Morgunblaðið - 20.07.2017, Síða 79
DÆGRADVÖL 79
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 20. JÚLÍ 2017
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Þú átt að standa fast á þínu og ekki
láta hvern sem er vaða yfir þig á skítugum
skónum. Gakktu bara í verkið og þú munt
undrast hversu auðvelt það er.
20. apríl - 20. maí
Naut Láttu rólegheit annarra ekki fara í taug-
arnar á þér því allir þurfa sinn tíma og það er
ekki á þínu valdi að breyta því. Nú er tími til
að slappa af og síðan skaltu vinna úr hlut-
unum.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Þú þarft á nánum samböndum að
halda og ættir því að leita leiða til að bæta
sambönd þín. Inn- og útganga nýrra persóna
hrindir heppilegri atburðarás af stað.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Vertu ekki að pukrast þetta úti í
horni. Einbeittu þér að því að tala hreint út
um hlutina frekar en byrgja þá inni. Með því
ertu fljótur að finna lausnirnar því aðrir hafa
mikið til málanna að leggja.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Það er mikil orka í loftinu sem þú þarft
að reyna að nýta á jákvæðan hátt. Deildu ein-
hverju persónulegu. Með því skilar orkan sér
beint aftur til þín og gefur þér aukna fyllingu í
lífið.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Þú færð að reyna sitthvað nýtt sem
hefur varanleg áhrif á líf þitt. Leyndardóms-
fullar spurningar leita á hugann. Rasaðu ekki
um ráð fram á lokasprettinum.
23. sept. - 22. okt.
Vog Þú lendir í þeirri aðstöðu að yfirráð þín
eru dregin í efa. Leggðu allt kapp á að finna
farsæla lausn svo þú getir sofið rólegur.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Ekki er víst að allt sem ljónið er
að fást við takist í fyrstu atrennu. Fjarlægðu
stressið, með því hverfur tilhneigingin til
þess að fara yfir strikið.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Þú færð furðulegar hugmyndir,
og sumar þeirra virka ekki. Vertu því ekki
smeykur þótt þér sýnist margt snúið við
fyrstu sýn.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Aðstæður dagsins eru dæmdar til
þess að bjóða heim misskilningi og ágengni.
Hentu því sem þú þarft ekki og þrífðu.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Fæstir njóta velgengni án hjálpar
annarra. Til þess að samband geti gengið vel
verður þú að vera eins góður félaga þínum og
hann er þér.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Allt hefur sinn tíma og það á líka við
um góða hluti og slæma. Taktu boðinu og þú
munt sjá áhrifamátt fyrirgefningarinnar.
Helgi R. Einarsson skrifaði mérfyrir helgi, – var úti í Bíldsey á
Breiðafirði að rýja fé:
Til Bíldseyjar sigldi bátur,
menn brostu og glumdi við hlátur.
Allt siðan breyttist
og áhöfnin þreyttist
er eltist við sauðþráar skjátur.
Engir lengur hér aldur sinn ala
og því ekkert er vert um að tala.
Þó seli og fé
og fugla ég sé,
sem fallega’ í núinu hjala.
Þar sem veðrið er svo gott, stafa-
logn og 14° hér í Reykjavík og 12° fyr-
ir vestan þegar þetta er skrifað þótti
mér rétt að rifja upp „Lysthúskvæði“
eftir Eggert Ólafsson og hygg ég
flestir kunni eða þekki fyrsta erindið:
Undir bláum sólar sali
Sauðlauks- uppi í lygnum -dali
fólkið hafði af hanagali
hvörsdags skemmtun bænum á,
fagurt galaði fuglinn sá:
og af fleiri fugla hjali
frygð um sumarstundir;
listamaðurinn lengi þar við undi.
Úr þessari rómantík þótti mér
freistandi að bregða mér austur á
Langanes að heyra í Páli Jónassyni
æðarbónda í Hlíð sem hefur frá fugl-
um að segja og orti þrjár hanalimrur
í lotunni:
Haninn á Máfamýri
var monthani, Drottinn minn dýri,
uns minknum hann mætti
sem varirnar vætti
og úti var ævintýri.
Haninn á Hænufossi
er helvíti mikill bossi,
svo orðunefnd fer,
sem eðlilegt er,
að heiðra ‘ann með hanakrossi.
Haninn sem kunni ekki á klukku
á Kántrýbæ gerði enga lukku,
hann morgunhress gól,
þegar sigin var sól,
og heimtaði kaffi í krukku.
Helgi fer víðar:
Út um þingeyska mela og móa
flýgur mjúkrödduð heimkomin lóa.
Syngur sprellfjörugt lag
um þann spaugsama dag
þegar hitti hún sporléttan spóa.
Þessi limra er um „hugástir“:
Í huganum lóuna lagði
lómurinn glaður í bragði,
en eitt er að þrá
og annað að fá
eins og kerlingin sagði.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Fyrir vestan og þaðan
austur á Langanes
Í klípu
„JÁ, VIÐ HÖFUM KOMIST AÐ NIÐUR-
STÖÐU. OG, TIL ÞESS AÐ GERA MIKIÐ ÚR
STUNDINNI, TÖLDUM VIÐ ÞAÐ SNIÐUGT
EF VIÐ VÆRUM ÖLL Í RÖNDÓTTU Í DAG.”
eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger
„HAFÐU AFTUR EFTIR MÉR: „DÁLEIÐSLA ER
VIRÐI FIMMÞÚSUNDKALLS Á TÍMANN“.“
Hermann
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... þar sem kraftaverkin
gerast.
ÉG GLEYMI ÞVÍ ALLTAF
HVAÐA DAGUR ER Í DAG
ÉG SÉ ENGA MYND AF
ÞÉR HÉRNA, VINUR!
HÉRNA, SJÁÐU DAGATAL
MEÐ SÆTUM KÖTTUM
ÞAÐ ER ÉG! HEPPNI EDDI! ÉG
KEYPTI ÞESSA BRYNJU ÚR DÁNARBÚI!
ÉG GERÐI EINA
BREYTINGU Á HENNI…
… FYRIR ÞAU SKIPTI SEM ÉG
VIL FLÝJA HRATT AF HÓLMI!
Sjónvarpsgláp er Víkverja eðl-islægt. Ein fyrsta æskuminning
hans tengist sjónvarpi, en Víkverji,
sem litli feiti krakkinn sem hann var,
horfði ótæpilega á He-Man-
teiknimyndir og annað afþreying-
arefni þegar hann var barn. Áhorfið
skilaði sér síðan margfalt til baka,
sem sást best á því að ólíkari menn í
útliti en He-Man og Víkverja var
vart að finna. Er Víkverji enn að
reyna að bæta þann samanburð sér í
hag með því að mæta reglulega í
ræktina, en við litla velgengni.
x x x
Æskuminningin gamla er hinsvegar allt að því „trámatísk“,
þar sem Víkverji ákvað einn góðan
veðurdag að kveikja á sjónvarpinu
og horfa á teiknimyndirnar. Á þeim
tíma tók það sjónvarpið smátíma að
birta mynd, en það er staðreynd sem
lætur „krakka“ nútímans oft hvá.
„Ha, þurfti að bíða áður en kviknaði
á sjónvarpinu?“ Ójá. Og meðan á
þeirri bið stóð var lítið annað fyrir
Víkverja að gera en að vappa þung-
um skrefum í átt að leðurhornsóf-
anum og fá sér sæti. Og þá var
myndin samt ekki komin enn.
x x x
Þegar sú stund loks rann upp varðVíkverji hins vegar fyrir sárum
vonbrigðum, því ekkert sjást á skján-
um annað en stillimyndin og svo
skerandi píp. Móðir Víkverja kom og
útskýrði vandann fyrir honum: „Vík-
verji minn, það er sko fimmtudagur.
Þú verður bara að fara út að leika
þér.“ Sárari orð gat Víkverji varla
heyrt, illa svikinn af vini sínum, sjón-
varpinu. Ekkert sjónvarp á fimmtu-
dögum eða í júlí. Þvílík martröð!
x x x
Þetta rifjar Víkverji nú upp í ljósiþess að með nútímasjónvarps-
tækni þarf Víkverji og hans fólk aldr-
ei að fara út að leika sér frekar en
það vill. Heilu sjónvarpsseríunum er
streymt í gegnum netið og tíðkast
jafnvel að allir þættir í seríunni séu
„frumsýndir“ á sama degi, þannig að
þeir sem hafa tíma og nennu til geta
jafnvel klárað seríuna innan sólar-
hrings frá því hún kom út. Nú er hún
Snorrabúð stekkur, segir Víkverji
bara. vikverji@mbl.is
Víkverji
Treystu Drottni af öllu hjarta en
reiddu þig ekki á eigið hyggjuvit.
(Orðs. 3:5)
Eyjasandi 2, 850 Hella - Víkurhvarfi 6, 203 Kópavogi, sími 488 9000 - samverk.is
ÞEKKING - GÆÐI - ÞJÓNUSTA
SÉRSMÍÐUM ÚR GLERI
SPEGLAR
Framleiðum spegla eftir máli og setjum upp.