Víkurfréttir


Víkurfréttir - 18.12.2003, Page 22

Víkurfréttir - 18.12.2003, Page 22
JÓLABLAÐ VÍKURFRÉTTA 2003 VÍKURFRÉTTIR Á NETINU I www.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!22 G le ð il e g a h á tí ð ! S andra Þorsteinsdóttirgreindist með illskætthvítblæði aðeins átta ára gömul. Um margra mánaða skeið var hún í mikilli lífs- hættu. Ofan á allt saman fékk hún heilablóðfall í kjölfar lyfja- meðferðarinnar og allur hægri hluti líkama hennar lamaðist. Lífsreynsla Söndru er ólík lífs- reynslu fólks á hennar aldri og hún segist meta lífið mikils. Sandra er mikil áhugamann- eskja um söng og á dögunum sigraði hún Hljóðnemann, söngkeppni Fjölbrautaskóla Suðurnesja í þriðja sinn. Sandra er 23 ára gömul. „Það var bara gaman að vinna keppnina. Við ætluðum reyndar að gera þetta miklu flottara, en höfðum lítinn tíma. Ég bjóst alls ekkert við að vinna, var allavega ekkert með það markmið sér- staklega,“ segir Sandra brosandi. Eftir áramót tekur Sandra þátt í söngkeppni framhaldsskólanema og segist hún ætla að æfa vel. „Ég ætla að reyna að gera þetta flott og við tökum sama lagið og ég tók á Hljóðnemanum. Ég geri allavega mitt besta og fólkið sem er með mér líka.“ Greindist átta ára með hvítblæði Árið 1988 greindist Sandra með hvítblæði, aðeins átta ára að aldri. Áður en hvítblæðið var greint leið Söndru eins og hún væri alltaf með flensu. „Það fór að líða yfir mig í skólanum og hér og þar. Ég fór til læknis sem sagði að þetta væri blóðleysi, en í kjölfarið fékk ég rúmlega 40 stiga hita og þá vissi mamma að það væri ekki allt í lagi. Mamma fór með mig niður á spítala, en við bjuggum þá á Akureyri. Læknarnir þar sendu mig til Reykjavíkur í frekari rannsóknir því þeir fundu ekkert þar. Þar kom í ljós að ég væri með hvít- blæði,“ segir Sandra og það er greinilegt að sjúkdómurinn hefur haft varanleg áhrif á líf hennar. En hvernig var fyrir átta ára krakka að upplifa það að vera með hvítblæði, lífshættulegan sjúkdóm? „Það var erfitt,“ segir Sandra alvarleg. „Ég man eftir þessum tíma, en hann er samt gloppóttur í huganum.“ Erfið lyfjameðferð og mergskiptaaðgerð Sandra greindist með mjög ill- skæða tegund hvítblæðis og við tók mjög erfið lyfjameðferð sem gekk svo nærri henni að hún fékk heilablóðfall í kjölfarið þar sem hún lamaðist alveg öðru megin. Það varð að hætta þeirri meðferð. Við tók tími fyrir hana að ná sér eftir heilablóðfallið og þegar hún hafði náð styrk var hún send í mergskiptaaðgerð til Svíþjóðar þar sem hún dvaldi mikið veik í fjóra mánuði. „Þetta voru svo svakalega mikil veikindi og mik- ið á stuttum tíma. Hún var svo mikið veik á stuttum tíma og þetta varð eiginlega bara spurn- ing um að þrauka daginn á tíma- bili. Hún var í lífshættu mánuð- um saman,“ segir Katrín Guð- jónsdóttir móðir hennar. Það tók Söndru langan tíma að ná fyrri styrk. „Það er langur vegur að ná fyrri styrk eftir svona erfið veik- indi. En eftir tvö ár var hún búin að ná sér nokkuð vel.“ Erfitt að komast aftur inn í lífið Eftir þessi erfiðu veikindi var erfitt fyrir Söru að verða aftur þátttakandi í daglega líf inu. Henni gekk erfiðlega að komast aftur inn í hlutina og skólagangan varð slitrótt. „Ég fór aftur í skól- ann þegar ég var 10 ára gömul og það var erfitt,“ segir Sandra og móðir hennar bætir við. „Það verður svo mikil einangrun í S A N D R A Þ O R S T E I N S D Ó T T I R G R E I N D I S T M E Ð H V Í T B L Æ Ð I ÁT TA Á R A G Ö M U L Baráttuglöð söngkona Sandra fékk Hólmfríði Karlsdóttur og Lindu Pétursdóttur í heimsókn á barnaspítalanna, en fyrsta verk Lindu eftir að hún var kjörin Ungfrú heimur var að heimsækja barnaspítala Hringsins og Sandra tók á móti fegurðardrottningunum. Á þessari mynd er nýbúið að greina Söndru með hvítblæði. Jolablad VF 2003 HEIMA 17.12.2003 9:24 Page 22

x

Víkurfréttir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.