Morgunblaðið - 21.07.2017, Síða 11
FRÉTTIR 11Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 21. JÚLÍ 2017
Vertíð skemmtiferðaskipanna mun
ná hámarki á næstunni. Á miðviku-
daginn voru þrjú skemmtiferðaskip
samtímis í Sundahöfn í Reykjavík.
Um borð voru rúmlega 5.500 farþeg-
ar og í áhöfn skipanna rúmlega 2.200
manns.
Skipin sem um ræðir voru Mein
Schiff 4, sem er 99.430 brúttótonn,
Sea Princess, 77.500 tonn, og Aida-
vita, sem er 42.300 tonn. Brúttó-
tonnafjöldinn var því vel yfir 200 þús-
und.
Á morgun, laugardag, er skemmti-
ferðaskipið Norwegian Jade vænt-
anlegt í sína fyrstu heimsókn til
Reykjavíkur. Skipið er 93.558 brúttó-
tonn, farþegar eru 2.466 og í áhöfn
eru 1.076. Það mun leggjast að
Skarfabakka klukkan átta að morgni.
Síðan gerist merkilegur atburður á
Akranesi sunnudaginn 30. júlí.
Þann dag kemur fyrsta skemmti-
ferðaskipið til bæjarins. Það er
franskt og heitir Le Boreal, tæplega
11 þúsund brúttótonn að stærð.
Eins og staðan er núna er reiknað
með 133 skipakomum til Reykjavíkur
í sumar, samkvæmt upplýsingum
Ernu Kristjánsdóttur, markaðsstjóra
Faxaflóahafna. Til samanburðar voru
skipakomur 114 í fyrra.
Alls komu 98.676 farþegar með
skemmtiferðaskipum til Reykjavíkur
í fyrra en í ár er áætlað að farþegar
verði rúmlega 127 þúsund talsins.
sisi@mbl.is
Morgunblaðið/RAX
Sundahöfn Fjölmenni var við höfnina á miðvikudaginn þegar þrjú skemmtiferðaskip voru þar samtímis.
Hávertíð skemmtiferðaskipanna
5.500 farþegar
voru í Reykjavík
sama daginn
Urður Egilsdóttir
urdur@mbl.is
„Við höfum ekki verið að fylgjast
betur með þessum hópi en öðrum og
hlaupum ekki upp
til handa og fóta
vegna frétta um
þjófnað á Ásbrú,“
segir Brynhildur
Bolladóttir, upp-
lýsingafulltrúi
hjá Rauða kross-
inum, um ólgu á
Ásbrú í Reykja-
nesbæ þar sem
hælisleitendur
dvelja á vegum
Útlendingastofnunar í skammtíma-
úrræði.
Lögreglan á Suðurnesjum stað-
festi í fyrradag í samtali við Morg-
unblaðið að allmargar kvartanir
hefðu borist til þeirra varðandi hæl-
isleitendurna og þá helst vegna
þjófnaðar á reiðhjólum.
Að sögn Brynhildar er allt með
kyrrum kjörum hjá teyminu frá
Rauða krossinum sem vinnur á
Ásbrú. „Það er ekkert öðruvísi staða
en vanalega hjá okkur og allt gengur
vel. Það hefur ekki verið neitt ves-
en,“ segir hún.
Að sögn Brynhildar sinnir Rauði
krossinn talsmannaþjónustu fyrir
hælisleitendur og veitir þeim fé-
lagslegan stuðning á Ásbrú.
Vandmeðfarið að alhæfa
Brynhildur segir að Rauði kross-
inn hafi efasemdir um að þjófnaður-
inn tengist allur hælisleitendum.
„Þeir búa aðeins í einni blokk á
Ásbrú af rúmlega 70,“ segir hún og
nefnir að Rauði krossinn standi fyrir
ákveðnu hjólaverkefni þar sem hæl-
isleitendur fái að gera upp hjól og
hafi þar með aðgang að hjólum.
Brynhildur segir hælisleitendurna
á Ásbrú blöndu af einstaklingum og
fjölskyldufólki. „Það eru þarna ein-
hverjir sem voru á Víðinesi, sem var
lokað fyrr í mánuðinum, en það voru
mest einstaklingar,“ segir hún og
nefnir að Ásbrú sé aðeins skamm-
tímaúrræði fyrir fólk sem bíður eftir
úrlausn sinna mála.
Hún segir vandmeðfarið að ætla
að tala um að aðeins einn hópur
standi á bak við þjófnaðina í Reykja-
nesbæ. „Þetta er aðeins fólk sem
vonast eftir að geta lifað betra lífi,“
segir hún.
„Það hefur ekki
verið neitt vesen“
Margar kvartanir berast lögreglu
Brynhildur
Bolladóttir
Alþýðusamband Íslands (ASÍ) og
Samtök atvinnulífsins (SA) eru
ósammála þeirri afstöðu Fjármála-
eftirlitsins (FME) að tilgreind sér-
eign sé flytjanleg frá þeim sjóði sem
tekur við iðgjaldi til skyldutrygg-
ingar. Þetta kemur fram í sameig-
inlegu bréfi sem ASÍ og SA sendu
FME í fyrradag.
Orðrétt segir m.a. í bréfi ASÍ og
SA: „Með kjarasamningi SA og ASÍ,
dags. 15.1. 2016, var framlag launa-
greiðenda hækkað úr 8,0% í 11,5% í
þremur áföngum og var það veiga-
mikill áfangi í jöfnun lífeyriskjara á
almennum og opinberum vinnu-
markaði.“
Í niðurlagi bréfsins til FME kem-
ur fram að samtökin telji að þau hafi
fulla heimild til að gera kjarasamn-
ing um tilgreinda séreign sem lúti
öðrum regum en ákvæðum laga um
séreign varðandi vörsluaðila, ávöxt-
un og útgreiðslu. ASÍ og SA beina
því til FME að skýra frekar og end-
urskoða tilmælin til lífeyrissjóðanna.
ASÍ og SA viðurkenna þó í bréfi sínu
að á grundvelli óbreyttra laga sé
uppi túlkunarágreiningur um það
hvort samningsaðilum sé heimilt að
binda framlög í tilgreinda séreign
við skyldutryggingarlífeyrissjóð.
Þeirri óvissu verði væntanlega eytt
um næstu áramóti gangi áform um
lagabreytingar eftir. agnes@mbl.is
ASÍ og SA
ósammála
túlkun FME
Vilja að tilgreind
séreign sé bundin
Óskað var eftir aðstoð slökkviliðs
eftir að olía tók að leka úr rútubíl
sem stóð við Vonarstræti í miðbæ
Reykjavíkur í gær. Samkvæmt upp-
lýsingum frá slökkviliði láku um 25
lítrar af olíu út á götuna og þurfti
um tíma að loka fyrir umferð vegna
þessa.
Ekki fengust upplýsingar um
ástæðu lekans, en einn dælubíll var
sendur á vettvang auk þess sem
hreinsibílar frá borginni þrifu göt-
una með vatni og sápu.
Olía lak úr rútubíl í
miðbæ Reykjavíkur
Guðrún Erlingsdóttir
ge@mbl.is
Röskun á ferðum Herjólfs til Land-
eyjahafnar á háannatíma veldur
ferðaþjónustuaðilum í Vestmanna-
eyjum miklu tjóni.
Gísli Matthías Auðunsson, einn
eigenda veitingastaðarins Slippsins
í Vestmannaeyjum, segir ótryggar
samgöngur á háannatíma hafa gríð-
arleg áhrif og bæta gráu ofan á
svart. „Þetta er alveg hræðilegt
eins og þetta er búið að vera und-
anfarið ár. Það hjálpaði ekki til að
Herjólfur fór utan í slipp í maí.“
Júlí er aðalmánuður ársins að
sögn Gísla Matthíasar. „Þá tvo daga
sem samgöngur voru tæpar í júlí
misstum við fimm hópa. Það má
áætla að tap vegna þess sé um 2,5
milljónir króna. Fastur kostnaður,
hráefni og starfsmannahald helst
óbreytt þó svo Herjólfur sigli ekki.
Fréttir af ótryggum samgöngum
valda líka skaða,“ segir Gísli Matt-
hías og bendir á að öll óvissa
skemmi traust til ferðaþjónustunn-
ar. „Ég held að fólk sé mjög ósátt
við stöðu mála. Við verðum að halda
í bjartsýnina, hafa trú á nýju skipi
og að farið verði í endurbætur á
Landeyjahöfn.“
Drulluerfitt
„Auðvitað er það drulluerfitt þeg-
ar röskun verður á ferðum Herjólfs
á háannatíma,“ segir Gunnlaugur
Grettisson, rekstrarstjóri Herjólfs.
Hann segir að blessunarlega sé
mikið pláss í skipinu þannig að
flutningar gangi vel. „Ferðirnar
sem fallið hafa niður og eru óörugg-
ar í næstu viku eru þær sem mest
eru notaðar og það hefur veruleg
áhrif,“ segir Gunnlaugur og bætir
við að það sé fordæmalaust að ferð-
ir falli niður í júlímánuði.
Að sögn Gunnlaugs er dýpkun
það eina sem bætt getur ástandið
en hún sé á könnu Vegagerðarinn-
ar. Hann viti til þess að dýpkunar-
skipið Galilei sé í slipp í Englandi
og Dísa í slipp í Hafnarfirði. „Það er
óvíst hvenær skip fæst en dýpkun
gæti tekið einn til einn og hálfan
sólarhring. Það var ekki reiknað
með neinum dýpkunum í sumar en
náttúran fer ekki eftir neinum með-
altölum,“ segir Gunnlaugur.
Hann segir það jákvæða þróun að
farþegafjöldinn dreifist meira yfir
daginn. Fólk komi í meira mæli með
seinni ferðunum og gisti þá í Eyj-
um.
Kristín Jóhannsdóttir, safnstjóri
Eldheima, segir að tekjutap safns-
ins þegar ferðir Herjólfs falla niður
skipti hundruðum þúsunda. „Auk
þess sem það skaðar ferðaþjón-
ustuna og trúverðugleik hennar
þegar Herjólfur þarf að sigla eftir
sjávarföllum á háannatíma.“
Milljónatjón vegna röskunar ferða
Þörf á bjartsýni Áætlað tap 2,5 milljónir króna Trúverðugleiki í hættu
Morgunblaðið/Kristinn
Ótryggt Röskun ferða skaðar ferða-
þjónustuna í Vestmannaeyjum.
30
ÁRA
Útsölustaðir:
• Momo.is – Garðabæ
• Cocos – Grafarvogi
• Kroll – Laugavegi
• Share – Kringlunni
• Stíll – Síðumúli
• Dion.is – Glæsibæ
• Corner - Smáralind
• Smartey.is – Vestmannaeyjum
• Rexin – Akureyri
• Gallery Ozone – Selfossi
• Palóma – Grindavík
• Sentrum – Egilsstöðum
• Blómsturvellir – Hellissandi
• Verslunin Nína – Akranesi
• Borgarsport – Borgarnesi
• Kóda – Keflavík
• Töff föt – Húsavík
• Mæðgur og Magasín – Stykkishólmi
• SiglóSport – Siglufirði
• Efnalaug Dóru – Höfn
• Skagfirðingabúð – Sauðárkróki
Ada coted buxur
í þremur litum
Glænýtt frá KAFFE
RÚN
HEILDVERSLUN
run.is