Fréttablaðið - 05.01.2018, Blaðsíða 22

Fréttablaðið - 05.01.2018, Blaðsíða 22
Þemað í ár er ofurhetjur og fimm krakkar sem taka þátt í lestrarátakinu verða valdir af handahófi úr pottinum og gerðir að persónum í næstu bók. Ævar Þór Benediktsson Oddur Freyr Þorsteinsson oddurfreyr@365.is 4 KYNNINGARBLAÐ 5 . jA N úA R 2 0 1 8 F Ö S T U DAG U RsKóLAR oG NámsKeIÐ Við höfum boðið upp á fjarnám frá árinu 2001. Þetta er vinsæll valmöguleiki og á síðustu önn voru um 1.300 nemendur í fjarnámi við skólann,“ segir Steinunn H. Hafstað, fjar- námsstjóri Fjölbrautaskólans við Ármúla. Skráning og greiðsla fer fram á heimasíðu skólans til 10. janúar. Á síðunni kemur fram hvaða áfangar eru í boði og lýsing á þeim. Þurfi fólk aðstoð við að finna út hvaða áfanga það þarf að taka býðst þeim ráðgjöf frá skólanum. „Námið er sett upp í kennslu- kerfinu Moodle og hefur nemandi þar aðgang að kennurum, verk- efnum og prófum og því námsefni sem ekki þarf að kaupa. Í kerfinu er einnig ítarefni, myndbönd og hljóðupptökur og þá fær hver nemandi námsáætlun og skila- áætlun verkefna yfir önnina. Í lok annar eru próf og þá þarf nemand- inn að mæta í skólann eða á ein- hvern stað hann býr ekki á höfuð- borgarsvæðinu eða erlendis,“ segir Steinunn. Hverjir sækja fjarnám? „Afar fjölbreyttur hópur nýtir sér fjarnámið á nánast öllum aldri. Til dæmis nemendur í framhaldsnámi sem þurfa að endurtaka áfanga eða vilja flýta fyrir sér. Einnig nemendur sem lokið hafa starfsnámi og þurfa að bæta við sig til stúdentsprófs og nemendur sem þegar hafa lokið stúdentsprófi en þurfa að bæta við áföngum til að uppfylla inntöku- skilyrði háskóla. Stór hluti nem- enda í fjarnámi er fólk sem hefur nám að nýju efir hlé. Þá erum við með stóran hóp nemenda í 9. og 10. bekk grunnskóla sem taka áfanga í fjarnámi hjá okkur. Þeir nemendur fá námsefni við hæfi sem fæst metið inn í framhalds- skólana. Það flýtir fyrir krökkun- um og gerir grunnskólunum kleift að koma til móts við styrkleika þeirra án þess að þau þurfi að stökkva yfir bekki.“ Að auki býður skólinn upp á fjölbreytt nám á heilbrigðisbrautum. Aðstoð við heimanám Öllum nemendum skólans, bæði í dagskóla og fjarnámi, býðst aðstoð við heimanám í námssetri skólans sem opið er á hverjum degi. Aðstoðinni sinna bæði kennarar og nemendur. Nánari upplýsingar á http://www. fa.is/fjarnam/um-fjarnam/ Fjarnemar í Fá á annað þúsund Fjölbrautaskólinn í Ármúla býður upp á almennt framhaldsskólanám í fjarnámi. Nemendur geta tekið einn áfanga og upp í fullt nám á hverri önn. Innritun stendur til 10. janúar. Fjölbrautaskólinn í ármúla býður upp á almennt framhaldsskóla- nám í fjarnámi. Innritun stendur yfir. mYNd/Fá Ævar Þór Benediktsson, einnig þekktur sem Ævar vísindamaður, var að hefja lestrarátak nú í byrjun janúar. Þetta er fjórða árið í röð sem Ævar stendur fyrir lestrarátaki, en átakið snýst um að hvetja grunnskólabörn til að lesa sem mest. Átakið stendur yfir í tvo mánuði, til 1. mars, og á því tímabili geta krakkar í 1. til 10. bekk fyllt út svokallaða lestrarmiða sem verður skilað inn í stóran pott. Fimm krakkar verða svo dregnir úr Lestrarátak Ævars hafið í fjórða sinn Ævar Þór Bene- diktsson hóf lestrarátak 1. janúar, fjórða árið í röð. Átakið stendur til 1. mars og snýst um að hvetja grunn- skólabörn til að lesa. Fimm þátt- takendur verða persónur í næstu bók Ævars. pottinum að átakinu loknu og þeir verða persónur í næstu bók Ævars. „Hingað til hafa samtals verið lesnar rúmlega 177 þúsund bækur í átökunum,“ segir Ævar. „Það er nátt- úrulega bara æðislegt og það hvetur mann til að halda áfram.“ Þátttakendur um allan heim „Krakkar fylla út svokallaða lestrar- miða fyrir hverjar þrjár bækur sem þeir lesa. Hljóðbækur og ef einhver les fyrir þig telst með. Miðana er hægt að fá á skólabókasöfnum og á vefnum mínum og þeir eru svo sendir í pottinn sem verður dregið úr. Því fleiri bækur sem krakkar lesa, þeim mun fleiri miða geta þeir átt í pottinum,“ segir Ævar. „Skólarnir hafa verið mjög duglegir að taka þátt hingað til og Heimili og skóli taka svo við öllum miðum fyrir mig. Hingað til hefur það verið þannig að þegar miðarnir byrja að koma þá kemst fólkið þar ekki í mat því það eru svo margir að koma með miða, sem er algjörlega geggjað. Ef skólinn sjálfur tekur ekki þátt mega krakkar líka bara senda inn sína eigin miða,“ segir Ævar. „Í fyrra byrjaði ég líka að hvetja íslenska krakka sem búa erlendis til að taka þátt og íslenskir krakkar út um allan heim gerðu það, sem var brjálæðislega gaman. Meira að segja íslenskir krakkar sem eiga íslenska foreldra, tala íslensku og lesa á íslensku, en hafa aldrei komið til Íslands, sem er mjög töff.“ Nýjar reglur „Þetta hefur náttúrulega þróast með hverju árinu og á hverju ári hefur líka sniðugum hugmyndum verið gaukað að mér,“ segir Ævar. „Til dæmis gerði ég þá breytingu eftir fyrsta árið að það megi lesa á hvaða tungumáli sem er. Það má líka lesa teiknimyndasögur, það eru alveg jafn miklar bókmenntir og hvað annað. Ég lærði að lesa þannig. Orðaforðinn úr Tinna dugar manni alveg út lífið. Á þessu ári ákvað ég líka að leyfa krökkum upp í 10. bekk að taka þátt,“ segir Ævar. „Þetta hefur alltaf verið bara 1.-7. bekkur, en ég hef fundið fyrir áhuga frá eldri krökkum svo að í ár ákvað ég að hafa þetta alveg upp í 10. bekk. Það er bara betra að hafa fleiri með. Þemað í ár er ofurhetjur og fimm krakkar sem taka þátt í lestrar- átakinu verða valdir af handahófi úr pottinum og gerðir að persónum í næstu bók, sem ber vinnuheitið Ofurhetjuvíddin og kemur út í vor,“ segir Ævar. „Þetta er fjórða bókin í bernskubrekum Ævars vísinda- manns og það bætast alltaf fimm nýir krakkar í hópinn á hverju ári sem taka þátt í bók ársins.“ Veggspjöld sem hreyfast „Auglýsingastofan Brandenburg slóst í hópinn í fyrra og hannaði og teiknaði veggspjöldin,“ segir Ævar. „Þau gerðu þrjú æðisleg veggspjöld og unnu meira að segja Lúðurinn, íslensku auglýsingaverðlaunin, fyrir bestu veggspjöldin. Í ár kom upp sú hugmynd að gera plaköt sem hreyfast þegar maður labbar fram hjá þeim,“ segir Ævar. „Það þurfti að hanna þau alveg sér- staklega og Þorvaldur Sævar Gunn- arsson, sem teiknar veggspjöldin fyrir mig, teiknaði í raun tvö plaköt sem voru skeytt saman í eitt. Það er ekki hægt að búa til þessi plaköt á Íslandi svo við þurftum að leita til fyrirtækis í Tyrklandi. Það var mikil spenna þegar þau losnuðu úr tollinum að sjá hvort þetta virkaði ekki örugglega. En þau eru algjörlega æðisleg!“ mikil vinna Ævar leggur á sig mikla vinnu fyrir átakið. „Verkefnið er styrkt af mennta- og menningarmálaráðu- neytinu, Forlaginu, Brandenburg auglýsingastofu, Póstinum, Reykja- vík Bókmenntaborg UNESCO, Heimili og skóla, DHL á Íslandi, Barnavinafélaginu Sumargjöf og Þjónustumiðstöð bókasafna,“ segir hann. „Síðustu ár hef ég fengið fólk til að hjálpa mér að pakka vegg- spjöldunum sem eru send í skóla landsins, en í ár ákvað ég að sjá bara um þetta sjálfur, og gefa öðrum smá frí. Eftir á að hyggja voru það kannski mistök, þar sem þetta tók heila helgi.“ Lestrarátak Ævars er nú í fullum gangi. Allar nánari upplýsingar og lestrarmiðarnir eru á vefnum visindamadur.is. 0 5 -0 1 -2 0 1 8 0 4 :3 5 F B 0 5 6 s _ P 0 3 5 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 3 4 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 2 2 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 2 3 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 E A 9 -F B D 4 1 E A 9 -F A 9 8 1 E A 9 -F 9 5 C 1 E A 9 -F 8 2 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 8 B F B 0 5 6 s _ 4 _ 1 _ 2 0 1 8 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.