Fréttablaðið - 05.01.2018, Síða 10

Fréttablaðið - 05.01.2018, Síða 10
Frá degi til dags Útgáfufélag: 365 miðlar ehf. Stjórnarformaður: Einar Þór Sverrisson forStjóri: Ingibjörg Stefanía Pálmadóttir Útgefandi og aðalritStjóri: Kristín Þorsteinsdóttir kristin@frettabladid.is aðStoðarritStjórar: Kjartan Hreinn Njálssson kjaranh@frettabladid.is, Ólöf Skaftadóttir olof@frettabladid.is, Sunna Karen Sigurþórsdóttir sunnak@frettabladid.is. Fréttablaðið kemur út í 90.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslun um á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSN 1670-3871 fréttaBlaðið Skaftahlíð 24, 105 reykjavík Sími: 512 5000, ritstjorn@frettabladid.is helgarBlað: Kristjana Björg Guðbrandsdóttir kristjanabjorg@frettabladid.is markaðurinn: Hörður Ægisson hordur@frettabladid.is menning: Magnús Guðmundsson magnus@frettabladid.is lífið: Guðný Hrönn Antonsdóttir gudnyhronn@frettabladid.is ljóSmyndir: Vilhelm Gunnarsson villi@365.is framleiðSluStjóri: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is Halldór Hörður Ægisson hordur@frettabladid.is Það væri fádæma ábyrgðarleysi að veðja á að lukkan verði aftur með okkur í liði í þetta sinn. Týr skilar skólpskömminni Huldupenninn Týr tuskar höf- unda áramótaskaupsins til í Við- skiptablaðinu. Sumt í skaupinu þótti honum fyndið en annað síður. Botninum var náð í því sem hann kallar „umvöndunarsketsar handritshöfunda Samfylkingar- innar“. Samfylkingarpennarn ir hafi þannig kosið að hlífa Degi. Eggertssyni borgarstjóra í sjó- sundsgríninu í tengslum við klóakskandalinn við Faxaskjól sem hann kallar „hið ótrúlega klóakdælumál Dags B. Eggerts- sonar“. Þar kom Dagur hvergi við sögu en „þess í stað lítið gert úr fréttamanninum sem svipti hulunni af málinu og látið að því liggja að hún væri bara einhver puntudúkka“. Svo skemmtilega vill til að umrædd fréttakona er María Sigrún Hilmarsdóttir, eiginkona Péturs Árna Jónssonar, eiganda Viðskiptablaðsins. Varaþingmaður í atvinnuleit Gunnar Hrafn Jónsson, nú vara- þingmaður Pírata, missti vinnuna óvænt þegar ríkisstjórnin sprakk í haust og boðað var til kosninga. Gunnar Hrafn hefur gripið til þess ráðs að auglýsa eftir vinnu á Facebook og segist þar tilbúinn til þess að fórna varaþingmennsk- unni fyrir rétta starfið og jafnvel hætta alfarið í stjórnmálum finni hann annað starf á réttum vett- vangi. Hann er reyndur frétta- maður og glansaði sem slíkur í erlendum fréttum RÚV um langt árabil áður en hann hellti sér út í pólitíkina. thorarinn@frettabladid.is Skoða verður af fullri alvöru hvernig hægt er að bregðast við í samfélagi þar sem álag og áreiti eykst sífellt. Sem betur fer er skilningur á mikil- vægi þess að stytta vinnutímann að aukast. Bæði Reykjavíkurborg og ríkið eru nú með til- raunaverkefni í gangi til að skoða kosti og galla styttingar vinnuvikunnar. BSRB hefur talað fyrir því um áratuga skeið og hefur krafan færst sífellt ofar á kröfulistann. Bandalagið leggur áherslu á að vinnu- vikan verði stytt úr 40 stundum í 36. Nú er samfélagið farið að taka við sér svo um munar. Reykjavíkurborg hefur leitt vagninn með tilraunaverkefni sem unnið hefur verið með BSRB frá árinu 2015. Annar áfangi verkefnisins hefst bráðlega en þá geta allir vinnustaðir borgarinnar sótt um að taka þátt. Sambærilegt tilraunaverkefni ríkisins og BSRB er einnig í gangi. Markmiðið með tilraunaverkefnunum er að rann- saka langtímaáhrifin af því að stytta vinnuvikuna án þess að skerða laun. Þær niðurstöður sem komnar eru úr fyrsta áfanga tilraunaverkefnis borgarinnar sýna að styttingin hefur gefið góða raun. Starfs- ánægja hefur aukist og skammtímaveikindi dregist saman á meðan afköstin hafa haldist óbreytt. Önnur sveitarfélög hafa einnig sýnt málinu áhuga, af augljósum ástæðum. Ef vinnustaðir geta með einni aðgerð dregið úr álagi og veikindum án þess að það bitni á afköstum er það augljós hagur allra að skoða málið. Það ættu framsýnir stjórnendur fyrirtækja á almennum vinnumarkaði einnig að gera. Með styttri vinnuviku má stuðla að fjölskyldu- vænna samfélagi. Fæst viljum við að börn séu í meira en átta tíma á dag í skólum og leikskólum. Flestir gætu hugsað sér meiri tíma til að hreyfa sig, sinna fjölskyldu og áhugamálum. Með styttri vinnuviku má einnig auka jafnrétti á vinnumarkaði, enda vinna konur frekar hlutastörf en karlar og eru líklegri til að sinna börnum í meira mæli. Við höfum allt að vinna og engu að tapa með því að stytta vinnuvikuna. Bregðumst við álagi og áreiti Elín Björg Jónsdóttir formaður BSRB Þær niður- stöður sem komnar eru úr fyrsta áfanga tilraunaverk- efnis borgar- innar sýna að styttingin hefur gefið góða raun. Kristján Þórir Hauksson, löggiltur fasteignasali kristjan@fastlind.is · Sími 696 1122 FAGLEGT SÖLUFERLI Þó svo að mikil eftirspurn sé á fasteigna- markaðnum, þá skiptir miklu máli að allt söluferlið sé faglegt og rétt, því þá fæst hæsta verðið fyrir eignina. Hvers virði er þín eign? Hafið samband og fáið frítt söluverðmat. Um eitt virðast flestir vera sammála. Snúa þurfi af þeirri braut sem einkennt hefur íslenskan vinnumarkað um áratugaskeið þar sem launþegahópar knýja á um launaleiðréttingar fyrir sinn hóp á víxl. Niðurstaðan hefur enda nánast undantekningarlaust verið sú hin sama. Samið er um innstæðulausar nafnlaunahækkanir sem leiða til aukinnar verðbólgu, hærri vaxta og lægra gengis krónunnar. Vandamálið er hins vegar að þótt flestir vilji forðast þetta þekkta stef þá eru á sama tíma allir launþegahópar þeirrar skoðunar að það þurfi einungis að „leiðrétta“ þeirra laun. Og framhaldið þekkja allir. Nú er vanhugsað útspil kjararáðs, sem hefur ákvarðað tugprósenta launahækkanir til ýmissa hópa sem heyra undir ráðið, notað sem rök fyrir því að rjúfa þá launastefnu sem var mörkuð með kjarasamningum á almennum markaði 2015. Ólíklegt er að nokkur muni græða á því að leggja upp í slíka vegferð. Öllum ætti að vera ljóst að svigrúm til mikilla launahækkana er ekki fyrir hendi. Því verður vart trúað að forystumenn í verkalýðshreyfingunni ætli að efna til kjarastríðs eftir að kaupmáttur hefur hækkað um 20 prósent frá því 2015. Það hljómar eins og hvert annað öfugmæli. Sá tónn sem heyrist frá samtökum opinberra starfsmanna, sem eiga nú í kjaraviðræðum við ríkið, gefur þó ekki tilefni til að ætla að þar verði horft til þess að semja um launahækkanir í samræmi við stöðu þjóðarbúsins. Allir virðast hafa gleymt því markmiði að við gerð kjarasamninga verði lært af reynslu hinna Norðurlandanna þar sem kaupmáttur hefur aukist á grundvelli lítillar verðbólgu, lágra vaxta og stöðugs gengis. Þannig var í Noregi nýlega samið um tæplega tveggja prósenta nafnlaunahækkun á vinnumarkaði, litlu meira en verðbólga mælist þar í landi. Af hverju? Af því að þar ríkir sameiginlegur skilningur á því hjá aðilum á vinnumarkaði að atvinnulífið stendur ekki undir meiri launakostnaði við núverandi efnahagsaðstæður. Staðan er þessi. Eftir miklar launahækkanir og gengisstyrkingu krónunnar frá 2015 hefur raungengið sjaldan verið hærra. Launakostnaður fyrirtækja hefur hækkað, mælt í sömu mynt, um fjörutíu prósent meira en í helstu samkeppnisríkjum. Hlutfall launa af landsframleiðslu er það hæsta á Norðurlöndum og Seðlabankinn hefur sagt að geta fyrirtækja til að taka á sig frekari kostnaðarhækkanir gæti verið „komin að endamörkum“. Laun verða ekki ákvörðuð án tillits til verðmætasköpunar heldur hljóta þau að taka mið af samkeppnishæfni landsins hverju sinni en við blasir að helstu útflutningsgreinarnar eru í aðþrengdri stöðu. Mestu skiptir að standa vörð um kaupmáttaraukningu síðustu ára og þann verðstöðugleika sem hefur gefið Seðlabankanum færi á að lækka vexti. Sökum óvenju- legra aðstæðna – mikillar gengisstyrkingar, hagstæðra viðskiptakjara og lægra vöruverðs vegna afnáms tolla og vörugjalda – þá fór verðbólgan ekki af stað eins og óttast var eftir þær launahækkanir sem samið var um í síðustu kjarasamningum. Það væri fádæma ábyrgðarleysi að veðja á að lukkan verði aftur með okkur í liði í þetta sinn. Sá leikur verður alveg örugglega ekki endurtekinn í bráð. Ekki aftur 5 . j a n ú a r 2 0 1 8 F Ö S T U D a G U r10 S k o ð U n ∙ F r É T T a B L a ð i ð SKOÐUN 0 5 -0 1 -2 0 1 8 0 4 :3 5 F B 0 5 6 s _ P 0 5 0 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 4 7 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 0 7 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 1 0 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 E A 9 -E D 0 4 1 E A 9 -E B C 8 1 E A 9 -E A 8 C 1 E A 9 -E 9 5 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 7 A F B 0 5 6 s _ 4 _ 1 _ 2 0 1 8 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.