Víkurfréttir


Víkurfréttir - 18.12.2003, Síða 49

Víkurfréttir - 18.12.2003, Síða 49
VÍKURFRÉTTIR I 51. TÖLUBLAÐ I FIMMTUDAGURINN 18. DESEMBER 2003 JÓLABLAÐ VÍKURFRÉTTA 2003 49 Hnoðaðar Gyðingakökur: 500 gr. hveiti, 250 gr. sykur, 375 gr. smjörlíki,1 egg og 2 tsk. lyfti- duft. Deiginu skipt í 2 hluta. Úr öðrum helmingnum búnar til kúlur, flattar út með lófanum í mulinn molasykur. Bakaðar við 200 gráðu hita neðarlega í ofninum. Grænar möndlukökur úr hinum helmingnum. Í þann hluta deigsins eru settir möndludropar og möndluflögur og grænn matarlitur. Hnoða þetta létt þar til deigið hefur fengið jafnan lit. Búnar til kúlur. Brúnar smákökur. 500 gr hveiti 250 gr smjörlíki 250 gr sykur 1 peli sýróp (hægt að blanda sýrópi og púðursykri til helminga) 3 tsk. lyftiduft 2 tsk. negull 2 tsk. kakó 2 tks. kanill 2 tsk. natron 2 stk. egg og örlítið af pipar Hnoðað og einnig hægt að skipta deiginu.Búnar til kúlur í lófanum þrýst ofaná og hálf mandla sett á hverja köku. Úr hinum hlutanum af deginu er bætt meira af kakói og vel af brytjuðu súkkulaði og vanilludropum bætt í. Búnar eru til kúlur aðeins minni en hinar, þrýst aðeins ofan á með lófanum.Þegar kökurnar eru teknar úr ofn- inum er gott að setja Mónu súkkulaðidropa ofan á hverja köku. Heimatilbúið marsipan ágætt til sælgætisgerðar. 200 gr. smjörlíki brætt í potti 2 dl. vatn sett saman við 250 gr. hveiti þeytt út í og soðið í nokkrar mínútur. Potturinn tekinn af og 750 gr. af sykri sett út í. Deigið er kælt og þá er 300 gr af flór- sykri og möndludropum bætt í. Sveppapaté 1/2 kg. sveppir,2 laukar,20 gr. smjörlíki,50 gr. hakkaðar hesli-hne- tur,100 gr. brauðrasp, 3 egg, 1 pela rjóma,1 1/2 tsk. salt, og malaður grófur pipar eftir smekk. Sveppirnir hakkaðir og brúnaðir á pönnu í smjörlíkinu ásamt niðurskornum laukunum. Annað sett í skál og hrært vel saman. Síðan er hræran sett saman við það sem er á pönnunni. Allt sett í eldfast mót og bakað í klukkustund í 175 gráðu heitum ofni. Bæði hægt að bera fram heitt eða kalt. Uppskriftir frá Höllu Har: Lionsklúbburinn Keilir heldur hina árlegu Skötuveislu laugar- daginn 20. desember næstkom- andi í lionshúsinu að Aragerði 4 Vogum. Húsið opnar klukk- an 14 og verður opið frameftir kvöldi. Á matseðlinum er kæst skata, en einnig er boðið upp á saltfisk. Skötuveisla Lions- manna í Vogum hefur verið að festast í sessi þar sem fólk sér gullið tækifæri í því að losna við skötuilminn af heimilinu og styrkja um leið gott málefni. Aðgangur að skötuveislunni er 1900 krónur og rennur allur ágóði óskiptur til líknarmála. Lionsklúbburinn Keilir óskar öllum Suðurnesjamönnum gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári. Skötuveisla Keilis í Vogum Jolablad VF 2003 HEIMA 17.12.2003 13:19 Page 49

x

Víkurfréttir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.