Víkurfréttir - 18.12.2003, Síða 2
JÓLABLAÐ VÍKURFRÉTTA 2003 VÍKURFRÉTTIR Á NETINU I www.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!2
G
le
ð
il
e
g
a
h
á
tí
ð
!
Áþriðjudag var sett form-lega af stað sérstakt átaksem Félagsmálaráð-
herra og Vinnumálastofnunu
standa að varðandi langtímaat-
vinnuleysi og atvinnuleysi ungs
fólks. Með verkefninu verður
leitast við að greina orsakir at-
vinnuleysis þessara hópa á ein-
stökum svæðum og setja af
stað staðbundin verkefni sem
eiga að treysta stöðu viðkom-
andi hópa á vinnumarkaði,
meðal annars með námsfram-
boði við hæfi. Verkefninu var
hleypt af stokkunum í húsa-
kynnum Kaffitárs í Reykjanes-
bæ að viðstöddum Árna
Magnússyni félagsmálaráð-
herra, Hjálmari Árnasyni al-
þingismanni og Gissuri Péturs-
syni forstjóra Vinnumálastofn-
unar.
Árni Magnússon félagsmálaráð-
herra sagði ástæðu þess að verk-
efninu væri hleypt af stokkunum
á Suðurnesjum væri sú að at-
vinnuleysi meðal ungs fólks væri
mest hér. „Atvinnuleysi er mest á
Suðurnesjum af landinu öllu og
það hafa verið blikur á lofti í at-
vinnumálum Suðurnesjamanna
um nokkurt skeið. En sem betur
fer eru ekki bara slæmar fréttir
sem koma af svæðinu og vil ég
þar helst nefna fréttir af stækkun
Flugstöðvar Leifs Eiríkssonar.“
Gissur Pétursson forstjóri Vinnu-
málastofnunar kynnti tölur um
atvinnuleysi á landinu og kom
fram í máli hans að atvinnuleysi
væri mest hér á Suðurnesjum og
þá sérstaklega í aldurshópnum 16
til 25 ára. Að sögn Gissurs lítur
hann á Suðurnesin sem spenn-
andi tilraunasvæði. „Á svæðinu
er boðið upp á öflug menntunar-
úrræði og svæðið sem slíkt er
spennandi menntunartengt
vinnumarkaðssvæði.“
Hjálmar Árnason þingmaður
Framsóknarflokksins var skipað-
ur formaður verkefnisstjórnar, en
fyrsti fundur verkefnisstjórnar-
innar var haldinn á þriðjudag.
Hjálmar sagði mikilvægasta
verkefni átaksins væri að skapa
störf og glíma við vandann á
vinnumarkaðnum. „Við þurfum
að finna leiðir til að búa fólk
undir það að takast á við atvinnu-
leysið. Með átakinu verður lögð
áhersla á leiðir til að bjóða upp á
aukið starfsnám í skólum lands-
ins og að koma ungu fólki sem
verið hefur atvinnulaust lengi inn
á vinnumarkaðinn á nýjan leik.
Það er mér mikið fagnaðarefni
að átakið skuli hefjast hér á Suð-
urnesjum, en tek það skýrt fram
að átakið verður unnið á lands-
vísu,“ sagði Hjálmar og lagði
áherslu á að átakið yrði unnið í
samvinnu við skóla, verkalýðsfé-
lög, sveitarfélög og fyrirtæki.
Á fimmtudag hefur verkefnis-
stjórn átaksins boðað fulltrúa
þessara aðila til fundar í Fjöl-
brautaskóla Suðurnesja þar sem
rætt verður um fyrirhugað átak.
Árni Sigfússon bæjarstjóri lýsti
yfir ánægju með átakið og sagði
að Reykjanesbær myndi taka þátt
í störfum verkefnisstjórnarinnar.
Átaki til að draga úr atvinnuleysi
hleypt af stokkunum á Suðurnesjum
Að sjálfsögðu var boðið upp á Kaffitár og með því á fundinum...
Jolablad VF 2003 HEIMA 17.12.2003 15:12 Page 2