Víkurfréttir - 18.12.2003, Síða 38
Ámorgun verður leikritiðRáðalausir menn sýnt íFrumleikhúsinu í Kefla-
vík og verða tvær sýningar á
verkinu, en verkið hefur verið
sýnt í Tjarnarbíói upp á
síðkastið og fengið góða dóma.
Fyrri sýningin verður klukkan
20 og sú seinni klukkan 23.
Annar aðalleikeinda verksins
er Sigurður Eyberg, en hann
hefur flogið á milli London og
Íslands til að taka þátt í sýning-
unni.
Hvernig er að ferðast á milli
London og Íslands til að leika í
Ráðalausum mönnum?
Það er bara mjög fínt og skrambi
gaman bara, en nokkuð þreytandi
að vísu. Þetta er búið að vera
rosa keyrsla a mér undanfarið en
ég er í góðu jólafríi núna þannig
að þetta er í lagi. Sýningin á
föstudaginn lokar ákveðnum
kafla að vissu leyti, mjög
skemmtilegum kafla.
Hvað ertu að gera úti?
Ég er mest að leika, en leikstýri
svolítið líka. Helst er það Brian
hópurinn sem ég er einn af stofn-
endum af. Við erum gamanleik-
hópur sem starfar á einhverju
sem kallast „alternative scene“
sem er nú erfitt að þýða, myndi
kannski vera „óhefðbundið leik-
hús“ eða eitthvað slíkt, en það er
nú ekki réttnefni því það er
komin hefð fyrir svona leikhúsi.
Eru einhver fleiri verkefni á
dagskránni hér á Íslandi?
Já hugsanlega. Það sem er næst
á dagskrá hjá mér er að semja og
æfa tvö ný verk með Brian og ég
er að gæla við það að æfa á Ís-
landi, ef það er hægt er aldrei að
vita nema við gætum skellt á
einni forsýningu í Keflavík. Það
væri mjög gaman að sjá hvernig
íslendingar tækju í það sem við
erum að gera. Síðan förum við
með þessar sýningar á leiklistar-
hátíðir í Englandi.
Hugsanlega koma gömlu félag-
arnir í hljómsveitinni Deep Jimi
and the Zep Creams saman. Við
ætlum kannski að reyna taka eitt
„gigg“ á milli jóla og nýárs. Ég
er rosa spenntur fyrir því, það er
svo gaman að syngja með þeim.
Við ætlum að taka bæði gömlu
lögin okkar og svo eitthvað
Zeppelin og það allt. Það verður
alvöru trukk!
Hvernig finnast þér viðtökurn-
ar við Ráðalausum mönnum
vera?
Þær hafa verið mjög góðar. Ég
heyri ekki annað en fólk sé rosa-
lega hrifið, það er allavega nógu
mikið hlegið! Persónulega er ég
búinn að skemmta mér mjög
vel, búinn að vera að vinna með
góðu fólki að góðu leikriti, hvað
er hægt að biðja um meira? Svo
er ég ákaflega stoltur af Sig-
uringa og mínum hlut í að koma
hans fyrsta verki á lappirnar,
hann hlýtur að vera efnilegasta
leikskáld Íslands í dag.
Þeir sem vilja panta
miða á sýninguna er
bent á að hringja í
síma 690 6919.
JÓLABLAÐ VÍKURFRÉTTA 2003 VÍKURFRÉTTIR Á NETINU I www.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!38
G
le
ð
il
e
g
a
h
á
tí
ð
!
Rokkari
og leikari
í leikriti í
Keflavík
Auglýsingasíminn
er 421 0000
Jolablad VF 2003 HEIMA 17.12.2003 14:25 Page 38