Morgunblaðið - 20.07.2017, Blaðsíða 92

Morgunblaðið - 20.07.2017, Blaðsíða 92
FIMMTUDAGUR 20. JÚLÍ 201. DAGUR ÁRSINS 2017 VEÐUR » 8 www.mbl.is 5 6 9 1 1 0 0 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100 mbl.is: netfrett@mbl.is Í LAUSASÖLU 548 KR. ÁSKRIFT 5.950 KR. HELGARÁSKRIFT 3.715 KR. PDF Á MBL.IS 5.277 KR. I-PAD ÁSKRIFT 5.277 KR. 1. Ferðamaður féll í Gullfoss 2. Skjaldarmerkið birt á rangan … ? 3. Á brjóstahaldaranum á … 4. „Leitað með öllum ráðum og …“ »MEST LESIÐ Á mbl.is FÓLK Í FRÉTTUM  Brynhildur Guðjónsdóttir, Vala Kristín Eiríksdóttir, Valur Freyr Ein- arsson og Þórunn Arna Kristjáns- dóttir eru orðin vel þjálfuð í söng- leikjaforminu eftir að hafa sýnt 188 sýningar á Mamma mia! Öll verða þau með í næsta söngleik sem Borg- arleikhúsið setur upp, þ.e. Rocky Horror í leikstjórn Mörtu Nordal, sem frumsýndur verður í mars. Brynhildur og Vala leika Magentu og Columbiu, Valur Freyr er sögumaðurinn og Þór- unn Janet. Með hlutverk Brads fer Arnmundur Ernst Backman. Atli Rafn Sigurðarson leikur Riff Raff, Haraldur Ari Stefánsson er Rocky og Katla Margrét Þorgeirsdóttir Dr. Scott. Eins og fram hefur komið bregður Páll Óskar sér í hlutverk Frank–N– Furter 27 árum eftir að hann lék hlut- verkið með Leikfélagi MH. Morgunblaðið/Eva Björk Fara úr einum söngleik í annan  Duo Atlantica, skipað söngkonunni Guðrúnu Jóhönnu Ólafsdóttur og gít- arleikararanum Francisco Javier Jáu- regui, heldur tónleika í kvöld kl. 20.30 í tónleikaröðinni Arctic Con- certs í Iðnó. Dúettinn mun flytja þjóðlög frá Evrópu og eru tónleikarn- ir haldnir í minningu föður Guðrúnar, Ólafs H. Torfasonar, sem lést í vik- unni. Duo Atlantica hefur starfað í 15 ár og komið fram á tón- list- arhátíðum í Evrópu, Bandaríkj- unum og Afríku. Duo Atlantica flytur evrópsk þjóðlög Á föstudag, laugardag og sunnudag Suðaustlæg eða breytileg átt og skýjað með köflum, en dálítil væta við S- og V-ströndina. Hiti víða 12 til 17 stig, en yfir 20 stigum inn til landsins. SPÁ KL. 12.00 Í DAG Austan og suðaustan 8-18 m/s, hvassast úti við SA-ströndina, en lægir heldur í kvöld. Hiti víða 10 til 18 stig, en allt að 25 stigum NA-lands að deginum. VEÐUR Tveir leikmenn sem léku í 1. deild í fyrra hafa sett mest- an svip á Pepsi-deild karla í knattspyrnu það sem af er þessu keppnistímabili. Þeg- ar keppnin er hálfnuð eru þeir Andri Rúnar Bjarnason, sóknarmaður Grindvíkinga, og Hallgrímur Mar Stein- grímsson, kantmaður KA- manna, í tveimur efstu sætunum í M-gjöfinni, einkunnagjöf Morgun- blaðsins. »4 Þeir bestu komu beint úr 1. deild „Ég er auðvitað stolt, en ég er alltaf stolt þegar ég spila fyrir íslenska landsliðið. Mér leið ekki þannig í gær að þetta væri einhvers konar „come- back“. Ég var bara mjög einbeitt í því að ég væri að fara að spila lands- leik. Þegar ég geri það legg ég allt í sölurnar. Ég var bara í fót- bolta, að spila landsleik og ætlaði mér að skilja allt eftir á vellinum,“ segir Harpa Þorsteins- dóttir. »2 Ég var bara í fótbolta að spila landsleik „Ég sé alveg fyrir mér að við getum spilað um verðlaunasæti ef við hitt- um á góða leiki og spilum þessa vörn sem við höfum gert síðustu tvo leiki,“ segir körfuboltamaðurinn Tryggvi Snær Hlinason en U20 ára landsliðið í körfubolta er komið í átta liða úrslit Evrópumótsins á Krít eftir að hafa burstað Svía í gær og mætir Ísrael í dag. » 1 Við getum spilað um verðlaunasæti ÍÞRÓTTIR Skannaðu kóðann með símanum þínum og fylgstu með veðrinu á að gera Hólmavík að betri bæ, bæði fyrir íbúa og ferðamenn. Í því skyni söfnuðu ungmennin saman hátt í eitt hundrað hugmyndum að úrbótum í bænum og kennir þar ýmissa grasa. Vatnsrennibraut í sundlaugina, útsýn- ispallur upp á vatnstankinn og fleiri skilti fyrir ferðamenn er meðal þeirra hugmynda sem nú verða teknar fyrir innan bæjarins. Þá fór mikil vinna í að undirbúa Náttúrubarnahátíð sem fram fer undir lok mánaðar og mætti kalla nokkurs konar uppskeruhátíð Náttúrubarna- skólans þar sem krökkunum gefst færi á að kynna starfsemina fullorðnum gestum og gangandi. Hátíðin hefst með því að gestir fremja veðurgaldur til að tryggja að gott veður fáist alla helgina en slíkt er lykilatriði enda fer hátíðin að mestu fram utandyra. Á dagskrá eru meðal annars sjósund, ýmsar smiðjur, náttúrujóga og kennsla í jurtalitun, auk þess sem Svavar Knútur og hljómsveitin Ylja skemmta gestum á tónleikum. Alexander Gunnar Kristjánsson alexander@mbl.is „Þegar þetta var að byrja fór ég í ferð- ir með náttúrufræðingum, veðurfræð- ingum og fleirum. Þeir sögðu mér allt sem þeir vissu og svo reyni ég að miðla því til krakkanna.“ Þetta segir Dagrún Ósk Jónsdóttir, umsjónarmaður Nátt- úrubarnaskólans í Strandabyggð og yfirnáttúrubarn. Náttúrubarnaskólinn er sumarnámskeið sem starfrækt hef- ur verið á Sauðfjársetrinu á Ströndum í nágrenni Hólmavíkur í þrjú sumur. Í skólanum fræðast börnin um náttúr- una frá ýmsum sjónarhornum. „Við bruggum jurtaseyði, skoðum fugla, búum til fuglahræður, sendum flöskuskeyti og fleira,“ segir Dagrún. Flestir þátttakendur eru frá Hólmavík og sveitinni í kring, en Dagrún segir einnig eitthvað um að krakkar komi lengra að og stundum kíki börn í heim- sókn sem eru á ferðalagi með for- eldrum sínum. Venjulega fer starfsem- in fram í sirkustjaldi fyrir utan Sauð- fjársetrið en búið var að taka það saman er blaðamann bar að garði þar sem stormur var í aðsigi. Dagrún stundar meistaranám í þjóðfræði við Háskóla Íslands og býr í borginni á veturna. Meðal viðfangsefna þjóðfræð- innar eru sögur, atvinnuhættir, tónlist og ýmsir siðir og venjur. Hún segir náttúruna aldrei langt undan í þjóð- fræðinni enda ekki langt síðan þjóðin lifði öll á náttúrunni. Þjóðsögur eru í sérstöku uppáhaldi hjá Dagrúnu og hún er dugleg að deila þeim með börn- unum. Börnin bæta bæinn Sumarnámskeiðin eru ekki það eina sem Dagrún tekur sér fyrir hendur á vettvangi Náttúrubarnaskólans því hún sér einnig um skapandi sumar- störf á Hólmavík, en þau eru hluti af unglingavinnu bæjarins sem börnum í efstu bekkjum grunnskólans býðst að taka þátt í. Ýmiss konar verkefni voru unnin í skapandi sumarstörfum en þeim er nú lokið þetta sumarið. Lögð var áhersla á að virkja sköpunarkraft ungmennanna með það að markmiði Náttúrubörn á Hólmavík  Fræða börn um náttúruna frá ýmsum sjónarhornum  Taka þátt í að móta bæinn með skapandi sumarstörfum  Halda uppskeruhátíð í lok mánaðar Ljósmynd/Dagný Ósk Jónsdóttir Náttúrubarnaskólinn Öryggið var að sjálfsögðu í fyrirrúmi hjá krökkunum sem léku sér í rekaviðnum. Í náttúrunni Dagrún Ósk Jónsdóttir. Sauðfjársetrið er í um tíu kílómetra akstursfjarlægð frá Hólmavík, með frábært útsýni yfir Steingrímsfjörðinn. Á setrinu er safn og heitir fasta- sýning þess Sauðfé í sögu þjóðar, en jafnan eru allt að fjórar sýningar í gangi hverju sinni. Auk þess að hýsa Náttúrubarnaskólann er þar rekið hið blómlega kaffihús Kaffi Kind og handverks- og minjagripabúð. Sauðfjársetrið ÚTVÖRÐUR STEINGRÍMSFJARÐAR
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.