Morgunblaðið - 20.07.2017, Side 77
hvernig skólinn getur mætt öllum
nemendum og veitt þeim gæða-
menntun, tryggt félagslegt réttlæti
og virka þátttöku allra, bæði nem-
enda og starfsfólks. Við vorum að
gefa út bókina Skóla margbreytileik-
ans. Menntun og manngildi í kjölfar
Salamanca. Ritstjórar ásamt mér
voru Ólafur Páll Jónsson og Herm-
ína Gunnþórsdóttir og fengum við 17
íslenska fræðimenn til að skrifa um
rannsóknir sínar á þessu sviði hér á
landi. Að því leyti er þessi bók bæði
skemmtileg og tímamótaverk.
„Sonur minn, Benedikt, fæddist
1980 mikið fatlaður. Þá þarf maður
að læra upp á nýtt hvað það er að
vera maður og hvað skiptir raun-
verulega máli. Frá upphafi var ég
staðráðin í að hann ætti erindi í sam-
félag okkar allra. Saman höfum við
farið um heiminn, búið í þremur
heimsálfum og sex löndum þar sem
ég hef verið að læra og vinna. Af-
drifaríkust var dvöl okkar við Syra-
cuse-háskóla í Bandaríkjunum en
þar kynntist ég þeim hugmyndum
sem ég hef síðan gert að mínum.
Sonur minn var nánast alltaf í al-
mennum skólum, hér með ráðherra-
leyfi Birgis Ísleifs í Æfingaskóla
Kennaraháskólans þar sem hann
eignaðist góða vini og félaga sem enn
tengjast lífi hans. Hann á nú íbúð á
Melunum, hæfilega langt frá móður
sinni, þar sem hann býr með jafn-
öldrum, þremur aðstoðarmönnum
sem hjálpa honum til skiptis. Hann á
bíl, vinnur í miðasölunni upp í Hall-
grímskirkjuturn, ferðast og nýtur
lífsins.
Mér finnst gott að verja tíma með
syni mínum. Við Benedikt förum
mikið á tónleika, allt frá Moses High-
tower til Þóru Einarsdóttur, og hann
er áskrifandi að Sinfóníutónleikum.
Við ættum bæði erfitt með að lifa án
tónlistarinnar.
Nú þegar ég er orðin frí og frjáls
frá háskólanum hef ég ákveðið að
spreyta mig á nýju verkefni. Ég ætla
að reyna að skrifa sögu þriggja
óvenjulegra kvenna sem tengjast Ís-
landi og fjölskyldu minni. Best er að
segja ekki meira um það í bili.“
Fjölskylda
Sonur Dóru er Benedikt Hákon
Bjarnason, f. 22.12. 1980, starfs-
maður í Hallgrímskirkju.
Systkini Dóru eru Ingibjörg
Bjarnason, f. 11.4. 1951, leikstjóri, og
Ingi Þorleifur Bjarnason, f. 17.7.
1959, jarðeðlisfræðingur og rann-
sóknarprófessor við Háskóla
Íslands.
Foreldrar Dóru voru Ingi Hákon
Bjarnason, f. 30.6. 1914, d. 27.12.
1958, efnaverkfræðingur í Reykja-
vík, og k.h. Steinunn Ágústa Jóns-
dóttir, f. 22.5. 1923, d. 7.2. 2017,
gjaldkeri í Reykjavík.
Úr frændgarði Dóru S. Bjarnason
Dóra S.
Bjarnason
Guðrún Jónsdóttir
húsfreyja á Sigurvöllum
Guðmundur
Þorsteinsson
bóndi á Sigurvöll-
um á Akranesi
Halldóra Guðmundsdóttir
húsfr. í Reykjavík
Jón Þorvarðarson
kaupmaður í Verðanda í Rvík
Steinunn Ágústa Jónsdóttir
gjaldkeri í Reykjavík
Ragnheiður
Einarsdóttir
húsfreyja í Reykjavík
Þorvarður Daníelsson
vegaverkstjóri og sjómaður í Rvík
Karilla
Andersen
húsfreyja í
Nyköping í
Danmörku
Leifur Bjarnason hagfr.
og frkvstj. SÍS í New York
Ingibjörg Stein Bjarnason
myndlistarmaður í Berlín,
París, Rvík og Buenos Aíres
Guðmundur Jónsson óperusöngvari
Ingibjörg H. Bjarnason fyrsta alþing-
iskonan og skólastj. Kvennaskólans
Jón Halldór Jónsson forstjóri í Keflavík
Ágúst H. Bjarnason prófessor og rektor Háskóla Íslands
Brynjólfur H. Bjarnason kaupmaður í Rvík
ÞorvarðurJónsson járnsmiður,dó ungur af slysförum
Lárus H. Bjarnason sýslumaður og alþingismaður
Ragnheiður Jónsdóttir húsfr. í Hafnarfirði
Gunnar Jónsson verslunarmaður
Karitas Markúsdóttir
húsfr. í Arnarbæli
Ísleifur Gíslason
prestur í Arnarbæli í Ölfusi
Sigrún Isleifsdóttir
húsfreyja í Rvík
Þorleifur H. Bjarnason
yfirkennari og rektor við Hinn al-
menna menntaskóla í Reykjavík
Ingi H. Bjarnason
efnaverkfræðingur í Reykjavík
Jóhanna Kristín
Þorleifsdóttir
húsfreyja á Bíldudal
Hákon Bjarnason
kaupmaður í Flatey á Breiðafirði og síðar á Bíldudal
Sonurinn Benedikt Hákon.
ÍSLENDINGAR 77
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 20. JÚLÍ 2017
95 ára
Veronika Pétursdóttir
90 ára
Arndís Magnúsdóttir
Guðmundur Vagnsson
Ingibjörg Einarsdóttir
Pétur Jónsson
85 ára
Guðbjörg M. Hjörleifsdóttir
Petrína Benediktsdóttir
Ragnar Áki Jónsson
80 ára
Brynhildur Ingjaldsdóttir
Elín Guðmundsdóttir
Guðbjörg Pálsdóttir
Sigurður Þorkelsson
Þorgerður Sveinbjarnard.
75 ára
Björn Árnason
Erlingur Runólfsson
Halldór Karel Jakobsson
Júlía Sjöfn Sigurjónsdóttir
Sigríður Jónsdóttir
70 ára
Auður Helga Hafsteinsd.
Bertha Steinunn Pálsdóttir
Einar Jóhann Guðleifsson
Hermína Ósk Valgarðsd.
Héðinn Jónasson
Hulda Sigurvinsdóttir
Markús Ívarsson
Ragnheiður Ósk Friðgeirsd.
Sigurður Örn Hansson
Snorri Sævar Konráðsson
Sólveig Hannam
Vilhelm Þ. Árnason
Þórarinn Einarsson
60 ára
Ásmundur Jónasson
Frosti Frostason
Guðjón Egilsson
Guðrún Soffía Karlsdóttir
Gunnar Smári Helgason
Hans Egilsson
Hrafnhildur Karlsdóttir
Ingibjörg R. Kristinsdóttir
Kristjana S. Kristinsdóttir
Ólafur Brynjar Halldórsson
Stefán Jónsson
Sverrir Ásgrímsson
50 ára
Andrea Klara Hauksdóttir
Arnar Sigurjón Árnason
Auður Finnbogadóttir
Ásmundur Ö. Guðmundss.
Brynja Ósk Stefánsdóttir
Brynjar Þór Árnason
Hafdís Ósk Víðisdóttir
Helga Guðmundsdóttir
Hrönn Sturludóttir
Kristín Gunný Jónsdóttir
Kristín Stefánsdóttir
Óskar Örn Ólafsson
Sigrún Jónsdóttir
Stefán Úlfarsson
Sveinn Ólafur Arnórsson
Viktor Jens Vigfússon
Þorsteinn H. Þorgeirsson
Þorsteinn Torfason
40 ára
Daníel Rafn Guðmundsson
Sveinn Aðalst. Bjarnason
Tómas Hafliðason
30 ára
Árni Rúnarsson
Benjamín Ingólfsson
Dagný Lind Jakobsdóttir
Dóra Steinunn Jóhannsd.
Freydís Þrastardóttir
Hans Niklas Tingström
Óskar Halldórsson
Rúnar Ingi Guðjónsson
Stefán Arnórsson
Svava Kristjánsdóttir
Þorsteinn Ívar Þorsteinss.
Til hamingju með daginn
30 ára Birkir er Akureyr-
ingur en býr í Reykjavík.
Hann er byggingafræð-
ingur hjá Arkþing arki-
tektum.
Maki: Elsa Sveinsdóttir, f.
1984, uppeldisfræðingur.
Börn: Ísafold Esja, f. 2011,
og Arney Elísabet, f.
2016.
Foreldrar: Árni Þorgils-
son, f. 1958, vélvirki, og
Guðrún Brynja Sigurðar-
dóttir, f. 1954, kennari í
Lundarskóla á Akureyri.
Birkir
Árnason
30 ára Eyrún er Hafnfirð-
ingur og er hársnyrtir á
Barbarellu í Reykjavík.
Maki: Kjartan Hreinn
Njálsson, f. 1987, frétta-
maður á 365.
Börn: Jónína Hugborg, f.
2013.
Foreldrar: Guðmundur
Friðbjörn Eiríksson, f.
1959, rafmagnsverkfr. hjá
Landsneti, og Brynja Guð-
mundsdóttir, f. 1963,
verslunarstjóri hjá
Timberland í Kringlunni.
Eyrún
Guðmundsdóttir
30 ára Ingibjörg er Grund-
firðingur og er kennari í
Grunnskóla Grundarfjarðar.
Maki: Runólfur Jóhann
Kristjánsson, f. 1985, skip-
stjóri á Hamri frá Rifi.
Börn: Kristján Pétur, f.
2012, og Hilmar Örn, f.
2014.
Foreldrar: Bergvin Sævar
Guðmundsson, f. 1961, sjó-
maður í Grundarfirði, og El-
ínborg Þorsteinsdóttir,
1966, vinnur í Landsb. í
Ólafsvík.
Ingibjörg Eyrún
Bergvinsdóttir
Örn Arnaldsson hefur varið dokt-
orsritgerð sína við stærðfræðideild
University of Minnesota. Ritgerðin
ber heitið Sjálfhverfir hreyfi-
grunnar (Involutive Moving Fram-
es). Leiðbeinandi var Peter Olver,
prófessor við stærðfræðideildina.
Í ritgerðinni var staðfest tilgáta
franska stærðfræðingsins Élies
Cartans um endanleika jafngild-
isaðferðar hans, en tilgátan var
sett fram á fjórða áratug tutt-
ugustu aldar.
Þá kynnti ritgerðin til leiks nýja
jafngildisaðferð sem samtvinnar
aðferð Cartans og aðferð hins jafn-
breytta hreyfigrunns fyrir gervi-
grúpur, en þá síðari uppgötvaði
leiðbeinandi Arnar árið 2008. Hin
nýja jafngildisaðferð, sem var
nefnd Aðferð hins sjálfhverfa
hreyfigrunns, er töluvert skilvirkari
en forverar hennar tveir og getur
leyst jafngild-
isvandamál sem
áður þóttu of
reiknislega þung.
Frá sjónarhóli
hinnar nýju að-
ferðar verða
ýmsar þungar
setningar auð-
veldar, svo sem
setning Lie-Tresses og ok-
stöðusetningin um diffranlegar
óbreytur.
Til að ná fram meginnið-
urstöðum sínum þróaði Örn reikni-
rit sem finnur Pommaret-grunna
fyrir margliðumótla, sannaði útgáfu
af hinni klassísku Cartan-
Kuranishi-setningu og alhæfði
klassíska setningu um samsniða
hlutvíðáttur í Lie-grúpum svo að
hún næði líka til hinna óendanlega
víðu Lie-gervi-grúpa.
Örn Arnaldsson
Örn Arnaldsson er Reykvíkingur, fæddur árið 1984. Hann lauk námi af eðlis-
fræðibraut MR árið 2004, hlaut MS-gráðu í stærðfræði frá HÍ árið 2010 og MS-
gráðu í hagnýtri stærðfræði frá University of Washington árið 2013. Örn hyggur á
áframhaldandi stærðfræðirannsóknir og er í umsóknarferli fyrir rannsóknar-
stöður í háskólum fyrir næsta skólaár. Þá veitir hann ráðgjafarþjónustu fyrir líf-
eyrissjóði vegna tryggingafræðilegrar stöðu þeirra. Örn er kvæntur Ástu Mar-
gréti Sigurðardóttur lögfræðingi og eiga þau eina dóttur, Björk.
Doktor
)553 1620
Lauga-ás hefur
frá 1979 boðið
viðskiptavinum
sínum upp á úrval
af réttum þar sem
hráefni, þekking
og íslenskar
hefðir hafa verið
höfð að leiðarljósi.
Laugarásvegi 1, 104 Reykjavík
laugaas@laugaas.is • laugaas.is
Við bjóðum m.a. upp á:
Súpur
Grænmetisrétti
Pastarétti
Fiskrétti
Kjötrétti
Hamborgara
Samlokur
Barnamatseðil
Eftirrétti