Víkurfréttir


Víkurfréttir - 18.12.2003, Page 16

Víkurfréttir - 18.12.2003, Page 16
JÓLABLAÐ VÍKURFRÉTTA 2003 VÍKURFRÉTTIR Á NETINU I www.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!16 G le ð il e g a h á tí ð ! Fjölskyldunni vel tekið Laughton fluttist ásamt fjöl- skyldu sinni til Íslands fyrir rúm- um fjórum mánuðum og segir hann að sér og fjölskyldu sinni hafi verið mjög vel tekið, ekki aðeins af fólkinu innan varnar- svæðisins, heldur líka fólk- inu úr byggðarlögun- um í kring. „Við erum mjög ánægð með samskipti okkar við fólkið, hvort sem það er á faglegum eða félagsleg- um grunni. Við finnum fyrir hlýju og áhuga á því hvað er verið að gera hér innan varnar- svæðisins. En við erum einnig áhugasöm um að kynnast því sem er að gerast utan svæðisins. Þannig að við höfum verið mjög ánægð þann tíma sem við höfum verið hér,“ segir Kafteinninn með bros á vör og bætir því við að hann hafi kynnst mörgum íslendingum sem starfa innan varn- arsvæðis- ins og fjöl- skyldum þeirra. „Mjög ánægjuleg kynni,“ segir hann. Hafa ferðast lítið Frá því kafteinninn kom til Ís- lands hefur hann verið mjög upp- tekin í starfi sínu og hefur haft fá tækifæri haft til að ferðast um landið. Fjölskyldan hefur aðeins farið út fyrir Reykjavík og þau eru spennt að ferðast meira um Ísland. „Við höfum farið til Reykjavíkur og einnig höfum við farið að Gullfossi og Geysi. En við hlökkum til að ferðast meira um Ísland og sérstaklega langar okkur að fara norður því okkur er sagt að þar sé töluvert af trjám. Þegar við fluttumst hingað sett- um við okkur það markmið að skoða eins mikið af Íslandi og við gætum og við hlökkum til þess,“ segir Kafteinninn, en inn- an fjölskyldunnar er einnig hund- urinn Rocky sem þarf nokkra hreyfingu og hefur fjölskyldan verið dugleg við að fara með hann í gönguferðir utan varnar- svæðisins. Töluverð samskipti við sveitarstjórnir Eins og áður segir gegnir Loughton kafteinn einskonar bæjarstjórastöðu innan samfé- lagsins á vellinum. En hefur hann mikil samskipti við sveitar- og bæjarstjórnir í nágrenninu? „Já það hef ég. Bæjar- og sveitar- stjórar í byggðarlögunum á Suð- urnesjum hafa komið í heimsókn á varnarsvæðið þar sem þeir kyn- ntu sér stöðina, skoðuðu tæki og tól, auk þess sem við fengum tækifæri til að tala saman um ýmis málefni. Sérstaklega hef ég verið í góðu sambandi við Árna Sigfússon bæjarstjóra Reykjanes- bæjar. Við höfum sett á fót sam- starf sem felur það í sér að þegar skólar á vellinum eru lokaðir vegna bandarískra hátíðisdaga þá koma íslensk skólabörn í heim- sókn á völlinn.“ Skráði sig í flotann fyrir 23 árum Kafteinn Loughton hefur frá barnæsku haft mikinn áhuga á flugi og snemma tók hann þá ákvörðun að læra að fljúga. „Frá unga aldri langaði mig að læra að fljúga og á sunnudögum fór ég á flugvöllinn í stað þess að fara í kirkju. Þegar ég varð eldri varð ég staðráðinn í því að læra að fljúga sem ég og gerði. Þegar ég útskrifaðist sem flugmaður fór að ég vinna hjá flugfélagi sem fór á Laughton Kafteinn fæddist í Norður-Karólínu og út- skrifaðist frá Arizona háskóla 1979. Hann hefur meistarapróf í þjóðaröryggis- og hernaðarfræðum frá herskóla flotans. Laughton hlaut foringjatign að loknu námi í flugliðs- foringjaskólanum og var skipaður sem flotaflugmað- ur árið 1981. Hann starfaði fyrst með 24. eftirlits- flugsveit flotans í Jacksonville í Flórída og fór þaðan í liðsferðir til Miðjarðarhafsins, Íslands og Bermúda. Í kjölfar þess hóf hann störf í 30. eftirlitsflugsveitinni í Jacksonville m.a. sem aðstoðaryfirmaður hæfnis- mats fyrir flugmenn P-3 Orion eftirlitsflugvéla Atl- antshafsflotans. Árið 1988 hóf Laughton kafteinn störf sem deildar- stjóri flugþilfarsþjónustu á flugmóðurskipinu Theodore Roosevelt í fyrstu ferð skipsins til Mið- jarðarhafsins. Hann hvarf til starfa í landi árið 1990 í aðstoðarliði yfirforingja sjóflutningaflotans í Was- hington. Að því loknu réðst Laughton til 11. eftirlitsflugsveit- arinnar í Brunswick í Maineþar sem hann starfaði sem gæðastjóri, yfirmaður öryggis- og neyðarstarfs- hátta, stjórnsýslustjóri og viðhaldsstjóri. Hann fór í liðsferð með 11. eftirlitssveitinni til Sigonella á Sikiley og starfaði m.a. sem yfirmaður eftirlitssveit- ar C í Jeddah í Sádi-Arabíu undir stjórn yfirforingja 152. séraðgerðasveitarinnar. Hann fór fyrir sveitinni í inngripsaðgerðum á Rauðahafi og starfaði að auki í Roosevelt Roads á Púertó Ríkó, við aðgerðir Atlants- hafsflotans gegn fíkniefnum. Haustið 1994 hóf Laughton störf sem yfirmaður flugmálastefnumótunar hjá yfirmanni lofthernað- ardeildar flotans og hóf nám í herskóla flotans. Að loknu námi árið 1996 tók Laughton kafteinn við starfi aðstoðaryfirforingja og aðgerðastjóra í átt- undu flugþjálfunarsveitinni í Vance flugherstöðinni í Oklahóma og í septem- ber árið eftir tók hann við stjórn 8. kafbátaleit- ar-þyrlusveitarinnar. Því næst gegndi hann starfi siglingafræðings á f l u g m ó ð u r s k i p i n u Theodore Roosevelt þar til í október árið 2000 að hann hóf störf við hern- aðarskipulag og stefnu- mótun í höfuðstöðvum Atlantshafsflota Atlantshafsbandalagsins í Norfolk.. Laughton á rúmlega 3200 flugtíma að baki og hefur hlotið fjölda viðurkenninga fyrir störf sín á vegum Banadríkjaflota. Kona hans er Linda Soberski frá Chicago, Illinois og eiga þau dótturina Stephanie, soninn Jonathan og hundinn Rocky. Andrúmsloftið er ólíkt því íslenska innan varnarsvæðisins á Keflavíkurflugvelli. Þar er allt svo amerískt. Hermenn taka á móti fólki í hliðinu og þeir sjást víða um svæðið, annaðhvort gang- andi eða keyrandi um á amerískum bílum. Og um leið og andrúmsloftið er öðruvísi í þessum litla bæ, hvílir einnig leynd yfir sumu af því sem þar gerist. Þarna er jú bandaríski herinn með aðsetur og án efa er til lítið herbergi á vellinum, fullt af tölvuskjám þar sem yfirmenn geta fyl- gst með því sem gerist í veröldinni. Alveg eins og við sjáum í bíómyndunum. Maðurinn sem situr við stjórnvölinn heitir Mark S. Laughton og er hann Kafteinn í Bandaríska flotanum. Kafteinn Loughton gegnir nokkurskonar bæjarstjórastöðu á varnarsvæðinu og fellur daglegur rekstur undir hans stjórn. Innan Varnarsvæðisins á Keflavíkurflugvelli búa um 4.000 manns, en hermennirnir eru um 1.900. K A F T E I N N , B A N D A R Í K J A F L O TA ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ Bæjarstjórinn á Miðnesheiði Mark S. Laughton Jolablad VF 2003 HEIMA 17.12.2003 14:09 Page 16

x

Víkurfréttir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.