Fréttablaðið - 05.01.2018, Side 50
Þetta er ár ástarinnar
Elsku Hrúturinn minn, þú ert að fara í afar
merkilegt og öðruvísi ár miðað við fyrri ár. Í
talnaspeki er talan sex yfir þér og það táknar
ástina, fjölskylduna og aftur ástina. Næstu
mánuðina reynir á mjög margt í lífi þínu og
þú tekur afgerandi ákvarðanir um eitthvað
sem þú bjóst ekki við að þú hefðir í þér að
geta gert. Á þessu ári sigrar ástin og það þýðir
að ást sem hefur verið erfiðleikum bundin
springur, fer og gefur þér þar með nýja mögu-
leika. Þetta tengist yfirleitt bæði fjölskyldu,
vinum og ástinni því hún er fólgin í svo
mörgu. Þetta er svo sannarlega ár frjósemi í
svo mörgu, ekki bara getnaði heldur líka hug-
myndum. Frjósemi hugans á þessu ári verður
nefnilega endalaus. Þú getur látið fólk sem
stendur þér næst hindra þig í að framkvæma
það sem þú vilt og þú gerir oft engan greinar-
mun á öryggi og ást.
Árið 2018 er fyrir þér ár ástarinnar, sama í
hverju það er fólgið.
Nýtt upphaf á nýju ári
Elsku Ljónið mitt, eins og þú ert mikið
hjarðdýr og þú elskar fólk, þá er sjálfstæði
það sem þú átt að hugsa um og er það
mikilvægasta sem þú hefur. Ef þú ert ekki
dásamlega ánægt með þig þá dregurðu þig í
hlé, slekkur á Facebook, dregur þig inn í skel
og reynir að vera eins ósýnilegt og þú getur.
Samt elskarðu að baða þig í sviðsljósinu en
neitar því statt og stöðugt ef þú ert spurt. Þú
hefur dásamlegan stíl og hann er mjög per-
sónulegur, en þú tekur álit annarra of nærri
þér og getur látið eina neikvæða setningu frá
manneskju sem skiptir þig engu máli rífa þig
niður í marga daga. Á þessu ári ertu að fara
inn í nýtt upphaf, það færist nær þér með
hverjum mánuðinum og sýnir sig sérstaklega
þegar þú átt afmæli.
Þú hefur átt það til að loka á vandamálin
þín, hreinlega valið að sjá þau ekki, en núna
á þessu ári horfir þú svo sannarlega beint í
spegilinn og sérð hverju þú þarft að breyta.
Í ástinni gefurðu frá þér mikinn kynþokka
eða útgeislun.
Hoppaðu í djúpu laugina
Elsku Bogmaðurinn minn, þú ert búinn að
fara í gegnum áhrifaríkt ár þar sem þú hefur
tekið á hlutunum eins og þú getur. Þetta ár
sem þú siglir inn í núna verður þér miklu létt-
ara en samt svo spennandi og krefjandi.
Þar sem þú elskar ferðalög og allt sem er
krefjandi verður mikið af því, þetta er líka ár
fyrir alla sem ætla að breyta um samastað og
það er mikil heppni í kringum allt sem tengist
því. „Taktu áhættu!“ kallar árið 2018 á þig.
Ef þér finnst að ekkert hafi breyst í langan
tíma ertu ekki í réttum farvegi í átt að framtíð
þinni, þetta ár gefur þér svo sannarlega
tækifæri til að breyta svörtu í hvítt, svo taktu
áhættu og gerðu ævisöguna meira kryddaða
og mundu að það vill enginn fá þreytandi
minningargreinar um sjálfan sig.
Þú ert sveipaður svo mikilli dulúð og fólki
finnst þú spennandi. Á þessu ári sérðu svo
vel hvað þú hefur gert rétt, en sérð líka svo
vel hvað þú hefðir mátt gera betur, en ekki
dvelja við þetta eina mínútu heldur stingdu
þér beint í djúpu laugina.
Þetta mun allt ganga upp
Elsku Nautið mitt, þú ert týpa sem elskar að
lifa og hrærast í að passa upp á fjölskylduna
og einfaldleikann. Í eðli þínu, eins og þú ert
nú merkilegt, þá leyfir þú þér ekki rosalega
tilbreytingu í lífi þínu. Þú ert svo pottþétt
manneskja en getur akkúrat látið það rústa
parti af tilveru þinni. Þú elskar að vera ást-
fangið, jú, því þú ert fjölskyldumanneskja,
en getur orðið svo óhamingjusamt því að þú
þarfnast mikillar rómantíkur og elskar að vera
kynæsandi. Árið 2018 gefur þér mjög merki-
lega hluti fram á sumarið, það er eins og þú
hafir sent líf þitt til endurskoðanda og hann
sé að reikna út hvort þú sért í réttum farvegi.
Þetta er svo sannarlega tími sem eflir þig
því þú munt átta þig á hverjir eru þínir réttu
draumar eða hvort hugsun þín sé bara byggð
á von og trú um að eitthvað muni breytast.
Allt í sambandi við vinnu, verkefni og
veraldleg gæði mun ganga betur upp en þú
þorðir að vona.
Galdramáttur verður yfir þér
Elsku Meyjan mín, þú átt svo sannarlega skilið
góða spá enda, samkvæmt talnaspeki, ertu á
ellefunni sem er masterstala og þá fyrst er líf
í tuskunum. Þetta er mikið tilfinningaár og þú
sýnir ótrúlegasta fólki mikla tilfinningasemi
og ert stöðugt að breyta og bæta velferð
annarra og þín þá sömuleiðis í leiðinni.
Þú átt eftir að hlaupa uppi draumana þína
og þeir rætast að sjálfsögðu ekki allir því
sumir draumar eru í raun martröð.
Það verða afgerandi breytingar í haust
og þú sérð þegar líða tekur á veturinn að
lífið fer fram úr björtustu vonum því þú ert
með þennan dásamlega x-faktor þó að fólk
hræðist þig stundum en það er einfaldlega
vegna þess að það þekkir þig ekki.
Það verður yfir þér galdramáttur og þú
hrindir svo merkilegum verkefnum í fram-
kvæmd að samferðamenn þínir verða hissa.
Þér mun reynast auðvelt að ganga fram hjá
eða henda frá þér þeim erfiðleikum sem hafa
hrjáð þig síðustu misseri ig skilja hvað skiptir
þig máli og hvað skiptir þig aðalmáli.
Þú endurfæðist
Elsku Steingeitin mín, lífið gengur svo rosa-
lega hratt og í öllu saman er gott fyrir þig að
aftengjast stressinu. Það mun koma þér á
óvart, þegar þú hættir að stjórna og reyna að
redda öllu, að þegar þú sleppir tökunum þá
er eins og vandamálið leysist.
Þú hefur svo heillandi og bjartan persónu-
leika og elskar að raða hlutum í kringum þig,
helst merkjavöru, því þú þolir ekki eftir-
líkingar. Það er sko ekki hægt að segja að þú
sért eftirlíking af nokkru merki.
Janúar verður þér óvenju góður. Þú verður
með tengslanetið þitt á hreinu og skemmtir
þér vel. En þegar líður að febrúar og mars eru
lögð fyrir þig erfið verkefni, að þér finnst, en
þú verður alveg steinhissa á því hversu vel
þú leysir þau. Vorið gefur þér bestu stundir
ársins. Þú hefur svo mikinn kraft seinni part
ársins, nóg að berjast við ofurefli og sigra
það. Og á þessu ári er eins og þú endurfæðist
og sjáir svo skýrt að allt er fullkomið eins og
það er. Á þessu ári færðu verðlaun eða viður-
kenningu fyrir eitthvað sem þú ert að gera.
Óskir þínar á silfurfati
Elsku Tvíburinn minn, þú hefur verið að
missa jafnvægið og heilinn þinn er algjör-
lega að springa úr alls konar hugsunum, það
er svo mikilvægt fyrir þig að gera ekki of
miklar væntingar til alls því þegar þér finnst
útkoman ekki þér í vil er allt svo ömurlegt.
Þetta hefur kennt mér mikið og er akk-
úrat sérstök setning til þín fyrir næstu þrjá
mánuði. Um leið og þú sleppir hræðslunni
um að útkoman verði þér ekki í hag þá sérðu
lífið í litum regnbogans.
Þegar vorið fer að nálgast verður þú eins
og aðalrakettan, lýsir upp himininn og fólk
fyllist aðdáun.
Seinnipart vors og frameftir því leikur þú
við hvern þinn fingur því þú finnur að áhrif
þín á lífið, tilveruna og annað fólk færa þér
óskir þínar á silfurfati. Það er mjög trúlegt að
þú munir skipta um heimili, eignast kannski
bara annað heimili, fara í betri vinnu, verkefni
eða skóla.
Ekkert mun stöðva þig
Elsku Vogin mín, þú ert á spennandi tímum
og líf þitt er eins og svolítið ótrúleg bíómynd
– þú ert ekki alveg viss um hvað er fram
undan en virðist vera með opinn faðminn
til að taka hverju sem er. Að sjálfsögðu ertu
með allt á hreinu og skilur ekki fólk sem
er það ekki, þú ert uppfull af dásamlegum
markmiðum og ekkert mun stöðva frama
þinn í starfi, þú vefur fólki í kringum þig þótt
það sé ekki endilega fólk sem þú vilt hafa
nálægt þér, þér finnst það bara gáfulegt að
hafa alla góða.
Þú heldur áfram þó að batteríin séu alveg
búin því þú þrífst best undir álagi og þannig
muntu ná árangri sem þú næðir ekki undir
öðrum kringumstæðum.
Talan þrír er að færast inn í líf þitt og gefur
þér meiri skemmtanir og eykur áhuga þinn á
list og það er alveg mögulegt að þú sjáir að
þú ert miklu meiri listamaður en þú hefur
hingað til talið.
Þetta er mjög spennandi ár sem þú ert að
fara inn í en í raun bara framhald af liðnu ári.
Þú þarft að taka ákvörðun
Elsku Vatnsberinn minn, þú ert sú mann-
eskja sem gleður ávallt hjarta mitt og mig
langar svo sannarlega til að knúsa þig. En þú
ert á tímabili þar sem þú þarft að taka stórar
ákvarðanir og alls ekki víkja frá því sem þú
ætlar þér. Þú ert að byggja svo sterkar undir-
stöður fyrir framtíðina, en þér mun finnast
það dálítið erfitt.
Sumarið verður góður tími til að faðma
að sér fegurð, lífið og fjölskyldu. Haustið
og veturinn gefa þér svo veraldleg gæði og
peninga en þú skalt ekki láta það skipta þig
of miklu.
Þar sem þú ert óvenju gjafmild persóna
og setur mikið í gjafirnar áttu inni fullt af
óvæntum veislum – ég ætla þó ekki að út-
skýra nákvæmlega hvað ég er að meina.
Þú ert daðurkóngur eða -drottning því þér
finnst það svo eðlilegt og fallegt að veita
öðrum athygli. Og þar sem við erum ein
heild, allur heimurinn, mun það tengja þig til
útlanda og þú átt eftir að verða mjög hissa á
því hverjum þú munt hanga með árið 2018.
Elskaðu þig eins og þú ert
Elsku Krabbinn minn, náttúrulega ertu svo
dásamlega skemmtilegur og athyglisverður
og það verður mikið að gerast á næsta ári og
það sem hefur verið að ganga vel á síðustu
mánuðum mun hreinlega halda áfram
næstu árin. En það sem hefur verið erfitt
og sett strik í reikninginn þinn gæti fært þér
viss endalok, ekki vera hræddur við orðið
endalok því það er svipað og tólfti mánuður
ársins, desember, því að hann er endinn á
árinu. Þá horfir maður til baka og fer yfir
síðasta ár og það sem hefur ekki blessast á
þessum tíma þarftu bara að skilja eftir til að
gefa meira rúm fyrir það sem gengur vel.
Það er ekki nýtt að mikil tilfinningasemi
fylgi þér og það er það sem gerir þig að þeirri
manneskju sem maður vill svo sannarlega
hafa nálægt sér. Á þessu ári fyllistu endalausri
orku og eldmóði á köflum en svo færist yfir
þig værð. Farðu að elska þig alveg eins og þú
ert. Þú hefur svo mikinn mátt.
Leyfðu bara lífinu að gerast
Elsku Sporðdrekinn minn, þú ert með mjög
mikinn kraft yfir þessu ári og munt hafa mun
meiri stjórn á lífi þínu en þú hefur nokkurn
tíma haft, en það eina sem mun hindra þig er
að þú veljir að deyfa þig niður í andleysi eða
nota efni eins og áfengi eða lyf til þess að
stöðva hugsanir þínar.
Þú ert á rosalega sterkri tölu í talnaspekinni
þetta árið og þetta verður sá tími sem þú
ákveður hvernig þú vilt að framtíð þín fari.
Fyrriparturinn af árinu byggist reyndar ekki
á því heldur byggist hann á stormasamri
hringiðu í kringum þig sem þú getur ósjálf-
rátt orðið þáttakandi í ef þú skiptir þér of
mikið af. En stundum þarf maður ekki að
hafa skoðun á öllu og öllum, heldur sleppa
tökunum og leyfa lífinu bara að gerast.
Þeir sem eru á lausu eiga að hætta að spá
í þá týpu sem þeir héldu að myndi henta
þeim. Svarið til þín og þíns ástarvesens er:
Gefðu öðruvísi týpum séns. Fyrir þá sem eru
óhamingjusamir í sambandi og hafa verið
lengi verður þetta ár uppgjörs.
Hentu út orðinu „stress“
Elsku Fiskurinn minn, þú ert alltaf svo ný-
móðins en hangir kannski tiltölulega mikið í
símanum og getur fest þig í tilgangslausum
leikjum í tölvunni þinni. En þú ert fullur af
rómantískum hugmyndum og botnar ekkert í
því ef fólk skilur ekki hvað þú ert að segja, þá
verðurðu sár.
Þú getur misst orkuna þína niður í leiða og
ólund svo steinhættu að reyna að þóknast
öðrum og segðu bara skýrt með fallegum tón
í röddinni hvað þú vilt í raun og veru.
Þú munt byrja þetta dásamlega ár 2018
með því að ákveða annaðhvort að fara í
ferðalag eða taka frí, að finna sjálfan þig eða
hvað svo sem hentar þér. Þetta er rosalega
góð byrjun á árinu.
Á þessu ári lendir þú á dásamlegri tölu
samkvæmt indverskri talnaspeki, þú dvelur á
tölunni fimm sem gefur þér óvenjuleg tæki-
færi og nýjar upplifanir af lífinu.
Ég vil að þú lærir að henda út orðinu
„stress“ og setja ný orð í staðinn sem eru: „Ég
er spenntur.“
Spáin gildir fyrir janúar
Lengri útgáfa af stjörnuspá á
visir.is/SiggaKling
Janúarspá Siggu Kling
21. mars–19. apríl
Hrúturinn
20. apríl–20. maí
Nautið
21. maí–20. júní
Tvíburinn Krabbinn
23. júlí–22. ágúst
Ljónið
23. ágúst–22. september
Meyjan
23. september–22. október
Vogin
23. október–21. nóvember
Sporðdrekinn
22. nóvember–21. desember
Bogmaðurinn
22. desember–19. janúar
Steingeitin
20. janúar–18. febrúar
Vatnsberinn
21. júní–22. júlí
19. febrúar–20. mars
Fiskarnir
Spáin birtist fyrsta föstudag hvers mánaðar.
5 . j a n ú a r 2 0 1 8 F Ö S T U D a G U r26 l í F i ð ∙ F r É T T a B l a ð i ð
Lífið
0
5
-0
1
-2
0
1
8
0
4
:3
5
F
B
0
5
6
s
_
P
0
5
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
0
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
E
A
9
-E
D
0
4
1
E
A
9
-E
B
C
8
1
E
A
9
-E
A
8
C
1
E
A
9
-E
9
5
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
7
A
F
B
0
5
6
s
_
4
_
1
_
2
0
1
8
C
M
Y
K