Víkurfréttir - 18.12.2003, Side 26
K A R L A R :
ÍR-GRINDAVÍK
Grindavík vann ÍR með 14 stiga
mun í Seljaskóla á sunnudag 61-
75. Heimamenn voru með eins
stigs forystu eftir fyrsta fjórðung,
en þá tóku Grindvíkingar völdin
og unnu verðskuldaðan sigur að
lokum. Stigahæstir Grindvíkinga
voru Darrel Lewis með 18 stig
og Guðmundur Bragason skor-
aði 14 og varði 6 skot. Daniel
Trammel kom næstur með 13
stig og 14 fráköst.
Eugene Christopher var at-
kvæðamestur ÍR-inga með 20
stig og Ómar Örn Sævarsson
skoraði 14 stig og tók jafnmörg
fráköst.
ÞÓR-KEFLAVÍK
Keflvíkingar unnu sannfærandi
sigur á Þór frá Þorlákshöfn á
heimavelli þeirra síðarnefndu,
77-93. Keflvíkingar höfðu for-
ystu allan leikinn. Stigahæstir
Keflvíkinga voru Magnús Þór
Gunnarsson, sem skoraði 24 stig,
og Nick Bradford skoraði 20 stig
og tók 15 fráköst.
Leon Brisport var allt í öllu í liði
Þórsara og skoraði 37 stig og tók
18 fráköst.
HÖTTUR-NJARÐVÍK
Njarðvík vann auðveldan sigur á
Hetti, eins og fyrirfram var búist
við, 82-111. Njarðvíkingar komu
einungis með átta menn til leiks,
en Friðrik Ragnarsson, þjálfari
reimaði á sig gömlu skóna og lék
með sem níundi maðurinn. Leik-
urinn var í öruggum höndum all-
an tímann og Friðrik gat leyft sér
að hvíla lykilmenn og allir fengu
að spila. Brandon og Brenton
voru stigahæstir Njarðvíkinga
með 23 stig hvor, en spiluðu inn-
an við helming leiksins hvor.
REYNIR-HAMAR
Hamar vann öruggan sigur á
Reyni í Sandgerði 69-105. Reyn-
ir, sem sló Valsara út í 32-liða úr-
slitum, átti aldrei möguleika
gegn úrvalsdeildarliðinu sem lei-
ddi í hálfleik, 28-54. Óli Axels-
son og Grétar Garðarsson voru
stighæstir Reynismanna með 16
stig hvor. Marvin Valdimarsson
átti góðan leik fyrir Hamar og
skoraði 29 stig, en Chris Dade
kom næstur með 18 stig.
K O N U R :
KFÍ-NJARÐVÍK
Njarðvík vann tæpan sigur á KFÍ
á sunnudag 51-55. Munurinn
endurspeglar ekki beint stöðu
liðanna í deildakeppninni, en
Njarðvíkurstúlkur áttu erfiðan
leik gegn Keflvíkingum í 1.
deildinni kvöldið áður sem sat
eflaust enn í þeim.
HAUKAR-KEFLAVÍK B
Haukar unnu B-lið Keflavíkur
með óheyrilegum mun,136-23, í
16-liða úrslitum bikarkeppni
kvenna í körfuknattleik. Eins og
tölurnar gefa til kynna var ekki
um spennandi leik að ræða, enda
var staðan 47-4 eftir fyrsta leik-
hluta. Helena Sverrisdóttir var
einum stolnum bolta frá ferfaldri
tvennu þar sem hún skoraði 40
stig, tók 21 fráköst, gaf 16
stoðsendingar og stal boltanum 9
sinnum. Þá stóð Pálína Gunn-
laugsdóttir sig ekki síður vel í
Haukaliðinu og náði líka þre-
faldri tvennu, skoraði 47 stig, tók
12 fráköst og stal 11 boltum.
Keflvíkingar skiptu sínum fáu
stigum nokkuð jafnt á milli sín.
JÓLABLAÐ VÍKURFRÉTTA 2003 VÍKURFRÉTTIR Á NETINU I www.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!26
G
le
ð
il
e
g
a
h
á
tí
ð
!
KFÍ-NJARÐVÍK
Njarðvíkingar unnu góðan sigur á KFÍ á útivelli í
Intersport-deildinni á fimmtudaginn. Lokastaðan
var 98-104 gestunum í vil og er ljóst að þeir slá
hvergi slöku við í eltingarleik sínum við Grindvík-
inga. Friðrik Ragnarsson þjálfari var mjög sáttur við
sigurinn, sem hann sagði að hefði aldrei verið í
hættu. „Já, þetta var tiltölulega auðveldur sigur. Ég
gat leyft mér að hvíla lykilmenn eins og Brenton og
Brandon undir lokin og leyft ungu strákunum að
spreyta sig. Ísfirðingarnir voru í sjálfu sér ekki að
spila illa, en við slökuðum á undir lokin og þá náðu
þeir að saxa svona á forskotið.“
Friðrik Stefánsson var stigahæstur Njarðvíkinga
með 25 stig og 10 fráköst og Páll Kristinsson kom
næstur með 24 stig. Brenton Birmingham skoraði
21 stig og Brandon Woudstra skoraði 19. Jeb Ivey
var stigahæstur heimamanna með 27 stig, en Adam
Spanich og Darco Ristic skoruðu 20 stig hvor.
GRINDAVÍK-ÍR
Grindvíkingar eru enn án taps í Intersport-
deildinni eftir heimasigur á botnliði ÍR
síðastliðinn laugardag, 104:92. Grindvík-
ingar virkuðu kærulausir í byrjun og voru
undir í leikhléi, en tóku sig á í seinni hálf-
leik og unnu að lokum sanngjarnan sigur.
Friðrik Ingi Rúnarsson, þjálfari Grindavík-
ur, var ánægður með sigurinn þrátt fyrir að
vörn sinna manna hafi ekki verið honum
að skapi allan leikinn. „Við vorum bara
ekki nógu fastir fyrir í vörinni í fyrri hálf-
leik. ÍR hittu vel utan af velli og börðust
vel, en við náðum að kippa þessu í lag í
seinni hálfleik.“
Páll Axel Vilbergsson skoraði 36 stig fyrir
Grindavík og Darrel Lewis og Helgi Jónas
Guðfinnsson skoruðu 19 stig hvor. Eu-
gene Christopher skoraði 28 stig fyrir ÍR
og Ómar Örn Sævarsson var með 25.
KR-GRINDAVÍK
KR vann Grindavík í DHL-Höll-
inni í dag 75-61. Grindavík situr
enn á botni deildarinnar ásamt
ÍR. Pétur Guðmundsson, þjálfari
Grindavíkur, lætur mótlætið ekki
á sig fá heldur sagðist sjá mikil
batamerki á liðinu þrátt fyrir tap-
ið. „Stelpurnar voru að spila vel
lengst af, en við gáfum eftir í 3.
leikhluta og KR gengu bara á
lagið. Stelpurnar eru alltaf að
bæta sig og ef við fáum góðan
útlending eftir áramót er aldrei
að vita hvað gerist.“
Petrúnella Skúladóttir var stiga-
hæst Grindvíkinga og skoraði 17
stig, Ólöf Pálsdóttir skoraði 15
og Sólveig Gunnlaugsdóttir 12.
Katie Wolfe var stigahæst KR
með 24 stig. Hildur Sigurðardótt-
ir var henni næst með 19 stig en
tók einnig 12 fráköst.
KEFLAVÍK-NJARÐVÍK
Keflavík bar sigurorð af ná-
grönnum sínum úr Njarðvík í
dag. Lokatölur leiksins, sem fór
fram í Keflavík, voru 80-55.
Leikurinn var nokkuð jafn fram-
an af og munurinn í hálfleik var
ekki mikill en í seinni hálfleik
kláruðu heimastúlkur leikinn ör-
ugglega.
Anna María Sveinsdóttir, burða-
rásinn í liði Keflavíkur undanfar-
in ár, sagði að hún og liðsfélagar
hennar hefðu ekki verið með á
nótunum í byrjum leiks, en hafi
tekið sig saman í andlitinu í sein-
ni hálfleik. „Við spiluðum miklu
betur í seinni hálfleiknum og
náðum að loka á þær í sókninni
og keyrðum leikinn upp á okkar
hraða.“
Auður Jónsdóttir, fyrirliði Njarð-
víkur, sagði að Keflavík hefði
klárað leikinn strax í byrjun sein-
ni hálfleiks. „Við gáfumst bara
strax upp. Vörnin hjá okkur var
skelfileg og svo hittum við illa.“
Keflavíkurstúlkur skiptu stiga-
skorun nokkuð jafnt á milli sín
en Birna Valgarðsdóttir skoraði
14 stig, Svava Stefánsdóttir og
Rannveig Randversdóttir skor-
uðu 13 stig og Anna María skor-
aði 12. Anna tók einnig 10 frá-
köst.
Enn eina ferðina var Andrea
Gaines allt í öllu hjá Njarðvík og
skoraði hún 20 stig í dag. Auður
Jónsdóttir og systir hennar, Di-
anna, komu næstar með 8 stig
hvor.
Keflavík vann einhvern glæsilegastasigur íslensks körfuknattleiksliðs fráupphafi á miðvikudaginn í síðustu
viku þegar þeir lögðu franska liðið Hyeres
Toulon Var, 82-78, í Bikarkeppni Evrópu.
Lengst af í leiknum voru Toulon-menn að
yfirspila Keflvíkinga þar sem þeir létu
boltann ganga ótrúlega vel og áttu í litlum
vandræðum í sókninni. Gestirnir leiddu
með 4 stigum í hálfleik, 44-48, og juku
muninn enn í byrjun 3. leikhluta. Toulon
náðu mest 11 stiga forskoti en Keflvíkingar
héldu sér inni í leiknum og minnkuðu
muninn í 5 stig.
Vörnin tók við sér í síðasta leikhluta og sókn
Frakkanna hætti að ganga sem skildi og Kefl-
víkingar jöfnuðu leikinn 69-69 eftir góðan
kafla. Síðustu mínúturnar voru rafmagnaðar
en Falur Harðarson, þjálfari og leikmaður
Keflavíkur, tryggði frækinn sigur með tveim-
ur vítaskotum undir lokin.
Eftir leikinn voru Keflvíkingar í efsta sæti rið-
ilsins og í lykilaðstöðu til að tryggja sér sem
hagstæðasta andstæðinga í úrslitakeppni
deildarinnar.
Derrick Allen var stigahæstur Keflvíkinga í
leiknum og skoraði 28 stig og Nick Bradford
kom næstur með 16 stig.
Floyd Miller var stigahæstur Toulon-manna
með 16 stig og Jean-Christophe Nivière skor-
aði 13.
OVARENSE-KEFLAVÍK
Á þriðjudagskvöldið tapaði Keflavík fyrir
portúgalska liðinu Ovarense Aerosoles með 6
stiga mun 99-93.
Ovarense hafði nauma forystu eftir fyrsta
leikhluta en í þeim næsta náðu þeir að auka
muninn upp í 14 stig þegar mest var. Portú-
galarnir spiluðu mjög góða vörn og gáfu
Keflvíkingum engin auðveld færi þannig að
þeir áttu erfitt uppdráttar í sókninni. Í hálfleik
var staðan 52-42 heimamönnum í vil.
Í þriðja leikhluta héngu Keflvíkingar í
Ovarense en náðu þó aldrei að minnka mun-
inn verulega og þegar haldið var í síðasta leik-
hluta höfðu heimamenn 16 stiga forystu, 74-
58. Í lokafjórðungnum gekk Keflvíkingum
betur þar sem leikmenn Ovarense fóru að
taka aukna áhættu í sóknarleik sínum til þess
að vinna upp stigamuninn úr fyrri leik lið-
anna. Þeir náðu að minnka muninn niður í 8
stig, 84-76, þegar rúmlega 2 mínútur voru eft-
ir af leiknum, og svo niður í 6 undir lokin.
Mikilvægi stigamunarins liggur í því að ef
liðin verða jöfn að stigum eftir riðlakeppnina
mun stigahlutfall úr innbyrðisviðureignum
liðanna ráða úrslitum.
Falur Harðarson sagðist ekki geta verið ósátt-
ur eftir leikinn þar sem þeir hafi haldið stiga-
muninum niðri og eigi enn góðan möguleika
á því að ná fyrsta sætinu. „Þetta féll bara ekki
okkar megin í kvöld,“ sagði Falur. „Okkur
gekk ekki vel utan af velli, og við vorum í
vandræðum með stóru mennina þeirra, sér-
staklega Tomsich sem hitti rosalega vel. En
það var rosalega gaman að sjá hvað Arnar
Freyr kom sterkur inn í leikinn. Hann reyndist
okkur drjúgur í restina.“
Derrick Allen var stigahæstur Keflvíkinga og
skoraði 27 stig og tók 10 fráköst. Nick Brad-
ford var slakur framan af leik en kláraði með
16 stig og Arnar Freyr skoraði 14, þar af 12 í
síðasta leikhluta. Gunnar E. og Jón Norðdal
gerðu 11 stig, Falur setti 10 og Magnús Þór
einungis 3.
Við það er Ovarense komið í efsta sæti riðils-
ins og Keflavík er í öðru. Keflavík leikur sinn
síðasta leik í riðlinum í kvöld gegn Madeira
og nægir sigur ef Toulon vinnur Ovarense á
sama tíma. Toppsæti riðilsins tryggir að Kefl-
víkingar fái heimavallarrétt í úrslitakeppninni,
sem hefur rækilega sannað mikilvægi sitt í
þessari keppni.
■Bikarkeppni Evrópu í körfuknattleik
■Bikarkeppni KKÍ og Lýsingar
■ Intersport-deildin
■Kvennakarfa
KEFLAVÍK Í GÓÐUM MÁLUM
1. deild kvenna
Jolablad VF 2003 HEIMA 17.12.2003 11:50 Page 26