Víkurfréttir


Víkurfréttir - 18.12.2003, Page 24

Víkurfréttir - 18.12.2003, Page 24
JÓLABLAÐ VÍKURFRÉTTA 2003 VÍKURFRÉTTIR Á NETINU I www.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!24 G le ð il e g a h á tí ð ! Vann við að forrita Nokia síma Skarphéðinn hafði búið í Banda- ríkjunum í rúmt ár þegar hann var 8 ára og hann segist hafa heillast af landinu. „Það hafði alltaf togað í mig að fara aftur út og búa í Bandaríkjunum. Eftir að ég var búinn að vinna í rúmt ár eftir TVÍ námið ákvað ég að drífa mig út haustið 1991 og láta drauminn rætast. Seattle valdi ég aðallega út af háskólanum, Uni- versity of Washington er með mjög virta tölvunarfræðideild sem Stefán Hrafnkelsson kennari minn við TVÍ mælti mikið með. Það sakaði ekki að Seattle er falleg borg með allt það sem stórborg hefur uppá að bjóða, meðal annars NBA lið sem mér fannst alveg bráðnauðsynlegt,“ segir Skarphéðinn og honum finnst gott að starfa í Bandaríkj- unum. „Þegar ég kláraði námið við Háskólann í Washington þá bauðst mér vinna við fyrirtæki sem hannaði stýrikerfi fyrir far- síma. Það má segja að þetta fyrs- ta starf hafi gert það að verkum að ég spáði aldrei alvarlega í það að fara heim eftir nám. Á þeim tíma var lítið um fjölbreytni í tölvugeiranum heima þannig að mér fannst þetta meira spennandi hér. Ég vann í rúm tvö ár að for- rita fyrir Nokia 9000 símann og var það ómetanleg reynsla. Vorið 1998 flutti ég mig um set og tók stöðu við netdeild Starwave sem yfirmaður tæknideildar ESPN.com. Starwave var í eigu Paul Allen sem er meðal annars frægur fyrir að spila illa á gítar og að stofna Microsoft með Bill Gates.“ Netbólan! Skarphéðinn hefur unnið í tölvu- geiranum frá árinu 1994. En hver er hans upplifun af netbólunni svokölluðu? „Við köllum þetta tímabil „Gullöld netsins“ þegar innkaupa- og ferðareikningarnir voru ótakmarkaðir og fyrirtækin gerðu hvað þau gátu til að ráða starfsfólk og halda í það. Starwa- ve/ESPN.com fékk á þessum tíma það orðspor að vera „fyrir- myndar“ netfyrirtæki. „Work hard and play hard“ var móttóið, skrifstofan var með leikjaher- bergi, sjónvörp á öllum veggjum, ókeypis drykkir og snakk í eld- húsinu og bjór á hverjum föstu- degi. Það var engin klukka og starfsfólk mátti koma og fara eins og það vildi svo lengi sem það skaðaði ekki verk- efnin sem í gangi voru,“ segir Skarp- héð- inn og í dag hristir hann hausinn þegar hann horfir til baka. „Það er erfitt að útskýra hvernig menn fengu stofnfé til að koma flestum net- fyrirtækjum af stað. Þessu er kannski best lýst sem tveggja ára sukki og svo þriggja ára hausverk sem fylgdi á eftir.“ Netfyrirtæki aftur að komast í tísku En þrátt fyrir þetta skrýtna tíma- bil í sögu netfyrirtækja segir Skarphéðinn að þessi tegund fyr- irtækja sé aftur að komast í tísku og eigi ágætis mögu- leika. „Það eru mörg mjög góð netfyrirtæki sem hafa sýnt góða arð- semi á undanförnum misserum. Þetta hefur hjálpað geiranum mikið og fólk er farið að sjá að það er hægt að reka arðsöm netfyrir- tæki,“ segir Skarphéðinn og bætir því við að í Seattle séu Amazon.com og Expedia.com góð dæmi um það hvernig eigi að reka stór og sjálfstæð netfyr- irtæki. „Svo hefur efnahagurinn hér smám saman verið að skána og það hefur hjálpað mikið til við sölu auglýsinga sem mörg net- fyrirtæki eru háð. Netdeildir ESPN og Disney eru núna reknar með hagnaði eftir mörg mögur ár.“ Vinnur hjá stærsta íþróttafjölmiðla heims ESPN, fyrirtækið sem Skarphéð- inn starfar hjá er í eigu Walt Dis- ney samsteypunnar og fyrirtækið er stærsti íþróttafjölmiðill í Suðurnesjamaðurinn Skarphéðinn Héðinsson býr íborginni Seattle á vesturströnd Bandaríkjanna ásamt eiginkonu sinni Lynneu Clark og börnum þeirra, Julian 18 ára og Isabel 6 ára. Hann hefur verið búsettur í Bandaríkjunum frá árinu 1991. Þegar Suður- nesjamenn mæta til vinnu um níu leitið á morgnana eru Skarphéðinn og fjölskylda að leggjast á koddann því tímamismunur milli Seattle og Keflavíkur eru 7 tímar. Skarphéðinn er fæddur og uppalinn í Keflavík á Lang- holtinu. Foreldrar hans eru Héðinn Skarphéðinsson og Bergþóra G. Bergsteinsdóttir. Systur Skarphéðins eru Kristjana (Kiddý) og Aðalheiður (Addý). Guðjón spilaði körfubolta í nokkur ár með ÍBK. „Ég var svo heppinn að fá að spila með þeim Guðjóni Skúlasyni, Sigurði Ingi- mundarsyni og Fali Harðarsyni sem eru þrír af albestu leikmönnum sem íslenskur körfubolti hefur alið,“ segir Skarphéðinn en hann er stúdent frá Fjölbrautaskóla Suðurnesja og útskrifaðist sem kerfisfræðingur frá Tölvuháskóla Verslunarskóla Íslands. Skarphéðinn starfar nú sem yfirmaður hönnunardeildar ESPN, en fyrirtækið rekur m.a. vefinn Soccernet.com. Í draumastarfi hjá Walt Disney ESPN, fyrirtækið sem Skarphéðinn starfar hjá er í eigu Walt Disney samsteypunnar og fyrirtækið er stærsti íþróttafjöl- miðill í heimi. Skarphéðinn á skrifstofu sinni í Seattle. Skarphéðinn ásamt fjölskyldu og mági í Skaftafelli. Jolablad VF 2003 HEIMA 17.12.2003 9:26 Page 24

x

Víkurfréttir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.