Fréttablaðið - 05.01.2018, Page 33

Fréttablaðið - 05.01.2018, Page 33
KYNNINGARBLAÐ 15 F Ö S T U DAG U R 5 . ja n úa r 2 0 1 8 SKóLAR oG NámSKeIÐ Vísindamenn ætla að hjálpa stúdentum í Noregi að skilja fræðilegt tungumál í háskólaumhverfinu. Margir nemendur koma illa undir það búnir í háskóla að skilja hið akademíska tungu- mál. Ruth Vatvedt, prófessor í ritfræði við Háskólann í Ósló, var alin upp á sveitabæ en þegar hún byrjaði háskólanám fann hún að það voru mörg orð sem hún skildi ekki. Henni var sagt að læra betur orðaforða háskólamanna. Ruth segir að það hafi tekið sig langan tíma. Hún hefur nú tekið saman bók ásamt fleiri vísindamönnum þar sem lögð er fram ný þekking á fræðilegu tungutaki á Norður- löndum. Námsmenn sem eiga háskóla- menntaða foreldra eru oft betur í stakk búnir til að stunda námið en þeir sem eiga ómennt- aða foreldra. Nokkrar rann- sóknir sýna að ungt fólk skilur ekki nægjanlega vel sitt eigið mál. Nýja bókin á að hjálpa fólki að skilja fræðileg orð og læra hvernig þau eru notuð. Enskan er sömuleiðis meira og minna notuð í háskólakennslu á Norðurlöndum. Flestir doktors- nemar læra til dæmis eingöngu á ensku. Hjálpa með orðaforðann Kyrrseta er afar óholl og líkaminn stirðnar við langar setur yfir skólabókum. Nauð- synlegt er að standa öðru hvoru upp og hreyfa sig og eins er hægt að gera léttar teygjuæfingar við borðið. l Standið upp úr stólnum án þess að nota hendur og setjist aftur niður. Gerið þetta nokkrum sinnum í röð. l Skiptið stólnum út fyrir stóran æfingabolta. Með því að sitja á boltanum styrkjast vöðvar í baki, lærum, rassi og kvið þar sem við notum þá til að halda jafnvægi á boltanum. l Lyftið öxlum alveg upp að eyrum, haldið í nokkrar sekúndur og látið þær svo „detta“ niður. Endurtakið nokkrum sinnum. l Snúið höfðinu rólega til hægri og vinstri. l Réttið hendurnar beint fram, kreppið hnefana og snúið í hringi um úlnliðina. Snúið nokkra hringi í báðar áttir. Opnið svo lófana og hristið hendurnar. l Andið djúpt að ykkur og vindið upp á efri hluta líkamans um leið og þið andið frá ykkur. Snúið nokkrum sinnum í báðar áttir. l Stillið klukkuna á símanum svo hún hringi á minnst klukkutíma fresti, helst oftar. Standið þá upp frá borðinu og sækið ykkur vatns- glas. Teygjuæfingar yfir bókunum  Oft getur verið höfuðverkur að finna til nesti fyrir börnin á morgnana, bæði hvað á að gefa í nesti og hve mikið. Á vef Lundarskóla á Akureyri má finna leiðbeiningar um hvað er sniðugt að hafa í nesti fyrir 6-12 ára börn sem borða góðan morgunverð og fá heitan mat í hádeginu í skól- anum. Mælt er með að hafa ávexti annan hvern dag en hálfa samloku hinn daginn. Hæfilegur skammtur er eitt stykki epli, banani eða pera, 2 mandarínur, 2 plómur, 8-10 jarðarber, 10-15 vínber, 1-2 melónu- bitar eða kíví en þá er gott að setja teskeið í nestisboxið. Í samlokuna er mælt með grófu brauði eða flatköku með smjöri og áleggi sem til dæmis getur verið ostur og epli eða paprika í sneiðum, smurostur, banani eða kjötálegg með káli, gúrku eða tómötum. Einnig er mælt með smá grænmeti aukalega eins og gulrót, kirsuberjatómötum eða blómkáls- bitum. Með er best að drekka vatn eða mjólk en margir krakkar eru í mjólkuráskrift í skólanum. Fengið af vef Lundarskóla. Hollt og staðgott í nestisboxið mörg fræðileg orð þarf að læra í háskóla. Nám í netagerð – veiðafæratækni Á vorönn 2018 mun Fisktækniskóli Íslands bjóða upp á nám í netagerð (veiðarfæratækni). Námið er í samstarfi við fagnefnd netagerðar, Fjölbrautaskóla Suðurnesja og öll helstu fyrirtæki í veiðarfærðargerð og þjónustuaðila á Íslandi. Kenndar verða verk- og faggreinar netagerðar samkvæmt samþykktri námskrá 2016. Starfstengt nám fwww.fiskt.is Netagerð Upplýsingar um innritun og frekari upplýsingar um námið má sjá á heimsíðu skólans www.fiskt.is sími 412-5966 info@fikst.is verk- og faggreinar netagerðar Vorönn 2018 0 5 -0 1 -2 0 1 8 0 4 :3 5 F B 0 5 6 s _ P 0 3 6 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 3 3 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 2 1 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 2 4 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 E A 9 -F 6 E 4 1 E A 9 -F 5 A 8 1 E A 9 -F 4 6 C 1 E A 9 -F 3 3 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 8 A F B 0 5 6 s _ 4 _ 1 _ 2 0 1 8 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.