Víkurfréttir - 18.12.2003, Side 44
hemm
Bula! Við lentum á Fiji um kvöldið og tók
þar á móti okkur hljómsveit skipuð heima-
mönnum syngjandi ekta Kyrrahafstónlist í
viðeigandi búningum og öðru hvoru öskr-
uðu allir í kór „Bula“ sem þýðir velkom-
inn og halló. Ekki slæm byrjun! Fórum á
Nadi Hotel í miðbænum og það fyrsta sem
vakti athygli var að okkur sýndist fáir aðrir
gista á hótelinu. Þegar við komum inn á
herbergið okkar sáum við þó að einhver
deildi herberginu með okkur, en var samt
ekki á staðnum. Við hentum bara töskun-
um af okkur og rukum strax út í Kavaleit.
Kava er drykkur sem langflestir íbúar á
Kyrrahafseyjunum drekka daglega. Þegar
maður hefur drukkið ákveðið magn af
Kava á það að gera mann mjög rólegan og
afslappaðan. Eftir smá leit rákum við aug-
un í búð sem eingöngu selur Kava. Þessi
búð er rekin af Indverja og við ætluðum að
kaupa og prufa. Hann tók það ekki í mál
að selja okkur það, heldur mallaði bara
slatta sjálfur og vildi segja okkur söguna af
Kava á meðan við drykkjum það saman.
Drukku 5 Kava skálar
Hann kom með Kavað í skítugum bala og
notaði kókoshnetuskel til að drekka það.
Reglan er að áður en maður drekkur á að
klappa einu sinni og þrisvar þegar maður
er búinn að sturta í sig. Maður getur helst
ímyndað sér að bragðið af Kava sé svipað
og bragð af vatni sem maður var að þrífa
sokkana sína í. Mjög beiskt og rífur vel í
hálsinn. Við gáfumst því upp eftir 5 skálar
en höfðum heyrt að heimamenn sturta
auðveldlega 30-40 í smettið á sér á góðum
degi. Kvöddum því Indverska vin
okkar með óbragð í
munninum og
vorum sam-
mála um það
að þetta þyrft-
um við ekki að
prófa aftur. Þeg-
ar við komum
upp á herbergi var
herbergisfélaginn
okkar þegar kom-
inn í háttinn. Við
sáum strax að þessi
herbergisfélagi var
öðruvísi en við áttum
að venjast vegna þess
að hann var sennilega
rúmum 50 árum eldri en
við. Okkur gafst ekki tækifæri til að kynn-
ast þessum eðalmanni mikið meira vegna
þess að hann þurfti að fara snemma næsta
morgun. Þó röbbuðum við aðeins við
hann í einni af morgun- klósettferðunum
sem hann fór í um nóttina og komumst þar
að því að hann hafði sest að á Fiji og er
giftur konu þaðan.
Allir vingjarnlegir á Fiji
Morguninn eftir fundum við okkur rútu til
Suva sem er höfuðborg Fiji-eyja. Þar var
planið að eyða helginni áður en við fynd-
um okkur einhverja strönd til að chilla á. Í
rútunni lentum við á smá spjalli við nokkr-
ar stelpur frá Fiji og þegar við komum svo
til Suva vissum við að sjálfsögðu ekkert
hvert við ættum að fara þannig að stelp-
urnar sögðu okkur að koma með sér. Við
vissum ekki alveg hvað var í gangi en fór-
um þó með þeim. Eftir smá göngu kom-
um við að upplýsingamiðstöð fyrir ferða-
menn og þar fengum við lista yfir öll gisti-
heimili á Suva og eins og þessar stelpur
væru ekki búnar að hjálpa okkur nóg nú
þegar, vildu þær endilega fara með okkur á
gistiheimilið sem við höfðum valið. Svo
þegar þangað var komið kvöddu þær okk-
ur og létu okkur fá símanúmerið sitt og
báðu okkur að hringja í sig ef við hefðum
tíma þegar við færum aftur til Nadi. Það
sem þessar stelpur gerðu fyrir okkur er í
rauninni sneiðmynd af viðhorfi langflestra
Fiji-búa. Allir svo vingjarnlegir.
Góð stemmning í Rubgy leik
Fiji-búar eru líka miklir Rugby-aðdáendur
og liðið þeirra er mjög sterkt. Þetta föstu-
dagskvöld var stórleikur í gangi sem átti
að skera úr hvort Fiji kæmist í fyrsta sinn í
8 liða úrslit í heimsmeistarakeppninni. Við
höfðum aldrei horft á Rugby-leik áður
þannig að við vildum aðallega
fara til að upplifa
stemning-
una
sem myndað-
ist við leikinn. Leikirnir
eru sýndir á flestum börum á Fiji
og við settumst fyrir utan einn stað og bið-
um þess að hann opnaði.
Hafði aldrei heyrt um Ísland
Þar kom upp að okkur einn af fáum óvin-
gjarnlegum heimamönnum sem við hitt-
um á Fiji. Þessi gaur kom upp að okkur og
spurði hvaðan við værum og þegar hann
fékk svarið að við værum frá Íslandi var
hann bara fúll, ekki vegna þess að hann
þyldi ekki Ísland heldur vegna þess að
hann hafði aldrei heyrt um þetta land áður
og hélt að við værum að spila með hann.
„Iceland, Iceland. I´m from Hotland“
sagði hann hundfúll og eftir að hafa látið
nokkur orð flakka sem við ætlum ekki að
hafa eftir strunsaði hann í burtu. Loks
byrjaði leikurinn og strax á fyrstu mínút-
unum sáum við að þetta var íþrótt sem við
gætum haft gaman af. Alltaf eitthvað í
gangi, engar tafir og menn ekkert að þykj-
ast meiða sig til að fiska víti eða auka-
spyrnu. Leikurinn var hnífjafn fram á síð-
ustu mínútur en Skotarnir grísuðust til að
sigra að lokum. Fiji-búar virðast vera svo-
lítið eins og Íslendingar þegar kemur að
stórleikjum. Gengur vel fyrst en svo missa
menn trúna og tapa leiknum.
Fyrsta tequila skotið
Eftir leikinn hittum við svo tvo heima-
menn úti á götu, þá Joe og Albert. Joe er
31 og Albert er 42 ára og báðir eru þeir
fjölskyldumenn sem búa á eyju sem er
u.þ.b. 3 klukkutíma frá Suva. Við
skemmtum okkur með þeim það sem af
leið kvöldi og þeir fóru með okkur á flesta
staði sem heimamenn hanga á. Og við
buðum þeim upp á fyrsta tequila-
skotið sem þeir hafa
nokkurn tímann
próf-
að.
Daginn eftir feng-
um við hringingu klukkan 10
um morguninn og þá var það Joe á hin-
um endanum og hann vildi endilega að við
kæmum með honum á bátnum hans yfir á
litla eyju, sem er rétt fyrir utan Suva.
Eyjan jafnstór og
körfuboltavöllur
Hann kom svo og náði í okkur upp á gisti-
heimilið og þaðan brunuðum við niður á
bryggju. Þar beið okkar báturinn hans og 3
yngri frændsystkini hans. Albert var fjarri
góðu gamni því hann byrjaði að fá háls-
bólgu kvöldið sem við hittumst og var orð-
inn mjög slæmur daginn eftir. Eftir 15
mínútna siglingu á bátnum hans Joe kom-
um við á eyju sem var ekki stærri en
körfuboltavöllur. Bara sandur en ótrúlegt
en satt að samt vantaði ekki ruslumbúðir
utan af allskyns mat sem hafði borist frá
aðaleynni til Fiji. Þarna sátum við í sólinni
á meðan yngra fólkið lék sér í sjónum og
spjölluðum um allt milli himins og jarðar.
Joe skutlaði okkur svo aftur í land þar sem
við kvöddumst.
Tubakula
Eftir 3 daga í Suva vorum við tilbúnir að
sjá meira af Fiji. Okkur hafði verið bent á
stað sem heitir Tubakula sem er mitt a
milli Nadi og Suva. Við vorum að leita
okkur að afslöppun og Tubakula bauð svo
sannarlega upp á það því það var varla
hræða á svæðinu nema tveir öryggisverðir
sem áttu eftir að setja svip sinn á dvöl okk-
ar þar. Melly og Sai hétu þeir og þó þeir
virtust ekki vera slæmir náungar gat mað-
ur ekki annað en vantreyst þeim, vegna
þess að þegar Sai var ekki viðstaddur fór
Melly að segja okkur að Sai væri bara
svikahrappur sem við ættum
ekki að treysta og ein-
hvern veg-
inn urðu þeir
bara furðulegri og
furðulegri þá tvo daga sem við
eyddum á Tubakula.
Toppnum var þó náð þegar við vorum að
gera okkur tilbúna í háttinn eitt kvöldið.
Við lágum hvor í sínu rúmi að spjalla og
rúmið hans Hemma sneri að glugganum,
en rúmið hans Magga var staðsett þannig
að hann sá ekki gluggann. Allt í einu sér
Hemmi hendi birtast á glugganum og eftir
fylgdi andlitið á Sai. Hemmi sagði ekki
neitt við Sai strax heldur lét hann Magga
vita að Sai stæði þarna og væri að stara inn
um gluggann. Stundum djókum við með
svona hluti þannig að Maggi var ekki al-
veg að trúa Hemma. Og þeim 40-50 sek-
úndum sem Hemmi eyddi í að reyna að
sannfæra Magga um að hann væri ekki að
ljúga stóð Sai bara þarna og sagði ekki
orð.
Heimsreisufararnir Hemmi og Maggi hafa svo sannarlega upplifað fjölda ævintýra í heimsreisu sinni sem
staðið hefur yfir frá því í sumar. Þeir hafa heimsótt framandi lönd sem flestir íslendingar hafa ekki brugðið fæti sínum á,
ennþá allavega. Þegar þessi orð eru skrifuð eru þeir félagar staddir í Mið-Ameríku þar sem þeir munu eyða jólunum. Víkur-
fréttir hafa fylgst vel með för þeirra félaga og hafa þeir sent reglulega pistla á heimsreisusíðu Víkurfrétta. Nýjasti pistillinn
þar er númer 12, en við birtum hér pistil númer 11. Spennandi ferðasaga hjá strákunum, en þeir fengu ekki að fara inn í
Brasilíu. Vefslóð heimsreisusíðu Víkurfrétta er www.vf.is/heimsreisan
P I S T I L L # 1 1 - 2 0 . N Ó V E M B E R 2 0 0 3
FENGU EKKI AÐ
FARA INN Í BRASILÍU
Æ V I N T Ý R I N H A L D A Á F R A M
JÓLABLAÐ VÍKURFRÉTTA 2003 VÍKURFRÉTTIR Á NETINU I www.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!44
G
le
ð
il
e
g
a
h
á
tí
ð
!
Jolablad VF 2003 HEIMA 17.12.2003 9:32 Page 44