Fréttablaðið - 05.01.2018, Qupperneq 37
KYNNINGARBLAÐ 19 F Ö S T U DAG U R 5 . ja n úa r 2 0 1 8 SKóLAR oG NámSKeIÐ
Sigursteinn Snorrason hefur þjálfað þúsundir Íslendinga undanfarin 25 ár. mYND/eRNIR
Vinsældir Mudo Gym hafa vaxið mikið frá því stöðin var opnuð í Víkurhvarfi 1
í Kópavogi fyrir tveimur árum.
Stöðin hefur alla tíð sérhæft sig í
öflugu barna- og fjölskyldustarfi í
taekwondo auk þess sem aðstand-
endur hennar segjast stoltir af því
að Einherjar, sterkasti keppnis-
hópur landsins í bardaga, sé upp-
alinn hjá þeim.
Upphaf ársins hefur verið anna-
samur tími í Mudo Gym en þar
fóru allir flokkar á fullt í upp-
hafi vikunnar, segir Sigursteinn
Snorrason yfirkennari sem býr
yfir 20 ára reynslu af kennslu í
taekwondo, í grunn- og háskóla og
í mörgum mismunandi íþróttum.
„Vinsælustu flokkarnir eru risarnir
og nareban-byrjendur. Þeir hafa
verið nánast uppseldir frá byrjun
og verður engin breyting á þessari
önn. Við munum leggja meiri
áherslu á fullorðna og form æfingar
á þessu ári og höfum fengið frá-
bæra nýja kennara í hópinn fyrir
þessa önn.“
margt í boði
Mudo Gym býður upp á barna-
starf sem hefst strax við tveggja
ára aldurinn. Hóparnir skiptast að
sögn Sigursteins í tröll (2-3 ára),
risa (4-5 ára), dreka (börn á ein-
hverfurófi) og nareban-flokkana
sem eru 6-12 ára börn skipt eftir
aldri og beltum. „Auk þess erum
við með skemmtilegan fullorðins-
hóp fyrir byrjendur og að lokum
mjög sterkan keppnishóp sem
er nú að verða stærsti hópurinn
okkar. Hópurinn kallast Einherjar,
eftir stríðsmönnum guðanna, og
bjóðum við upp á bæði keppnis-
flokk í formi sem og í bardaga.
Þessar æfingar hafa einnig nýst
öðrum félögum á Íslandi og má
segja að Mudo sé orðin miðstöð
fyrir metnaðarfullt keppnisstarf
sem er opið öllum sem vilja vinna
með okkur. Keppnisflokkurinn
æfir 6-10 sinnum í viku en aðrir
hópar æfa 1-3 sinnum í viku.“
Frábærir kennarar
Mudo Gym tók til starfa í janúar
2016 og fyrstu mánuðina var ein-
göngu boðið upp á einn barna-
flokk og einn keppnishóp en
heildarfjöldi nemenda var um 25.
„Um sumarið var framkvæmdum
að mestu lokið hjá okkur og hægt
var að fara að fjölga hópum og
bæta þjónustuna. Haustið 2016
varð sprenging hjá okkur og fór
skólinn úr tveimur í þrettán flokka
á fyrsta heila starfsvetrinum og
nemendafjöldinn er núna í kring
um 200. Við fengum frábæra
kennara frá móðurlandinu, Kóreu,
til okkar í nokkra mánuði auk
gestakennara frá Bandaríkjunum,
Bretlandi og Norðurlöndunum.“
Haustið 2017 bættist við starfs-
semi Mudo Gym þegar þeim
bauðst aðstaða hjá Primal Gym í
Faxafeni í Reykjavík. „Við höfum
auk þess verið með skipulagðar
æfingabúðir 2-3 sinnum í mánuði,
bæði hér á höfuðborgarsvæðinu og
úti á landi. Vorið leggst vel í okkur
og er stefnan sett fram á við og
gaman að sjá marga af okkar ungu
nemendum farna að feta sig áfram
á keppnisbrautinni og ná virkilega
góðum árangri.“
Vinsæl íþrótt
Taekwondo er vinsælasta bardaga-
list í heimi að sögn Sigursteins
með um 70 milljónir iðkenda um
allan heim. Greinin komst inn á
Ólympíuleikana árið 2000 og eftir
það hafa vinsældirnar rokið upp.
„Sem hreyfing byggist taekwondo
mikið upp á alhliða líkamlegu
formi, mikið er af teygjuæfingum
og fimi, jafnvægi og hraða. Í Mudo
Gym vinnum við líka mikið út
frá slagorðunum okkar „Búum
til sterkari börn” og „Sjálfstraust,
sjálfsagi, sjálfsvörn“. Námskráin
okkar byggist að miklu leyti upp á
líkamlegum æfingum úr bardaga-
listum, fimleikum, jóga, frjálsum
íþróttum, lyftingum og fleiru.“
Sem menntaður íþróttakennari
og starfandi einka- og liðleika-
þjálfari til 20 ára fléttar Sigur-
steinn mikið af þeirri reynslu inn í
æfingar nemenda. „Við viljum sjá
nemendur okkar sterkari líkam-
lega en ekki síður andlega og
félagslega. Að mínu mati er það
þessi vinkill sem gerir taekwondo
svona sérstakt og vinsælt. Í okkar
tilviki sjá foreldrar mikinn mun á
börnunum sínum, jafnvel á fyrstu
vikunum. Sjálfstraust eykst sem og
almenn kurteisi og áhugi á lífinu
almennt. Það er ómetanlegt að
sjá barnið sitt geisla af gleði og ná
árangri.“
mjög góð aðstaða
Aðstaðan í Víkurhvarfi er orðin
mjög þægileg að sögn Sigursteins,
ekki of stór en samt með allt sem
þarf. „Við erum með tvo sali. Sá
stærri er með pláss fyrir stærri
flokkana sem sumir eru með allt að
35 manns. Litli salurinn er einnig
ætlaður til þrekæfinga og ein-
staklingsæfinga þannig að saman
nýtast þeir mjög vel. Við erum
að leggja lokahönd á eldhús- og
svefnaðstöðu sem verður frábær
viðbót þar sem við erum með
bókaðar heimsóknir frá um 40
útlendingum fram á vor. Þeir geta
þá gist í aðstöðunni okkar en ekki
heima hjá mér.“
nánari upplýsingar má finna á
sterkariborn.is.
Hvar eru sterkari börn?
Taekwondo er vinsælasta bardagalist í heimi og hefur iðkendum hennar fjölgað jafnt og þétt
hér á landi. Mudo Gym í Kópavogi og býður upp á fjölbreytta tíma fyrir ólíka aldurshópa.
Leo og Gunnar Snorri undirbúa sig af kappi fyrir Norðurlandamótið sem fram fer í Helsinki í janúar. mYND/eRNIR
Taekwondo byggist að miklu leyti
upp á spörkum og liðleika.
mYND/SVeNNI SPeIGHT
0
5
-0
1
-2
0
1
8
0
4
:3
5
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
5
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
E
A
9
-E
8
1
4
1
E
A
9
-E
6
D
8
1
E
A
9
-E
5
9
C
1
E
A
9
-E
4
6
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
B
F
B
0
5
6
s
_
4
_
1
_
2
0
1
8
C
M
Y
K