Morgunblaðið - 21.07.2017, Page 36

Morgunblaðið - 21.07.2017, Page 36
FÖSTUDAGUR 21. JÚLÍ 202. DAGUR ÁRSINS 2017 VEÐUR » 8 www.mbl.is 5 6 9 1 1 0 0 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100 mbl.is: netfrett@mbl.is Í LAUSASÖLU 548 KR. ÁSKRIFT 5.950 KR. HELGARÁSKRIFT 3.715 KR. PDF Á MBL.IS 5.277 KR. I-PAD ÁSKRIFT 5.277 KR. 1. Maðurinn erlendur hælisleitandi 2. Gunnar fékk 45 daga … 3. Ólíklegt að maðurinn sé … 4. Lugu til um pakkasendingu »MEST LESIÐ Á mbl.is FÓLK Í FRÉTTUM  Breska hjómsveitin Mumford & Sons mun koma fram á tónlistarhá- tíðinni Iceland Airwaves í Valshöllinni sunnudaginn 5. nóvember, á loka- tónleikum hátíðarinnar. Mumford & Sons hefur verið með vinsælustu hljómsveitum heims hin síðustu ár og haft mikil áhrif á aðrar hljóm- sveitir. Plötur hljómsveitarinnar hafa selst gríðarvel en þær eru þrjár, Sigh No More sem kom út árið 2009, Ba- bel frá 2012 og Wilder Mind sem kom út fyrir tveimur árum. Mörg laga hljómsveitarinnar hafa notið mikilla vinsælda víða um lönd og má þar nefna „I will wait“, „The Cave“, „Little Lion Man“ og „Believe“. Þá þykir hljómsveitin með allra bestu tónleikasveitum í heiminum í dag. Aðrir tónlistarmenn og hljóm- sveitir sem koma fram þetta kvöld í Valshöllinni, 5. nóvember, verða kynnt síðar en þeir sem kaupa arm- band fyrir alla hátíðina og armband sem gildir á Akureyri og í Reykjavík eiga rétt á að fá miða á tónleika Mumford & Sons. Miðarnir verða af- hentir í Bíó Paradís degi fyrir tónleika og þar gildir reglan „fyrstur kemur, fyrstur fær“. Auk þess verða 500 miðar seldir á tónleikana og hefst miðasala næsta þriðjudag, 25. júlí kl. 10, á miðasöluvefnum tix.is. Mumford & Sons á Iceland Airwaves  Tónlistarmaðurinn Pétur Ben kemur fram í Mengi í kvöld kl. 21 og flytur eigin tónlist. Pétur á að baki tvær sólóplötur, Wine For My Weak- ness sem kom út árið 2007 og God’s Lonely Man sem kom út 2012. Hann vinnur nú að sinni þriðju plötu með Helga Jónssyni, tón- skáldi og básúnu- leikara, og fleir- um. Pétur Ben í Mengi Á laugardag Suðaustan 8-13 m/s og súld eða rigning með köflum S- og V-lands, en hægara og víða léttskýjað á N- og A-landi. Hiti 12 til 25 stig, hlýjast NA-lands. SPÁ KL. 12.00 Í DAG Austlæg átt, yfirleitt 5-10 m/s, en hægviðri V-lands. Lítilsháttar rigning eða þokusúld S- og V-til, léttir til NA- lands. Hiti 10 til 23 stig, hlýjast í innsveitum NA-til. VEÐUR Hvorki KR né Valur komst áfram í 3. umferð forkeppni Evrópudeildarinnar í knatt- spyrnu eftir tap í einvígum sínum í 2. umferðinni í gær- kvöld. Valur stóð vel í slóv- enska liðinu Domzale ytra og komst tvívegis yfir en tapaði að lokum 3:2. Þá fór Viðar Örn Kjartansson með sigur af hólmi í Frosta- skjólinu gegn KR með liði sínu Maccabi Tel Aviv frá Ísrael, 2:0. »2-3 KR og Valur eru bæði úr leik Hin tvítuga Ragnhildur Kristinsdóttir úr Golfklúbbi Reykjavíkur lék best kvenna á fyrsta degi Íslandsmótsins í höggleik á Hvaleyrarvelli í gær, en hún kom í hús á tveimur höggum undir pari, eða 69 höggum. Heima- maðurinn Vikar Jónsson, sem einnig er á tuttugasta aldursári, lék best í karlaflokki, en hann lék á 65 höggum eða sex högg- um undir pari. »1 Tvítug á toppnum hjá konum og körlum „Menn eru frekar svekktir yfir tapinu en líka stoltir að hafa komist í átta liða úrslit,“ sagði Kári Jónsson við Morgunblaðið eftir að U20 ára lands- lið karla í körfuknattleik komst ekki í undanúrslit á EM eftir tap fyrir Ísrael í gær. Árangurinn er þó sá besti sem landsliðið hefur náð og framundan eru leikir um 5.-8. sæti mótsins, fyrst gegn Serbíu á morgun. »4 Strákarnir eru stoltir af árangri sínum á EM ÍÞRÓTTIR Skannaðu kóðann með símanum þínum og fylgstu með veðrinu á Vilhjálmur A. Kjartansson vilhjalmur@mbl.is „Ég veit það ekki alveg, þetta var eiginlega meiri tilviljun en ígrunduð ákvörðun,“ segir Guðmundur Einarsson, kylfingur og rútubílstjóri Isavia, spurð- ur um styrktargreiðslur sínar til samtakanna Ein- stakra barna. „Verið var að gera upp nokkrar holur í golf- klúbbnum okkar hérna í Sandgerði og ég ákvað að kaupa eina holu og merkja hana Einstökum börn- um. Ég borga síðan þúsund krónur fyrir hvern fugl sem farinn er á holunni til samtakanna,“ segir hann en fugl telst eitt högg undir pari hverrar brautar. Guðmundur hefur engin tengsl við Einstök börn og segist ekki alveg vita af hverju hann valdi þau góðgerðarsamtök frekar en einhver önnur. Hann segist þó vita að styrkurinn endi á góðum stað. Skipuleggur styrktarmót „Ekki eru þetta háar upphæðir sem ég hef verið að greiða í sumar en margt smátt gerir eitt stórt,“ segir Guðmundur sem borgar samviskusamlega á hverjum mánudegi til Einstakra barna. „Mér finnst hins vegar heildarupphæðin vera frekar lág og tók mig því til og skipulagði golfmót til styrktar samtökunum.“ Mótið, sem fer fram á Kirkjubólsvelli í Sandgerði á sunnudag, stefnir í að verða hið glæsilegasta en allur ágóði mótsins rennur til Einstakra barna og er það að sjálfsögðu opið öllum. „Ég er að vona að við getum safnað vel fyrir sam- tökin en þau hafa verið mjög hjálpleg við skipulagn- ingu mótsins, aðstoðað mig við að hafa samband við fyrirtæki og safna vinningum.“ Skorar á fólk að mæta Allir geta tekið þátt í golfmóti helgarinnar að sögn Guðmundar, einnig þeir sem ekki spila golf. „Ágóðinn af hverju keyptu skorkorti rennur til Einstakra barna hvort sem fólk spilar eða ekki. Þá verður dregið úr veglegum vinningum og eru öll keypt kort með í lottóinu,“ segir Guðmundur og skorar á sem flesta að mæta og njóta dagsins í góðum félagsskap. Kirkjubólsvöllur er skemmtilegur 18 holu völlur í umsjón Golfklúbbs Sandgerðis en Guðmundur hefur spilað á vellinum í rúm 30 ár, eða frá því hann var opnaður. „Ég hef gegnt ýmsum störfum fyrir klúbbinn og spilað lengi á vellinum. Þetta er nefnilega eini völlur landsins sem er opinn allt árið.“ Biður fólk að mæta á mótið  Golfmót til styrktar Einstökum börnum Morgunblaðið/Reynir Sveinsson Golf Guðmundur Einarsson hefur verið viðriðinn Golfklúbb Sandgerðis í rúma þrjá áratugi og nýtir nú ástríðu sína fyrir golfíþróttinni til að styrkja góðgerðarsamtökin Einstök börn. „Við fengum heldur betur óvæntan vin í lið með okkur í vetur þegar golfklúbbur Sandgerðis var að laga golfvöllinn sinn,“ segir Guðrún Helga Harðar- dóttir, framkvæmdastjóri Einstakra barna, en það er félag barna með sjald- gæfa sjúkdóma og heilkenni. Guðmundur hafði samband við fé- lagið í vetur og vildi merkja félaginu eina braut á golfvellinum og styrkja félagið um 1.000 krónur fyrir hvern fugl á holunni. „Hann hefur samviskusamlega lagt inn á fé- lagið á hverjum mánudegi og núna hefur hann tekið sig til og skipulagt heilt golfmót til styrkt- ar félaginu.“ Guðrún segir félagið einstaklega þakklátt Guðmundi enda skipti hver króna máli sem komi inn í starfið. Óvæntur vinur í lið með okkur FORSVARSMENN EINSTAKRA BARNA ÞAKKLÁTIR Guðrún Helga Harðardóttir

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.