Víkurfréttir - 18.12.2003, Qupperneq 20
JÓLABLAÐ VÍKURFRÉTTA 2003 VÍKURFRÉTTIR Á NETINU I www.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!20
G
le
ð
il
e
g
a
h
á
tí
ð
!
Það er okkur ánægjuefni að svara opin-
berlega eftirfarandi erindi, um leið og
við tjáum þakklæti okkar yfir því að
hinn tryggi höfundur þess skuli teljast til
vina The Sun:
Kæri ritstjóri,
Ég er átta ára gömul. Litlir vinir mínir
segja sumir að jólasveinninn sé ekki til.
Pabbi segir; „Ef eitthvað birtist í The
Sun, má treysta því.“ Verið svo góðir að
að segja mér satt, er jólasveinninn til?
Viginia O’Hanlon, 115 West Ninety-
fifth street.
Virginia, litlu vinir þínir hafa á röngu að
standa. Þeir hafa orðið fyrir áhrifum efa-
semda á öld efahyggjunnar. Þeir trúa
ekki nema þeir sjái. Þeir halda að ekkert
geti verið til sem er ofar skilningi þeirra
smáu huga. Allir hugar eru smáir, Virg-
inia, hvort sem þeir tilheyra mönnum
eða börnum. Í þessum mikla alheimi
okkar er maðurinn einungis sem skor-
dýr, sem maur, ef vitsmunir hans eru
bornir saman við óendanleika veraldar-
innar í kringum hann, á mælistiku þeirra
vitsmuna sem geta skynjað allan sann-
leika og þekkingu.
Já, Virginia, jólasveinninn er til. Hann er
jafnvissulega til og kærleikur og göfug-
lyndi og trúfesta, og þú veist að af slíku
fyrirfinnst sú ofgnótt er gæðir líf þitt
æðstu fegurð og gleði. Sem sagt!
Hversu drungalegur væri ekki
heimurinn ef jólasveinninn
væri ekki til! Hann
væri álíka
drungaleg-
ur og
ef
það
væru
engar Virgini-
ur til. Þá fyrir-
fyndist hvorki
barnsleg tryggð, skáld-
skapur né ævintýri til að gera
þessa tilveru þolanlega. Við
færum á mis við alla ánægju,
ef frá er talin sú er tengist
skilningarvitum og sjón.
Hið ytra ljós bernskunn-
ar sem lýsir upp
gjörvallan heiminn
yrði slökkt.
Trúa ekki á jóla-
sveininn! Maður
gæti allt eins hætt
að trúa á álfa. Þú
gætir fengið pabba þinn til að setja
menn á vakt við alla skorsteina á
jólanótt til þess að handsama jóla-
sveininn, en jafnvel þó enginn sæi jóla-
sveininn stinga sér niður, hvaða sönnur
myndi það færa? Jólasveininn sér eng-
inn, en það er síst sönnun þess að jóla-
sveinninn sé ekki til. Í heiminum er það
raunverulegast, sem hvorki börn né
menn
fá séð.
Sástu nokkurn
tíma álfa dansa í garðinum? Vitaskuld
ekki, en það er ekki sönnun þess að þeir
séu þar ekki. Enginn býr yfir því hugar-
flugi að hann geti ímyndað sér öll þau
undur heimsins sem eru hulin og ósýni-
leg.
Ef hringla barns er
rifin í sundur,
sést hvað or-
sakar hljóð-
ið innan í
henni, en yfir
því hulda í
heiminum er hjúpur
sem hið sterkasta afl,
eða jafnvel sameinað-
ur styrkur allra
sterkustu
manna sem
nokkurn
tíma
hafa lif-
að, gæti
ekki rifið í
sundur. Ein-
ungis traust, skáldskapur, ást og
ævintýri geta svipt því tjaldi til
hliðar og skoðað og gert sér í hug-
arlund þá himnesku fegurð og
dýrð sem er fyrir handan. Er það
allt raunverulegt? Ó, Virginia, í
öllum heiminum er ekkert raunveru-
legra og varanlegra.
Enginn jólasveinn! Guði sé lof, hann lif-
ir og lifir að eilífu! Að þúsund árum
liðnum, Virginia, nei, að 10 sinnum
10.000 árum liðnum, mun hann enn
gleðja hjarta bernskunnar.
Úr The New York Sun, 1897.
Þýðing Fríða Björk Ingvarsdóttir
Hver kannast ekki við það að börnin spyrja hina fullorðnu hvort jólasveinninn sé til?
Árið 1897 barst Francis P. Church ritstjóra bandaríska blaðsins The New York Sun bréf frá átta ára gamalli stúlku að nafni
Virginia O´Hanlon þar sem hún spurði ritstjórann hvort jólasveinninn væri til. Svarbréf ritstjórans birtist daginn eftir í blað-
inu og er það eitt frægasta bréf dagblaðasögunnar. Í rúm 50 ár var bréf ritstjórans til Virginiu birt í blaðinu, en það var ekki
fyrr en árið 1906 sem það kom í ljóst að Francis P. Church hafi skrifað bréfið en þá var ritstjórinn látinn. Bréfið hefur verið
þýtt á fjölmörg tungumál og birt í dagblöðum og tímaritum um allan heim.
Já,Virginia, jólasveinninn er til
Jolablad VF 2003 HEIMA 17.12.2003 9:23 Page 20