Morgunblaðið - 21.07.2017, Blaðsíða 13
„Við Bergrún Íris höfum, ásamt
Ásu Marin, kennara og rithöfundi,
unnið saman að námsefni í íslensku
fyrir miðstig grunnskóla. Bækurnar,
sem eru ríkulega myndskreyttar les-
og vinnubækur, eru þrjár og heita
Orðspor 1, 2 og 3, sú síðasta kom út í
maí. Ótrúlega flottar bækur, þótt ég
segi sjálf frá,“ segir Kristjana, sem
einnig heldur úti námsvefnum
123skoli.is í samstarfi við nokkra
kennara.
„Þegar við settum vefinn í loftið
fyrir nokkrum árum var það aðallega
okkur sjálfum til ánægju og
yndisauka. Síðan tóku skól-
arnir við sér og núna er
123skoli.is orðinn áskriftar-
vefur, sem býður upp á nýja
nálgun og oft nýstárlegar
leiðir í íslenskukennslu. Við
höfum verið dugleg að setja
inn efni sem tengist líð-
andi stund. Markmiðið
er fyrst og fremst að
stuðla að læsi, lesskiln-
ingi og auknum orða-
forða barna. Það er svo
mikilvægt að þau læri frá
unga aldri að meta tungu-
málið og geti viðhaldið því,“
segir Kristjana.
Fjórmenningarnir
Freyja og Fróði, Fjóli Fífils
og Ólafía Arndís eru líka
öll af vilja gerð að leggja
þeim lið.
þekkja og leysa með sínum hætti og
góðra manna ráðum. Við lýsum að-
stæðum stundum á spaugilegan hátt,
gefum góð ráð og læðum inn hæfileg-
um fróðleik,“ segir Kristjana og upp-
lýsir að Freyja og Fróði séu á óræð-
um leikskólaaldri og bækurnar séu
ekki síður gagnlegar fyrir foreldra
en litlu börnin.
Orðsporin og 123skoli.is
Kristjana er menntaður kennari
og kenndi í grunnskóla þar til fyrir
nokkrum árum. Hún viðurkennir að
kennarinn blundi í sér og komi
kannski örlítið fram í skrifunum um
þau Freyju og Fróða. „Maður þarf
alltaf að predika smá,“
segir hún í gríni.
Spurð hvort hún
sakni kennara-
starfsins svarar
hún: „Alla daga,
þetta er baktería sem
ég losna ekki við, kenn-
arastarfið er skemmtileg-
asta starf í heimi.“ Og
Kristjana er ákveðin í að
snúa aftur í skólastof-
una einn góðan veður-
dag. Undanfarið hefur hún
haft öðrum, en þó svipuðum
hnöppum að hneppa, auk
barnabókaskrifanna. Starfið
hverfist um íslenskukennslu
og barnamenningu – hennar
hjartans mál.
Söguhetja Freyja
leggur á ráðin.
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 21. JÚLÍ 2017
Norræna vistræktarhátíðin í Ölfusi
rétt utan við Þorlákshöfn hófst í gær
og stendur til kl. 16, sunnudaginn 23.
júlí. Félagsskapurinn Töfrastaðir
stendur fyrir hátíðinni, sem haldin er í
fyrsta skipti á Íslandi.
Töfrastaðir hafa hrundið að stað
verkefninu Sandar suðursins á svæð-
inu og hafa þar 8 hektara lands fyrir
umhverfiskennslumiðstöð með
áherslu á landgræðslu, skógrækt og til
að efla tengingu fólks við náttúruna.
Á hátíðinni verður ráðstefna undir
beru lofti með fyrirlestrum, umræðu-
hópum og verklegri kennslu auk
skemmtiatriða. Gestir gista í tjöldum
og búið er að reisa vistvæna kamra,
útieldhús, aðstöðu fyrir fyrirlesara,
skjólgjafa, svitahof og yurt-tjald. Vist-
ræktarhátíðin er tækifæri til að bjóða
fólki að taka þátt í uppbygginu Sanda
suðursins þar sem hægt er að læra
margt á stuttum tíma, finna samhug
og byggja upp eitthvað sem skiptir
máli. Hátíðin er fyrir þá sem vilja lifa í
sátt við umhverfi sitt, vinna að sjálf-
bærni og byggja upp af eigin getu úr
efnivið sem að öllu jöfnu er kastað.
Hægt er að kaupa miða fyrir alla hátíð-
ina eða dagsmiða.
Nánari upplýsingar: www.primavil-
lage.net.
Norræna vistræktarhátíðin í Ölfusi um helgina
Gæðaprófun Sjálfboðaliðar prófa útieldhúsið fyrir vistræktarhátíðina til að
tryggja að aðstaðan sé gestum bjóðandi og til sóma í hvívetna.
Fyrir þá sem vilja lifa í sátt við
umhverfið og vinna að sjálfbærni
Búðarleikir eftir bókinni
FREYJA OG FRÓÐI FARA Í BÚÐIR
Í bókinni Freyja og Fróði fara í búðir er m.a. mælt með þessum búð-
arleikjum:
Teldu innkaupakerrur. Þegar þú hefur talið upp að 15 máttu kalla húrra
þrisvar sinnum.
Vörutalning. Teldu allt sem fer í kerruna. Varúð! Þessi leikur er bara
fyrir þá sem eru rosalegir teljarar.
Hollt eða óhollt-leikurinn. Raðaðu í innkaupakerruna.
Allt sem er hollt á að vera öðrum megin en það sem er
óhollt á að vera hinum megin. Þessum leik er líka hægt að
breyta í hart og mjúkt, gott og vont, stórt og
lítið.
HEKLA · Laugavegi 170-174 · Reykjavík · Sími 590 5000 · hekla.is
H
ér
er
að
ei
n
s
sý
n
d
u
r
h
lu
ti
af
b
ílu
m
íb
o
ð
i.
Fu
llt
ve
rð
er
ve
rð
hv
er
s
b
íls
m
eð
au
ka
b
ún
að
i.
A
uk
ab
ún
að
ur
á
m
yn
d
um
g
æ
ti
ve
rið
an
na
r
en
ía
ug
lý
st
um
ve
rð
d
æ
m
um
.*
Fi
m
m
ár
a
áb
yr
g
ð
g
ild
ir
ek
ki
m
eð
at
vi
nn
ub
ílu
m
.
KJARAKAUP 2.890.000 kr.
VW Polo CrossPolo 1.4 TDI / Dísil / Beinskiptur
Fullt verð: 3.390.000 kr.
500.000 kr.
Afsláttur
KJARAKAUP 6.240.000 kr.
Audi A4 Station Sport 1.4 TFSI / Bensín / Sjálfskiptur
Fullt verð: 7.800.000 kr.
1.560.000 kr.
Afsláttur
KJARAKAUP 3.670.000 kr.
VW Golf Trendline Variant 1.6 TDI / Fjórhjóladrifinn / Dísil / Beinskiptur
Fullt verð: 4.170.000 kr.
500.000 kr.
Afsláttur
KJARAKAUP 4.890.000 kr.
Skoda Superb Combi
Fullt verð: 5.700.000 kr.
810.000 kr.
Afsláttur
Afsláttur
KJARAKAUP 2.890.000 kr.
Skoda Octavia Limo G-TEC / Beinskiptur
Fullt verð: 3.350.000 kr.
460.000
HEKLA býður einstök kjör á takmörkuðu magni nýrra
sýningarbíla, reynsluakstursbíla og valdra bíla frá Volkswagen,
Skoda, Mitsubishi og Audi – allir með fimm ára ábyrgð.
um
.
Am
Nú er tækifærið
að fá sér nýjan bíl!
bition 2.0 TDI / Dísil / Sjálfskiptur / 150hö
KJARAKAUP 2.890.000 kr.
VW Polo Comfortline Beats 1.2 TSI / Bensín / Sjálfskiptur / 300 vatta Beats-hljómflutningskerfi
úr smiðju Dr. Dre.
Fullt verð: 3.130.000 kr.
240.000 kr.
Afsláttur
kr.