Morgunblaðið - 21.07.2017, Qupperneq 18
18
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 21. JÚLÍ 2017
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/
Kínverjar hafaá prjónunumaukin umsvif
á heimshöfunum. Í
upphafi fimmtándu
aldar lagði kínverski
landkönnuðurinn Zheng He af
stað með 317 skip í fyrsta könn-
unarleiðangur sinn af sjö. Sigldi
hann í Persaflóa og að austur-
strönd Afríku með varning af
ýmsum toga og kom með fullfermi
til baka. Á þessum tíma var Kína
mesta sjóveldi heims. Tæp öld var
í að Kristófer Kólumbus léti úr
höfn í leit að Indlandi og rakst á
Ameríku.
Nú byggja Kínverjar upp veldi
sitt á höfunum að nýju. Hu Jintao
lýsti yfir því í upphafi þessa ára-
tugar og notaði þá orðið sjóveldi.
Xi Jinping hefur haldið þeirri
stefnu til streitu. Hann sagði fyrir
þremur árum að Kínverjar hygð-
ust ekki aðeins opna að nýju hina
fornu silkileið frá vesturhéruðum
Kína um Mið-Asíu til Mið-
Austurlanda og Evrópu, heldur
einnig „sjávarsilkileið 21. ald-
arinnar“.
Þessi áform birtast með ýmsu
móti.
Það vakti mikla athygli í
Þýskalandi og víðar þegar til-
kynnt var í lok liðinnar viku að
kínverskt fyrirtæki hefði borið
sigur úr býtum í hugmynda-
samkeppni hafnaryfirvalda í
Hamborg um fimmtu gámahöfn-
ina þar með 1100 metra langri
bryggju. Þetta hefur vakið reiði
þeirra, sem fyrir eru við höfnina,
og segja þeir stækkun með öllu
óþarfa.
Hafnaryfirvöld segja að ekki
fylgi skuldbinding sigrinum í
keppninni. Hins vegar kom í ljós
að fjármögnunarþátturinn í til-
lögu Kínverjanna hafði ráðið úr-
slitum. Það er kannski ekki að
furða.
Samkvæmt upplýsingum blaðs-
ins Hamburger Morgenpost á
Jack Ma, einn af auðugustu
mönnum heims, þátt í tillögunni.
Auðæfi hans eru metin á 34,4
milljarða dollara og á hann þau
einkum vefversluninni Alibaba að
þakka. Umsvif Alibaba í Kína eru
meiri en hjá EBay og Amazon í
öllum heiminum. Þegar kauphall-
arviðskipti hófust með hlutabréf í
fyrirtækinu runnu 25 milljarðar
evra í vasa þess. Það er meira en
samanlagður ávinningur af upp-
hafi viðskipta með Google, Face-
book og Twitter. Blaðið sér sér-
staka ástæðu til að halda því til
skila að Jack Ma sé sérvitringur
og hafi í fyrirtækjaveislum farið í
gervi söngkonunnar Lady Gaga.
Áform Kínverja í Hamborg eru
ekki einsdæmi. Blaðið Financial
Times birti í upphafi vikunnar
fréttaskýringu þar sem sagði að
ekki yrði auðvelt að hemja metn-
að Kínverja í skipaflutningum.
Þar er rakið hvernig Kína hafi
haldið áfram skuldsettum fjár-
festingum þrátt fyrir niðursveiflu
á heimsvísu í skipaflutningum.
Á fyrri hluta þessa árs vörðu
Kínverjar 20 milljörðum dollara í
að kaupa hafnir utan Kína, helm-
ingi meira fé en á sama tímabili í
fyrra.
Ákvörðun flutn-
ingafyrirtækisins
Cosco um að kaupa
keppinaut sinn frá
Hong Kong, OOCL,
beri því einnig vitni.
Tilboð þess hefur nú verið sam-
þykkt og segir í blaðinu að þar
með verði Cosco í stöðu til að taka
fyrsta sætið af þeim tveimur
keppinautum, sem hafa mest um-
svif í greininni, evrópsku skipa-
félögunum Maersk og MSC.
Blaðið bendir á að yfirráð yfir
skipaleiðum muni hjálpa Kína á
tímum átaka og ágreinings. Eign-
arhald á erlendum höfnum muni
auðvelda kínverska sjóhernum að
ná því markmiði að sigla reglu-
lega fjarri heimahöfnum.
Þá geti fjárfestingar skapað
velvild. Blaðið tekur Grikkland
sem dæmi. Grikkir hafi í júní beitt
neitunarvaldi til að koma í veg
fyrir að Evrópusambandið for-
dæmdi Kínverja vegna mannrétt-
indabrota á vettvangi Sameinuðu
þjóðanna. Margir fréttaskýrend-
ur hafi spyrt þá ákvörðun við að
Grikkir þurfi að reiða sig á fjár-
festingar Kínverja. Cosco náði í
fyrra meirihluta í stjórn hafnar-
innar í Píreus, helstu hafnarborg
Grikklands.
Bandaríkjamenn og Indverjar
hafa einkum gagnrýnt þessi
auknu umsvif Kínverja og áhyggj-
ur í Evrópu fara vaxandi. Indverj-
ar óttast að tilgangurinn sé ekki
aðeins viðskiptalegur, heldur
einnig hernaðarlegur, þrátt fyrir
fullyrðingar Kínverja um að sjáv-
arsilkileiðin verði gata friðar og
allir, sem þátt taki muni græða.
Sjávarsilkileiðin liggur greini-
lega víða. Ekki er langt síðan kín-
verskt fyrirtæki keypti höfn í
Panama og í hittifyrra gerði sama
fyrirtæki 99 ára samning um
höfnina í Darwin í Ástralíu.
Kínverjar átta sig einnig á
þeim möguleikum, sem kynnu að
fylgja því að siglingaleiðir opnuð-
ust við bráðnun íssins á norður-
skautinu. 2013 fengu Kínverjar
aukaaðild að Norðurskautsráð-
inu, meðal annars með fulltingi
Íslendinga. Áhugi Kínverja á Ís-
landi birtist með ýmsum hætti.
Mikil umræða skapaðist þegar
Huang Nubo, kínverskur við-
skiptajöfur, þó ekki í sömu deild
og Jack Ma, sýndi því áhuga að
kaupa Grímsstaði á fjöllum. Ög-
mundur Jónasson var þá innan-
ríkisráðherra og stóð í vegi fyrir
því. Ögmundur segir í fréttaskýr-
ingu um þessi mál í Morg-
unblaðinu í gær að Kínverjum sé
hugleikið að skapa sér ítök sem
víðast. Upp úr aldamótum hafi
menn tekið eftir miklum áhuga
Kínverja á að ná sér í eignarland:
„Það var nokkuð sem menn tóku
eftir í öllum álfum heimsins.“
Er ástæða til að óttast áform
Kínverja? Viðskiptasjónarmið
ráða vitaskuld miklu, en fráleitt
væri að afskrifa hernaðarþáttinn
og valdapólitíkina. Kínversk fyr-
irtæki fjárfesta ekki á skjön við
stefnu stjórnvalda, allra síst þeg-
ar þau ganga fyrir ríkislánum.
Það er því full ástæða til að hafa
vara á nú þegar Kínverjar taka
upp þráðinn sex ö-ldum síðar.
Kínverjar kaupa
markvisst hafnir og
skipafélög}
Sjóveldisáform Kína
A
f hverju ert þú til?
Fokkaðu þér. Það verða allir
glaðir ef þú deyrð.
Ljóta mella, það vill enginn
byrja með þér.
Ojjjj hvað þú ert ljót.
Þetta eru nokkur dæmi um orð sem börn og
ungmenni láta falla í samskiptum sín á milli á
smáforritinu Musical.ly, en vakin var athygli á
þeim í vikunni og greint frá þeim í fjölmiðlum.
Svipaðar fréttir hafa oft verið fluttar áður af
samskiptum barna og unglinga á ýmsum öðr-
um forritum eða vefsíðum.
Í gjörvallri sögu mannkyns hefur líklega
aldrei verið til fólk sem hefur fengið jafn
mikla fræðslu og kennslu um hvernig koma
eigi fram við aðra eins og einmitt nú. Lífs-
leikni, þar sem ein aðaláherslan er á að fræða
börn um skaðsemi eineltis, hefur um skeið verið skyldu-
námsgrein í tíu ár í grunnskólunum. Í Aðalnámskrá
grunnskóla segir m.a. að lífsleikni sé kjölfesta þekkingar
á lýðræði og mannréttindum og að lífsleikni „gegni mik-
ilvægu hlutverki við að styrkja á skapandi hátt áræði,
frumkvæði, hlutverk, ábyrgð og sjálfsmynd nemenda“.
Þessu til viðbótar er skólum skylt að setja upp eineltis-
áætlanir.
Vel má vera að samskiptin á samfélagsmiðlunum væru
enn verri ef lífsleikni væri ekki kennd eða ef eineltis-
áætlanir hefðu ekki verið gerðar, en þetta virðist samt
ekki skila því að börnin okkar komi fram hvert við annað
af virðingu. Auðvitað er kostnaðurinn, fái einelti að þríf-
ast óáreitt, miklu meiri en nokkurn tímann verður metið
til fjár. En það hefur aldrei verið kannað hver
heildarárangurinn er af þessari fræðslu og
séu þessi samskipti á netinu einhver mæli-
kvarði á það hversu vel tekst til er hann ekk-
ert sérlega góður.
Breska Barnaverndarstofan birti í fyrra
skýrslu þar sem fram kom að 88% aukning
hefði orðið í áreitni- og eineltismálum barna á
netinu. Þar kom líka fram að börn allt niður í
sjö ára hefðu orðið fyrir slíku og þeim fannst
að þau ættu engrar undankomu auðið frá ein-
eltinu; netið er jú alls staðar. Forstjóri
bresku Barnaverndarstofunnar hefur skil-
greint einelti á netinu sem eitt mest aðkall-
andi barnaverndarmál okkar tíma. En þar
sem netníð og dólgsháttur á netinu virðist ná
til allra aldurshópa mætti líklega kalla það
víðtækt lýðheilsuvandamál.
Eitt dæmi um það eru viðbrögð við ummælum Hjalta
Más Björnssonar, læknis á bráðadeild Landspítalans, á
RÚV í vikunni, um að þau höfuðhögg sem Gunnar Nel-
son bardagaíþróttamaður hefði orðið fyrir í bardaga um
síðustu helgi gætu valdið heilaskaða og að ofbeldi yrði
ekki að íþrótt með því einu að keppt væri í því. Í kjölfarið
var Hjalti kallaður sóðalegt bakteríubú, að útlit hans
væri ekki boðlegt og að best væri að forðast að fara til
svo fordómafulls læknis.
Í kjölfar fréttaflutnings af samskiptum barna á
Musical.ly hafa margir orðið til þess að hvetja foreldra til
að fylgjast betur með því sem börnin þeirra aðhefðust á
netinu. Það er góð og þörf ábending. En hver á að fylgj-
ast með þeim fullorðnu? annalilja@mbl.is
Anna Lilja
Þórisdóttir
Pistill
Hver á að fylgjast með fullorðnum?
STOFNAÐ 1913
Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík.
Ritstjóri:
Davíð Oddsson
Aðstoðarritstjóri:
Karl Blöndal
Ritstjóri og framkvæmdastjóri:
Haraldur Johannessen
FRÉTTASKÝRING
Erna Ýr Öldudóttir
ernayr@mbl.is
Sameinuðu þjóðirnar (SÞ) ogAlþjóðaheilbrigðismálstofn-unin (WHO) gáfu í lok síð-asta mánaðar út sameig-
inlega yfirlýsingu um jafnrétti til
heilbrigðisþjónustu, sbr. vef WHO. Í
yfirlýsingunni er að finna sameigin-
legt ákall um endurskoðun laga og
niðurfellingu á refsingum, m.a. fyrir
neyslu og vörslu vímuefna til per-
sónulegra nota og vændi sem stund-
að er af fullorðnum einstaklingum og
með fullu samþykki, þar sem sannað
þyki að refsistefna í þessum mála-
flokkum hafi haft neikvæð áhrif á
lýðheilsu í þeim ríkjum sem eru að-
ilar að stofnununum.
Þetta o.fl. sé liður í langtímastefnu
stofnananna til ársins 2030 um sjálf-
bæra þróun heilbrigðisþjónustu þar
sem „enginn er skilinn útundan“ og
„hinir síðustu verði fyrstir“, en jað-
arsetning og útilokun á ýmsum við-
kvæmum hópum fólks með refsi-
stefnu komi í veg fyrir að þau
markmið nái fram að ganga.
Óskað eftir tilnefningum
Velferðarráðuneytið hefur sent
bréf dags. 17. júlí sl. f.h. heilbrigð-
isráðherra þar sem óskað er eftir til-
nefningum í samráðsvettvang um
vímuefnamál, en stofnun þess vett-
vangs er skv. „skýrslu heilbrigð-
isráðherra um mótun stefnu til að
draga úr skaðlegum afleiðingum og
hliðarverkunum vímuefnaneyslu, til
aðstoðar og verndar neytendum efn-
anna og félagslegum réttindum
þeirra, aðstandendum og samfélag-
inu í heild“ sem fyrrverandi heil-
brigðisráðherra, Kristján Þór Júl-
íusson, lagði fyrir Alþingi veturinn
2015-16.
Skulu geðsvið Landspítala, vel-
ferðarsvið Reykjavíkurborgar, SÁÁ,
Rauði krossinn, embætti Ríkislög-
reglustjóra, embætti Landlæknis,
dómsmálaráðuneyti, Afstaða félag
fanga og velferðarráðuneyti skipa
fulltrúa en heilbrigðisráðherra skip-
ar formann og varaformann. Skulu
allir þessir aðilar hafa skipað fulltrúa
fyrir 10. ágúst nk.
„Undirbúningur samráðsvett-
vangs, eins og segir til um í 10. til-
lögu skýrslu fyrrverandi heilbrigðis-
ráðherra, var ákveðið sem fyrsta
skref í að byrja að innleiða nýja
stefnu í vímuefnamálum,“ segir Unn-
steinn Jóhannsson, aðstoðarmaður
heilbrigðisráðherra.
„Það hefur tafist þar sem í millitíð-
inni er búið að halda alþingiskosn-
ingar og það tók 10 vikur að mynda
ríkisstjórn, þannig að það hefur
hægt talsvert á framgangi þessa
máls,“ bætir hann við og vonast til
þess að skipun samráðsvettvangsins
takist fyrir haustið.
Engin vinna virðist vera í gangi
varðandi stefnubreytingu á löggjöf
um vændi skv. upplýsingum frá
stjórnvöldum.
Alþjóðastofnanir ganga lengra
Skýrsla fyrrverandi heilbrigðis-
ráðherra inniheldur 12 tillögur. Til-
lögur 1-3 miða að breytingum á lög-
um og reglum til að draga úr
refsinæmi vímuefnaneyslu og þeim
neikvæðu áhrifum sem refsingar
hafa á neytendur vímuefna, en lagt
er til afnám fangelsisrefsinga fyrir
neyslu og vörslu vímuefna til per-
sónulegra nota, í stað þess verði beitt
fjársektum. Smávægileg vímuefna-
brot fari ekki á sakaskrá nema sekt-
arfjárhæð nái ákveðinni fjárhæð og
þvagprufa verði ekki notuð til mæl-
inga á vímuefnum í blóði ökumanna.
Segja má að sameiginlegt ákall
stóru alþjóðastofnananna SÞ og
WHO gangi enn lengra en tillögur
skýrslunnar, beinlínis er kallað eftir
afnámi refsilöggjafar, en íslensk
stjórnvöld virðast í tillögum sínum
vilja ganga skemmra í þá átt þar sem
sektir og skráning í sakaskrá verði
enn notaðar til refsinga. Í síðasta
mánuði, á alþjóðlegum degi gegn
vímuefnamisnotkun, kallaði António
Guterres, aðalframkvæmdastjóri
SÞ, eftir því að tekist yrði á við vand-
ann með „forvörnum og meðhöndl-
un“, í samræmi við mannréttindi
fólks.
Ákall um niður-
fellingu refsinga
Morgunblaðið/Ómar
Skaðaminnkun Hreinar sprautunálar eru afhentar hjá Frú Ragnheiði.
Alþingi lýsti með ályktun sinni
hinn 16. maí 2014 vilja sínum til
að endurskoða stefnu í vímu-
efnamálum á grundvelli lausna-
miðaðra og mannúðlegra úr-
ræða, á forsendum heilbrigðis-
kerfisins og félagslega kerfis-
ins, til aðstoðar og verndar
neytendum efnanna og félags-
legum réttindum þeirra, að-
standendum þeirra og sam-
félaginu í heild.
Ályktun
Alþingis
ENDURSKOÐUN
VÍMUEFNASTEFNU