Víkurfréttir


Víkurfréttir - 18.12.2003, Side 37

Víkurfréttir - 18.12.2003, Side 37
kúm og fleira. Svo einnig litlu krílunum sem vinkonur mínar eiga, maður stenst þau nú ekki. Fyrir utan landslagsmyndir þá held ég að mér finnist flest áhugavert, en ég held að það eigi eftir að breytast mikið. Hvernig er að vera íslendingur í Boston? Það er gott að vera Íslendingur í Boston. Það er gott hvar sem er í heiminum finnst mér. Þar sem ég hef búið úti áður er það ekkert nýtt þegar fólk segir. „Vá ég hef aldrei hitt Íslending áður, hversu mörg eru þið?“ eða „Er það ekki Ísland sem er grænt og Grænland sem er ísilagt“. Fólk er alltaf jafn forvitið að vita um Ísland og heldur alltaf að það sé mjög, mjög kalt þar, en sannleikurinn er sá að það er svo ískalt hérna í Boston að það er lyginni líkast. Og auðvitað má ekki kvarta þar sem ég er ÍSLENDINGURINN ;o) Boston er mjög alþjóðleg þar sem það eru endalaust mikið af skólum hérna og mikið af ungu fólki sem býr hérna. Er mikið um íslendinga þarna úti? Það er nú alveg örugglega ágætlega mikið um Íslendinga hérna, það er allaveganna Íslendingafélag hérna. Ég hef kíkt á heimasíðuna þeirra en ekki farið enn á pöbbakvöldin sem eru 3ja hvern föstudag í mánuði. Nú svo sá ég að vísu alveg hell- ing af Íslendingum þegar fjölskyldan kom í heimsókn. Á hótelinu sem þau voru á var töluvert mikið af Íslendingum og svo vor- um við bara einhvern veginn alltaf að sjá einhverja hér og þar. Ég sé þá ekki þegar ég er bara ein eða þar sem ég bý. Reyndar er ein önnur stelpa í skólanum sem er ís- lensk, sem kom mér á óvart þar sem þessi skóli er frekar lítill. Hvernig líður venjulegur dagur hjá þér? Ég fer yfirleitt á fætur um 7 eða 8 leytið og er í skólanum frá 9, 10 til að verða 5-6 á daginn. Reyndar er ég ekki í tíma nema þrisvar sinnum í viku. Tvisvar sinnum frá 9 til 4 og einu sinni frá 10 til 12 og svo þarf ég að skila tímum í myrkraherberginu sem eru 16-18 tímar á viku. Þannig að ég er hér alla virka daga vikunnar. Svo kem ég hérna líka um helgar, en skólinn er op- inn frá 8-11:30 alla daga vikunar. Það tekur mig um 35-40 mín- útur að fara í skólann með neðanjarðarlestinni því ég bý svo langt frá miðbænum. Ég bý í Somerville sem er um hálftíma frá miðbænum, mjög fínt og öruggt hverfi. Saknarðu Íslands? Jafnvel þótt að ég hreinlega dýrki það að ferðast, sakna ég Íslands alltaf jafn mikið. En þetta er tíminn sem maður saknar fjöl- skyldunnar og vinanna mest. Ég hef verið það heppin að fjölskyldan mín kom í heimsókn núna í kringum Þakkargjörðar- hátíðina. Svo eru nokkrar vinkonur að koma um miðjan mánuðinn og enn fleiri að kaupa miða til að koma eftir áramótin. Já, það má segja að ég sé að reka litla ferðaskrifstofu hérna þar sem ég er búin að plata yfir tylft manna til að koma í heimsókn:). Hvernig er jólaundirbúningur- inn í Boston? Ég veit lítið um hvernig er með jólaundirbúninginn hérna. Voða mikið versl- að eins og heima, jóla- trén eru örugglega flest kominn upp. Það er byrjað að skreyta hérna, mest í mollum og búðum. Það eru svona einstaka hús hérna sem eru skreytt og þau sem eru skreytt eru sko skreytt! Það er ekk- ert annaðhvort eða því þau skreytt frá toppi til táar eða bara ekki neitt. En ástæðan fyrir því að það eru ekki mikið af húsum skreytt þar sem ég bý er að það eru svo mikið af ungu fólki sem býr sam- an hérna. Skólafólk leigir íbúðir saman hérna og fer svo heim um hátíðarnar, hafa lítinn tíma til að skreyta því þetta er jú prófatíminn. Það hefur snjóað hérna síð- astliðna viku en hann hverfur þegar fer að líða á daginn, kannski voða svipað og heima. Þakkargjörðahátíðin er í rauninni mikilvægari hér að vissu leiti finnst mér. Fjölskyldur koma saman og borða, 15-20 manns í mat og það er borðað allan dag- inn. Ég var svo heppin að fara á tvö heim- ili og það er hreinlega borðað frá tvö til tíu en ég fór í kalkún hjá einni fjölskyldu og svo eftirrétt hjá annarri. Ég eyði ekki jól- unum hérna í Boston, því ég mun fljúga til Bozeman í Montana þar sem er ennþá kaldar, en þar býr fjölskylda kærasta míns og við munum eyða tveimur vikum þar. Svipað og heima? Það er svo allt öðrvísi að vera heima, þar sem þú ert að gera jólakort með vinkonun- um og baka með fjölskyldunni. Og að fara svo niður í bæ á Þorláksmessu og gjörsamlega drekkja sig í jólastemming- unni. Hvað ætlarðu þér að gera þegar þú lýkur nám- inu? Það fer náttúrulega allt eftir því hvað ég tek á öðru ári. Eftir annað árið gæti verið að ég tæki eitt ár í háskóla hérna úti til að fá BA gráðu. En ef ég hefði tækifæri til þá mundi ég vilja vinna hérna í eitt ár með einhverjum góðum ljósmyndara til að fá reynsluna. En þetta verður bara að koma allt í ljós. Hvenær kemurðu heim? Ég kem heim næsta sumar, verð heima allt sumarið og fer svo aftur út. Hvenær kem ég endanlega heim til Íslands? Það verður bara að koma í ljós, eftir 2 ár vill fjölskyld- an heyra þannig að ég segi það bara. VÍKURFRÉTTIR I 51. TÖLUBLAÐ I FIMMTUDAGURINN 18. DESEMBER 2003 JÓLABLAÐ VÍKURFRÉTTA 2003 37 Jolablad VF 2003 HEIMA 17.12.2003 9:30 Page 37

x

Víkurfréttir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.