf fáum dögum fyrir andlát sitt. Guðni átti manna lengstan starfsaldur hjá Þjóðskrá Íslands og ekki eru það margir sem ná svo háum starfsaldri hjá sama vinnu- stað sem hann. Hann vann með margs konar vinnslur í þjóðskrá og alveg var það ljóst að hann lét uppbyggingu og högun skrárinnar sem og réttleika skráningarupp- lýsinganna sig miklu varða. Hann hélt tryggð við vinnustaðinn og þau verkefni sem hann bar ábyrgð á og ávallt var hann reiðubúinn að leysa sín verkefni af hendi hvenær sem var þrátt fyrir að vinnulotur stæðu yfir helgar eða um kvöld. Guðni var ljúfmenni og ekki maður margra orða, en þeir starfsmenn sem hafa einna lengst unnið með honum rifja upp að hann var á árum áður stundum snöggur til svars og lagði raun- sætt mat á hlutina. Ferðalög voru honum hugleikin og skemmtilegt var að heyra frásagnir hans af ferðum erlendis sem hann hafði skipulagt sjálfur og þar fór hann, eins og í öðru, sínar eigin leiðir. Nú er Guðni lagður af stað í hinstu förina, sem er kannski sú eina sem ekki var skipulögð í þaula. Samstarfsfólk hjá Þjóðskrá Íslands fyrr og síðar þakkar hon- um samfylgdina og þá alúð sem hann lagði í sín verkefni. Foreldr- um hans og fjölskyldu eru hér færðar innilegar samúðarkveðjur. F.h. samstarfsfólks Þjóðskrár Íslands, Margrét Hauksdóttir, forstjóri.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.