Víkurfréttir


Víkurfréttir - 06.01.2005, Blaðsíða 6

Víkurfréttir - 06.01.2005, Blaðsíða 6
6 VÍKURFRÉTTIR Á NETINU I www.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA! Ekki hef ur enn ver ið gengið frá afnámi sjálf-virkrar niðurgreiðslu vegna dag vist un ar barna í heimahúsum Reykjanesbæ, en áætlað var að spara um 4 millj- ónir með tekjutengingu. Bæjaryf irvöld tilkynntu rétt fyrir áramót að greiðslur myndu hætta þegar þann 1. janúar, en eftir hörð mótmæli foreldra og dagmæðra hefur gildistöku verið frestað um tvo mánuði, eða til 1. mars. Sagði Árni Sigfússon, bæjarstjóri, í samtali við Víkur- fréttir að ákveðið hefði verið að nýta tímann fram í mars til að fara vandlega yfir málin. „Við munum meta tillögur félags- þjónustunnar, viðmið þeirra og skipulag. Við munum taka við athugasemdum enda er eðlilegt að hlýða á rök í þessu máli.” Samkvæt upprunalegu tillög- unni verða foreldrar að greiða fullt gjald til dagmæðra nema einstæðir foreldrar með laun undir 100.000 kr. á mánuði eða par með undir 200.000 sam- anlagt sem geta sótt um niður- greiðslu á grundvelli tekna. Eins og áður sagði er gert ráð fyrir að spara um 4 milljónir króna á árs grund velli með þessum aðgerðum. Útgjöldin fari úr 10 milljónum niður í 6 milljónir. Ákvörðunin olli miklum kurr meðal foreldra og dagmæðra í bænum og var boðað til fundar með bæjarstjóra þann 29. desem- ber sl. Fjölmennt var við skrif- stofur Reykjanesbæjar þar sem foreldrar og dagmæður lýstu óá- nægju sinni. Þá sendu samtök dagmæðra í Reykjanesbæ skrifleg mótmæli til bæjarstjórnar og félagsmál- stjóra. Þar lýsa þær yfir furðu með framkvæmd ákvörðunar en dagmæðrum var gert að tilkynna foreldrum um þessa ákvörðun sem átti að koma til framkvæmda nú um áramót. „Fengum engin svör” Guðný Sigríður Jónsdóttir, for- maður Samtaka dagmæðra í Reykjanesbæ, segir frestun gild- istökunnar ekki breyta miklu. „Það breytir engu fyrir for- eldra að mínu mati. Þau verða kannski mánuði lengur en þau sem ætla að hætta munu hætta.” Guðný segir þetta fyrirkomulag eiga eftir að hafa mikil áhrif á stétt dagmæðra fyrir utan þá skerðingu sem foreldrar verða fyrir. „Það verða margar dag- mæður sem missa sín börn og maður er ekki í þessari vinnu fyrir þrjú börn eða tvö börn. Þú getur alveg eins hætt og farið að vinna við eitthvað annað.” Þá var Guðný ekki allskostar sátt við svörin sem fundargestir fengu hjá bæjarstjóra. „Mér fannst hann í raun ekki gefa okkur nein svör nema það að málið yrði skoðað á fundi bæj- arstjórnar. Við fengum engin svör nema þau að hálf tíma fyrir þennan fund fengum við þær fréttir að þetta skyldi ger- ast fyrsta mars en ekki fyrsta janúar.” Hún sagði að lokum að þrátt fyrir að einhver hluti foreldra muni fá niðurgreiðslu sé það einungis lítill hluti þeirra. „Ég vona bara að yfirvöld taki það til greina að foreldrar eru ekki sáttir og breyti þessu.” Spurning um forgangsröðun Hjördís Árnadóttir, félagsmála- stjóri Reykjanesbæjar, segist skilja gremju foreldra og dag- mæðra en nauðsynlegt hafi verið að hagræða í rekstri bæjarins. Hún hafi átt von á viðbrögðum, en þetta væri spurning um for- gangsröðun. Með þessu væri verið að mæta þeim sem hafa minna á milli handanna. „Maður skilur alltaf að allar að- gerðir sem hvort sem það hefur áhrif á fólk fjárhagslega eða per- sónulega snerta við fólki og alar breytingar hafa tilhneigingu til að setja fólk úr jafnvægi.” Hjördís sagði aðgerðirnar vera hluta af niðurskurði sem snerti öll svið reksturs hjá Reykja- nesbæ. Yfirvöld reyni á hverju ári að hagræða og athuga hvað má skoða betur. Eins og áður hefur komið fram var bæjar- sjóður Reykjanesbæjar rekinn með halla sem nam hundruðum milljóna. „Ég tel sjálf að þetta hafi verið skynsamlegasta leiðin sem hægt var að fara miðað við það sem við stóðum frammi fyrir,” segir Hjördís. „Við urðum að finna leiðir til að hagræða, en með þessu er verið að mæta þeim sem minna hafa og félagsþjón- ustan hlýtur að ganga út á. Við erum þokkalega sátt við þessar aðgerðir, en skiljum vel að þetta snerti pyngjuna hjá fólki.” Undir nýja fyrikomulag inu hækka niðurgreiðslur til hinna tekjulægstu um 45% úr 11 þúsund krónum í 16 þúsund krónur á mánuði. Foreldrar með 100-150 þúsund krónur á mánuði fá 18% hækkun á nið- urgreiðslum, þ.e. 13 þúsund krónur á mánuði í stað 11 þús- und króna áður og foreldrar með tekjur undir 200 þúsund krónum á mánuði fá sömu nið- urgreiðslu og áður þ.e. 11 þús- und kr. á mánuði. Til samanburðar niðurgreiðir Reykjavíkurborg dagvistunar- gjöld í heimahúsum um 15.300 ef gert er ráð fyrir heils dags um- önnun. Kurr meðal foreldra vegna sparnaðar Reykjanesbæjar Árni Sigfússon svaraði fyrir aðgerðum bæjaryfirvalda, en viðstöddum var ansi heitt í hamsi. Til orða skipta kom á fundi bæj ar stjór ar Reykjanesbæjar á þriðju- dag. Þar deildu fulltrúar meiri- hluta og minnihluta um afnám sjálf virkr ar nið ur greiðslu vegna dag vist un ar barna í heimahúsum, en þær aðgerðir kölluðu fram hörð viðbrögð bæjarbúa. Talsmenn minnihlutans sögðu aðgerðirnar vera beina skatt- lagningu á þann hóp sem verst kæmi út úr tekjutengingunni, enda aukast útgjöld þeirra all- verulega. Þá gerði Guðbrandur Einarsson, Samfylkingu, einnig athugasemd við nýja fyrirkomu- lagið þar sem þarf að sækja sér- staklega um styrk í stað þess að hann sé afgreiddur sjálfkrafa. Honum hugnist ekki að búa í samfélagi þar sem slíkt „ölmusu- kerfi” sé álitið sjálfsagt. Árni Sigfússon, bæjarstjóri, vís- aði gagnrýni til föðurhúsanna og sagði takmarkið með nýju reglunum að rétta hlut þeirra minna hafa. Fulltrúar minnihlutans gerðu einnig athugasemd við það að meirihlutinn hafi ekki notað heimild til að hækka útsvar á bæjarbúa í stað þess að leggja þessar íþyngjandi álögur á af- markaðan hóp. Deilt um afnám niðurgreiðslu 8 Reykjanesbær hættir sjálfvirkum niðurgreiðslum til dagforeldra:

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.