Morgunblaðið - 21.07.2017, Page 26

Morgunblaðið - 21.07.2017, Page 26
26 ÍSLENDINGAR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 21. JÚLÍ 2017 Það eina sem ég veit er að ég er að fara í golf hjá golfklúbbnumOddi með stelpunum mínum og manninum mínum, en meiraveit ég ekki. Þau vilja ekki segja mér neitt meira,“ segir Helga Friðriksdóttir, forstöðumaður hjá Landsbankanum, spurð hvað hún ætli að gera í tilefni 50 ára afmælisins í dag. Eiginmaður Helgu er Knútur Bjarnason, en hann á fasteignasöluna Helgafell, og dætur þeirra eru Högna 22 ára og Melkorka 18 ára.„Markmiðið er síðan að halda skemmtilegt kvennaboð áður en ég verð 51 árs, en ég hlakka til að eyða afmælisdeginum með fjölskyldunni, hvað sem verður.“ Helga var forstöðumaður bíla- og tækjafjármögnunar hjá Lands- bankanum en ákvað að hætta því starfi. „Ég tók þessa ákvörðun í mars og er nýbúin að kveðja gamla starfið og er núna í sumarfríi. Það er ekki ákveðið hvað ég fer að gera síðan hjá bankanum. Í sumarfríinu er ég búin að vera rosadugleg að spila golf,“ en Helga er með 13 í forgjöf. „Svo hef ég verið dugleg að lesa, allt frá skemmti- legum stjórnendabókum yfir í skandinavíska krimma, en þar er Jo Nesbö í uppáhaldi. Ég kláraði MBA-nám í fyrra og finnst mjög gaman að lesa viðtöl og ævisögur um stjórnendur sem hafa náð árangri í sínu starfi,“ en Helga er enn fremur verkfræðingur að mennt. Helga fylgist einnig mikið með fótbolta og eru FH og Chelsea henn- ar lið. „Það er enn von fyrir okkur FH-inga á Íslandsmótinu og við spyrjum að leikslokum, en aðalmálið núna eru stelpurnar okkar á EM og mun ég ekki missa af neinum leik með þeim.“ Mæðgurnar Helga með móður sinni Kristbjörgu og Stubbi. Fer í golf í dag en veit síðan ekki meir Helga Friðriksdóttir er fimmtug í dag B jörn Andrés Bjarnason fæddist í Reykjavík 21. júlí 1957. Hann ólst upp í Nóatúni, „en á hverju sumri dvaldi ég á Hofsósi hjá móðurforeldrum mín- um“. Björn gekk í Ísaksskóla og Voga- skóla. Eftir grunnskóla fór hann í Iðnskólann í Reykjavík þar sem hann lærði bifreiðasmíði. „Enda var hugurinn mikið tengdur bílum. Ég lærði bifreiðasmíði hjá meistara Árna Gíslasyni.“ Eftir námsárin fór Björn að vinna hjá Brimborg í nokkur ár, en stofnaði sitt eigið fyrirtæki ásamt Kolbeini Reynissyni 1985. Þeir unnu saman í nokkurn tíma en 1998 breytti Björn fyrirtæki sínu í einkahlutafélag og stækkaði fyrir- tækið og rekur það í dag ásamt Björn Bjarnason bifreiðasmiður – 60 ára Á Rauðasandi Björn á ferðalagi með fjölskyldunni í fyrra. Í dag verður Björn að heiman í veiðiskap. Hefur rekið eigið fyrir- tæki í meira en 30 ár Hjónin Björn og Sigurbjörg í skíðaferðalagi í Rúmeníu. Frú Sigríður Jóhannesdóttir, fyrrverandi kaupmaður í versl- uninni Seymu, heldur upp á 90 ára afmæli sitt í dag. Í tilefni dagsins brá hún undir sig betri fætinum og hélt til Djúpavíkur, en þar stofnaði hún og Sigurður Jónsson (látinn 29.8. 2005) fjöl- skyldu sína árið 1948. Hún kemur aftur í bæinn fyrir vetur. Árnað heilla 90 ára Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.  Unnið í samvinnu við viðmælendur. Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks, svo sem stórafmælum, hjónavígslum, barnsfæðingum og öðrum tímamótum. Börn og brúðhjón Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð. Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is 56 10 000 TAXI BSR Góð þjónusta yfir 90 ár10% afsláttur fyrir 67 ára og eldri

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.