Víkurfréttir


Víkurfréttir - 18.12.2003, Side 52

Víkurfréttir - 18.12.2003, Side 52
að eiga samskipti við íbúa eyj- anna í Suður Kyrrahafinu, en fé- lagið sem hann vann hjá var með siglingar á 15 áfangastaði á 10 eyjum og Papua Nýju Gíneu. Björn segir að yfirleitt hafi verið gott að eiga við íbúanna, en óneitanlega sé önnur menning og aðrir siðir á þessum eyjum en Björn átti að venjast. „Fyrirtækið sem ég vann hjá var með mikið af eyjaskeggjum í vinnu á skip- um félagsins sem mörg voru orð- in æði þreytt og lúinn og óarðbær í rekstri.Fyrirtækið átti sjö skip en stjórn fyrirtækisins hafði ákveðið að selja skipin og leigja inn fjögur öflug gámaskip í stað- inn til að geta snúið rekstrinum við. Ég þurfti að fara til Fiji eyja til að losa fyrirtækið undan dýr- um áhafnarsamningum til að geta losað okkur við skipin. Íbúar Fiji eyja eru tilfinningaríkt fólk og skapheitt og mér var hótað að ef ég myndi ekki draga mig til baka frá ákveðnum hlutum myndi ég hafa verra af. Þessar aðstæður voru óvenjulegar í mín- um huga, enda hafði ég ekki orð- ið fyrir slíkum hótunum áður,“ segir Björn. Í framhaldi af þess- um hótunum fór Björn Ingi að hugsa hvernig hann gæti snúið samningaviðræðunum sér í hag. „Þegar ég var í skólanum í Car- diff í Wales kynntist ég manni frá Fiji eyjum.. Þessi maður var kall- aður Big John og ég mundi að hann hafði starfað hjá hafnaryfir- völdum á Fiji eyjum. Ég fór að leita upplýsinga um þennan ágæta mann. Náði á hafnarstjór- ann í höfninni í Suva sem er höf- uðborg Fiji eyja og bað hann að hjálpa mér. Hafnarstjórinn kann- aðist við manninn og sagði mér nafn hans. Og það kom í ljós að hann var efnahagsmálaráðherra Fiji eyja. Ég gerði mér lítið fyrir og óskaði eftir því að fá að hitta hann,“ segir Björn og það urðu fagnaðarfundir þegar þeir hittust. „Hann mundi eftir mér og dró meðal annars upp skólamyndina og við hlógum báðir þegar við sáum myndina. Við höfðum báð- ir breyst á þessum tíma og vorum m.a. báðir töluvert léttari þá en við erum í dag. Þarna urðu miklir fagnaðarfundir.“ Ráðherrann kippti í spotta Eftir að hafa spjallað um daginn og veginn fór Björn Ingi að ræða við ráðherrann um vandamálin varðandi starfsmenn skipafélags- ins sem átti að segja upp störfum. Ráðherrann varð ekki ánægður að heyra að Björn vildi segja upp um 80 manns með þeim aðgerð- um sem boðaðar voru. „Ég min- nti hann þá á hagfræðitímana hjá prófessor Richard Goss þar sem kom fram að ef ekki væri hægt að reka einhverjar ákveðnar ein- ingar þá yrði að gera eitthvað í því. Hann var sammála því, enda maðurinn efnahagsráðherra og vissi vel að útgjöldin mættu ekki vera meiri en tekjurnar.“ Um kvöldið fóru ráðherrann og Björn út að borða og ræddu þeir m.a. um hótanirnar sem Björn hafði orðið fyrir. „Ráðherrann kippti í nokkra spotta og bað mig um að hafa samband ef eitthvað færi úr- skeiðis. Málið gekk ágætlega eft- ir þetta og það var annað hljóð í samningaviðræðunum eftir fund- inn með ráðherranum,“ segir Björn og hann hefur haldið góðu sambandi við ráðherrann. „Við höfum m.a spilað golf saman á Fiji,“ á vellinum Denaru þar sem hin Heimsþekkti golfari Vijai Singh spilar segir Björn og hlær. Franskur auðjöfur Þau tvö ár sem Björn starfaði hjá fyrirtækinu var rekstur þess end- urskoðaður og honum breytt. „Þegar búið var að gera fyrirtæk- ið lífvænlegt þá var selt ásamt öðrum dótturfyrirtækjum þessa franska fyrirtækis, en það var franskur auðjöfur frá Frönsku eyjunni Nýju Caledóníu sem keypti það. Auðjöfurinn bauð mér vinnu hjá fyrirtækinu áfram en hann setti það skilyrði að fjöl- skylda mín myndi þá flytja með mér til Nýja Sjálands en hluti af hagræðingunni í rekstri fyrirtæk- isins var að sameina starfstöðvar og því var starfstöð okkar í Sydn- ey í Ástralíu lokað. Eftir nokkra umhugsun tókum við ákvörðun um að flytjast búferlum og vor- um komin til Auckland á Nýja Sjálandi síðla árs 1997,“ segir Björn, en fjölskyldan kunni ekki vel við sig í Nýja Sjálandi og eft- ir átta mánaða dvöl í þessum heimshluta fluttust þau heim til Íslands. „Ástralía og Nýja Sjá- land eru náttúrulega hinum meg- in á hnettinum og það er ekki auðvelt að ætla að heimsækja ættingja og vini á Íslandi. Þannig að við tókum ákvörðun um að flytja heim til Íslands,“ segir Björn en á meðan hann bjó ásamt fjölskyldu sinni var honum bent á að starf flugvallarstjóra Keflavíkurflugvallar væri laust til umsóknar. „Ég hringdi til að at- huga stöðuna og sendi síðan inn umsókn. Þann 19. desember 1998 var ég skipaður í embættið og tók við störfum þann 1. janúar 1999,“ segir Björn og honum hefur líkað vel í starfinu frá því hann tók við því. Spennandi verkefni á vellinum „Ég kom inn í starfið á mjög spennandi tíma. Þá var verið að hanna suðurbygginguna og við vorum á leiðinni í landamæra- samstarf ið í tengslum við Schengen samkomulagið. Einnig hafði verið ákveðið að gefa flug- afgreiðslu frjálsa á Keflavíkur- flugvelli í áföngum og það var mjög spennandi verkefni og mjög til bóta fyrir alla þjónustu á vellinum,“ segir Björn. Aðspurð- ur segir hann að það hafi verið töluverð viðbrigði að fara úr einkageiranum yfir í þann opin- bera. „Ef maður líkir opinbera kerfinu við æðakerfi þá er það mun þrengra í þeim geira heldur en einkageiranum. Ósjálfrátt er opinberi geirinn einnig þyngri í vöfum.“ Umfangsmikið starf Starf Björns sem flugvallarstjóra er viðamikið og starfsemi undir hans stjórn nær um allt flugvall- arsvæðið. „Flugvallarsvæðið, fyrir utan flugstöðvarbygging- una, er allt undir stjórn Flug- málastjórnar á Keflavíkurflug- velli og öll stjórnsýsla sem lýtur að flugsækinni starfsemi er í höndum Flugmálastjórnar,“ segir Björn en í samvinnu við Varnar- liðið rekur Flugmálastjórn flug- völlinn. „Varnarliðið kostar snjó- mokstur, lýsingu á flugbrautum, viðhaldi á þeim og sér um slökkviliðið. Á móti sjáum við um snjómokstur á flugþjónustu- svæðinu og á flugvélastæðum í JÓLABLAÐ VÍKURFRÉTTA 2003 VÍKURFRÉTTIR Á NETINU I www.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!52 G le ð il e g a h á tí ð ! VÍÐFÖRULL í lofti og á legi Snemma beygðist krókurinn...verðandi flugvallarstjóri á leið í sumarfrí. Ljósmynd: Knútur Höiriis Ekki amalegt útsýni úr íbúð Björns í Ástralíu. Jolablad VF 2003 HEIMA 17.12.2003 13:14 Page 52

x

Víkurfréttir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.