Morgunblaðið - 20.07.2017, Síða 86
86 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 20. JÚLÍ 2017
Glæsilegur veitingastaður á Hótel Örk. Vandaður matseðill og hlýlegt umhverfi.
Pantaðu borð í síma 483 4700 eða á hverrestaurant.is
VIÐTAL
Þorgerður Anna Gunnarsd.
thorgerdur@mbl.is
„Rökkur er dramatísk ráðgátu-
hrollvekja með samkynhneigðu
tvisti,“ segir Erlingur Óttar Thor-
oddsen, leikstjóri, handritshöfundur
og framleiðandi nýrrar íslenskrar
kvikmyndar sem von er á í kvik-
myndahús 27. október næstkom-
andi. Kvikmyndin hefur þegar ver-
ið sýnd á kvikmyndahátíðum í
Gautaborg og München og þegar
blaðamaður heyrði í Erlingi var
hann á leið í flug til Los Angeles
þar sem kvikmyndin Rökkur, eða
Rift eins og hún kallast á ensku,
verður frumsýnd í Bandaríkjunum
á hátíð sem kallast Outfest og gef-
ur sig út fyrir að vera ein stærsta
hinsegin kvikmyndahátíð heims.
Erlingur segir myndina fjalla um
tvo unga menn sem voru eitt sinn
par en eru hættir saman þegar
myndin hefst. „Hún byrjar þannig
að annar aðilinn í sambandinu
hringir í hinn um miðja nótt þar
sem hann er staddur í sumarhúsi
og hljómar eins og eitthvað mikið
sé að, eins og hann sé að fara að
gera eitthvað slæmt við sjálfan sig.
Hinn brunar upp á Snæfellsnes til
þess að reyna að bjarga honum en
þegar hann er kominn á staðinn
uppgötvar hann að það er eitthvað
allt annað í gangi.“
Rökkur er ekki fyrsta hrollvekja
Erlings en hann hefur áður gert
kvikmyndina Child Eater sem varð
til út frá lokaverkefni hans í kvik-
myndagerð í Columbia-háskólanum
í New York. „Ég hef verið mikið á
flakki á milli Íslands og New York
síðan ég kláraði námið. Lokaverk-
efnin mín voru tvær stuttar hroll-
vekjur, Child Eater og The Ban-
ishing, sem gekk báðum vel á
kvikmyndahátíðum og hlutu nokkur
verðlaun.“
Í kjölfarið segist hann hafa farið
í samstarf við framleiðandann sem
gerði Child Eater með honum,
Perri Nemiroff, og þau hafi ákveðið
að láta reyna á að gera myndina í
fullri lengd. „Okkur tókst það ein-
hvern veginn, ótrúlegt en satt, og
myndin kom út fyrir tæpu ári,“
segir Erlingur.
„Þegar ég var krakki fór ég aldr-
ei leynt með hvað mig langaði til að
gera. Áður en ég fór út í kvik-
myndagerðina lærði ég bókmennta-
fræði við Háskóla Íslands. Ég held
það hafi verið mjög góður grunnur,
að læra inn á frásagnarlistina.“
Hræddur um að enginn kæmi
Erlingur segir Rökkur hafa feng-
ið góðar viðtökur bæði í Gautaborg
og München og að uppselt hafi ver-
ið á sýningarnar. „Ég hafði svolitl-
ar áhyggjur af því að enginn myndi
koma og sjá myndina því ég er
ekki þekkt nafn og þótt leikararnir
séu kannski þekktir á Íslandi eru
þeir það ekki erlendis. Það var því
mjög gaman að mæta á staðinn og
sjá troðfullan sal,“ segir Erlingur.
Hann segir myndina líka skilja eft-
ir margar spurningar, sem sé
ætlunin. „Ég er sérstakur aðdáandi
mynda sem innihalda ráðgátur sem
eru ekki endilega fullkomlega leyst-
ar og skilja mann eftir í lausu
lofti.“
Eftir sýningarnar hefur hann
ásamt öðrum aðstandendum mynd-
arinnar svo svarað spurningum frá
áhorfendum. „Það er mikið hægt að
tala um og mín upplifun hefur verið
sú að áhorfendur fíli þetta rosalega
vel. Ég hef líka setið í salnum og
séð hvernig fólk bregst við óhugn-
anlegu atriðunum og bregðu-atrið-
unum. Það er mjög skemmtilegt.“
Stærsta hinsegin
kvikmyndahátíðin
Erlingur segir að í eitt skipti hafi
liðið yfir konu á sýningunni en þor-
ir ekki að fullyrða af hvaða ástæð-
um það var; hvort það hafi verið
vegna þess hve óhugnanleg myndin
var eða einhvers annars. Hann tek-
ur þó fram að það hafi verið í lagi
með konuna eftir aðhlynningu
lækna og sjúkraflutningamanna.
Erlingur hlakkar til að fara með
myndina á Outfest, bæði vegna
þess að þetta er frumsýning á
henni í Bandaríkjunum og vegna
þess að þetta er ein stærsta LGBT-
kvikmyndahátíð í heiminum.
„Það er sjaldgæft í íslenskum
kvikmyndum að fjallað sé um sam-
kynhneigða karlmenn þótt það hafi
kannski aðeins verið að breytast
upp á síðkastið. Í Rökkri er sam-
band tveggja karlmanna í for-
grunni. Mér hefur alltaf fundist
svolítið áhugavert að þrátt fyrir að
standa framarlega í réttindabáráttu
samkynhneigðra hefur kvikmynda-
listin ekki fjallað mikið um sam-
kynhneigð. Þetta er fyrsta íslenska
myndin mín og ég var mjög með-
vitaður um að gera eitthvað til þess
að breyta þessu og skrifaði hand-
ritið með það í huga,“ segir Erling-
ur.
Þess má geta að Rökkur hlaut
verðlaun á Outfest sem listrænt af-
rek (2017 Programming Award for
Artistic Achievement), eftir að við-
talið var tekið.
Dagsetningin virkar
fullkomlega
Nýlega var dreifingarréttur kvik-
myndarinnar í Bandaríkjunum
seldur til dreifingarfyrirtækisins
Breaking Glass Pictures og ætlar
það að koma myndinni á markað í
vetur. Erlingur býst við að það
verði um svipað leyti og Rökkur
kemur í kvikmyndahús á Íslandi.
Um ástæður þess að myndin er
frumsýnd svo seint hér á landi seg-
ir hann að þau hafi langað að at-
huga fyrst hvort hægt væri að
koma henni á kvikmyndahátíðir.
„Þetta er ódýr kvikmynd og við
höfum ekki mikinn auglýsinga- eða
markaðskostnað svo okkur langaði
til að vekja athygli á henni með
þessum hætti fyrst. Við vildum
heldur ekki vera í samkeppni við
aðrar íslenskar myndir svo við
ákváðum þessa dagsetningu í sam-
ráði við Senu,“ segir Erlingur að
lokum. „Svo fannst okkur líka
passa betur að sýna hana um vetur
upp á stemninguna í myndinni svo
þetta virkar fullkomlega.“
Morgunblaðið/Eggert
Með tvisti „Rökkur er dramatísk ráðgátuhrollvekja með samkynhneigðu tvisti,“ segir Erlingur Óttar Thoroddsen.
Úr Rökkri Með aðalhlutverk í myndinni fara Björn Stefánsson og Sigurður Þór Óskarsson.
„Fór aldrei
leynt með
hvað mig lang-
aði til að gera“
Ný íslensk hrollvekja í kvikmynda-
hús í október Önnur kvikmynd leik-
stjórans Erlings Óttars í fullri lengd