Fréttablaðið - 05.01.2018, Síða 8

Fréttablaðið - 05.01.2018, Síða 8
Héðinn hefur störf hjá Tannlæknaþjónustunni Tannlæknaþjónustan.is Reykjavík Valhöll, Háaleitisbraut 1 105 Reykjavík Selfoss Austurvegur 10 800 Selfoss Hella Suðurlandsvegur 3 850 Hella Meðfram störfum mínum á Höfn í Hornafirði hef ég hafið störf hjá Tannlæknaþjónustunni, Valhöll Háaleitisbraut 1,105 Reykjavík. Ég býð gamla og nýja viðskiptavini hjartanlega velkomna. Tímapantanir í síma 482-3333. Við tökum vel á móti þér Héðinn Sigurðsson tannlæknir Reykjavík Hitaðu bílinn með fjarstýringu – Webasto bílahitari -8° -6° -7° 0_StH_ANZ_Snow_99,3x99,5_Island.indd 3 27.10.17 14:2 21° Tilfinning BÍLASMIÐURINN HF BÍLDSHÖFÐA 16 SÍMI: 567-2330 www.bilasmidurinn.is • bilasmidurinn@bilasmidurinn.is Sveitarfélagið Árborg hefur undanfarið unnið að undirbúningi vegna hreinsistöðvar fráveitu á Selfossi með útrás í Ölfusá eða sjó við Eyrarbakkahöfn. Framkvæmdin er matsskyld samkvæmt lögum nr. 106/2000 um mat á umhverfisáhrifum og hefur verkfræðistofunni EFLU verið falið að vinna umhverfismatið. Drög að tillögu að matsáætlun hafa legið frammi til kynningar frá 13. desember sl. á vefsíðu EFLU; www.efla.is/mat-a-umhverfisahrifum/ Allir geta kynnt sér drögin og lagt fram athugasemdir. Athugasemdafrestur hefur verið framlengdur til 15. janúar 2018. Athugasemdir skal merkja „Hreinsistöð fráveitu á Selfossi“ og senda með tölvupósti á netfangið jon.agust.jonsson@efla.is eða með bréfpósti á: EFLA verkfræðistofa B.t. Jóns Ágústs Jónssonar Höfðabakki 9 110 Reykjavík Umhverfismat fyrir hreinsistöð fráveitu á Selfossi EFLA VERKFRÆÐISTOFA +354 412 6000 efla@efla.is www.efla.is Íran Stjórnvöld í Íran sökuðu í gær Bandaríkjastjórn, einkum Donald Trump forseta, um „viðurstyggileg“ afskipti af innanríkismálum sínum. Þetta mátti lesa í bréfi sem Íranar sendu Sameinuðu þjóðunum. Í bréfinu segir að Bandaríkjaforseti hafi „með því að skrifa fjölda stór­ undarlegra tísta hvatt Írana til þess að taka þátt í óeirðum“. Það sé brot á alþjóðalögum. Óeirðirnar sem vísað er til eru mót­ mæli sem hafa farið fram undanfarið í nokkrum borgum ríkisins og eru jafnframt þau mestu frá árinu 2009 þegar mótmælt var vegna ósættis við forsetakosningar. Upphaflega var það óánægja með verðlag og spillingu sem vakti einna helst reiði mótmælenda en með vax­ andi fjölda þátttakenda var einblínt í meiri mæli á leiðtoga ríkisins, til að mynda æðstaklerkinn Ali Khamenei. Stjórnvöld hafa tekið á mótmæl­ unum af hörku en alls beið 21 bana og að minnsta kosti 450 voru hand­ tekin. Í gær lýsti leiðtogi byltingar­ varðliðsins, Mohammad Ali Jafari, að tekist hefði að slökkva bálið. „Í dag getum við með sanni sagt að komið sé að lokum uppreisnar ársins 1396. Megi Guð vera okkur hliðholl­ ur og megi ósigur þeirra verða algjör,“ sagði Jafari og vísaði til íranska tíma­ talsins. Gholamali Khoshroo, sendiherra Írans hjá SÞ, undirritaði bréfið og í því segir enn fremur að Bandaríkja­ menn hafi lengi og ítrekað skipt sér af innanríkismálum Írana. „Núver­ andi stjórnvöld í Bandaríkjunum hafa farið yfir öll strik og brotið allar reglur og grundvallaratriði alþjóða­ laga um milliríkjasamskipti.“ Eins og í bréfinu segir tísti Trump um mótmælin. „Ég ber mikla virð­ ingu fyrir írönsku þjóðinni sem reynir að endurheimta ríki sitt af spilltum ráðamönnum. Bandaríkin munu styðja ykkur þegar það er við­ eigandi,“ tísti forsetinn. Khoshroo gaf hins vegar lítið fyrir þennan stuðning Trumps. Benti hann á að með ferðabanni sínu, sem Trump hefur ítrekað reynt að fá í gegn, hafi hann meinað venjulegum írönskum ríkisborgurum að ferðast til Banda­ ríkjanna. Þá hafi Trump jafnframt neitað að lögfesta fjölþjóðlegan samning um kjarnorkuáætlun Írana. Stjórnvöld og fjölmiðlar í Íran hafa þó ekki einungis beint sjónum að Bandaríkjunum. Hafa Ísraelar einn­ ig verið sakaðir um óeðlileg afskipti sem og Sádi­Arabar, en við þá eiga Íranar í köldu stríði. Rússneska utanríkisráðuneytið tók undir með Írönum í gær. Sagði frétta­ stofa Itar­Tass frá því að ráðuneytið hvetti Bandaríkjamenn til þess að láta af afskiptunum. Nikki Haley, sendiherra Banda­ ríkjanna hjá Sameinuðu þjóðunum, sagði á þriðjudag að fráleitt væri að önnur ríki væru að hafa áhrif á mót­ mælendur. „Íranska þjóðin er að krefjast frels­ is. Öllum frelsisunnendum er skylt að standa með henni í þeirri baráttu,“ sagði Haley. thorgnyr@frettabladid.is Íranar harðorðir vegna afskipta af mótmælum Stelpa í samstöðumótmælum í Brussel með mynd af Armin Sadeghi, þrettán ára pilti sem lést þegar hann mótmælti í Íran. FréttABlAðið/EPA Tíst Donalds Trump um mannskæð mótmæli í Íran þykja óeðlileg af- skipti af innanríkismál- um. Íransstjórn kvartar til Sameinuðu þjóðanna og sakar jafnframt Ísra- ela og Sádi-Araba um sams konar hátterni. Bandaríkjamenn neita alfarið en Rússar taka undir með Írönum. Núverandi stjórn- völd í Bandaríkj- unum hafa farið yfir öll strik og brotið allar reglur og prinsipp alþjóðalaga um milliríkjasam- skipti. Gholamali Khoshroo, sendiherra Írans hjá SÞ Ég ber mikla virð- ingu fyrir írönsku þjóðinni sem reynir að endurheimta ríki sitt af spilltum ráðamönnum. Bandaríkin munu styðja ykkur þegar það er við- eigandi. Donald Trump, forseti Banda- ríkjanna BandarÍkin Lögfræðingar Donalds Trump, forseta Bandaríkjanna, hyggjast koma í veg fyrir útgáfu bókar sem inniheldur skaðlegar ásakanir á hendur ríkisstjórninni. Bókin, Fire and Fury: Inside the Trump White House, kemur út á þriðjudag en kafl­ ar úr henni hafa birst í bandarískum miðlum undanfarna daga. Í bókinni segir Steve Bannon, fyrrverandi aðalráðgjafi Trumps, að Donald Trump yngri sé landráða­ maður og föðurlandssvikari. Þá er dregin upp mynd af Trump sem vit­ leysingi sem vildi ekki í raun vinna forsetakosningarnar. Ríkisstjórnin hefur nú krafið Bannon um að ræða ekki við blaða­ menn um störf sín fyrir forseta á grundvelli samkomulags um þag­ mælsku. Trump sagði á miðviku­ dag að Bannon hefði ekkert með stjórnar hætti sína að gera og Sarah Sanders upplýsingafulltrúi sagði bók­ ina í gær „skáldskap af verstu sort“. Höfundur bókarinnar, Michael Wolff, fékk sams konar kröfu í gær. Þar var þess krafist að bókin yrði ekki gefin út vegna fjölda rangra full­ yrðinga um Trump, ellegar myndu lögfræðingar forseta kæra fyrir meið­ yrði. – þea Múlbinda Bannon og reyna nú að koma í veg fyrir útgáfu bókarinnar 5 . j a n ú a r 2 0 1 8 F Ö S T U d a G U r8 F r é T T i r ∙ F r é T T a B L a ð i ð 0 5 -0 1 -2 0 1 8 0 4 :3 5 F B 0 5 6 s _ P 0 4 9 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 4 8 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 0 8 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 0 9 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 E A 9 -F 1 F 4 1 E A 9 -F 0 B 8 1 E A 9 -E F 7 C 1 E A 9 -E E 4 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 7 B F B 0 5 6 s _ 4 _ 1 _ 2 0 1 8 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.