Víkurfréttir


Víkurfréttir - 06.01.2005, Blaðsíða 18

Víkurfréttir - 06.01.2005, Blaðsíða 18
18 VÍKURFRÉTTIR Á NETINU I www.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA! Síðastliðin 10 ár hefur Nýja Bíó í Keflavík verið rek ið af Dav íð Smára Jónatanssyni en um áramótin tók Ingiber Ólafsson við rekstr- inum. Undir handleiðslu Dav- íðs hefur aðsókn að Nýja Bíó aukist mikið og hafa verið gerðar miklar breytingar á kvik- myndasölum. „Þetta byrjaði mjög rólega. Það var bara einn salur og svalirnar voru eins og margir muna eftir þeim. Það voru sýningar 3 til 4 kvöld í viku og það þýddi ekkert að hafa sýningar þegar Hemmi Gunn var með sinn þátt í sjón- varpinu á miðvikudagskvöldum - það kom enginn,” segir Davíð Smári og brosir. Árið 1998 var tekin ákvörðun um að fara í miklar breytingar á bíóinu. „Það var öllu rústað og salnum var mikið breytt. Frá þeim breytingum hefur uppgangurinn verið mikill - aukningin fyrstu tvö árin var um 300%. Í kjölfarið var tekin ákvörðun um að taka Bergás í gegn og bæta þar við sal,” segir Davíð en fyrsta myndin sem hann sýndi í Nýja Bói fyrir 10 árum var I love trouble með Juliu Roberts og Nick Nolte. „Ég hef verið mjög ánægður og bara liðið mjög vel hér í bíóinu. „Núna vorum við að slá smiðs- höggið á endurnýjunina á bíó- inu. Fyrir jólin skiptum við um sæti í Sal 1 hjá okkur og er bíóið orðið eitt það besta að mínu mati.” Davíð er mikill áhugamaður um kvikmyndir en hvað gerir góða kvikmynd að hans mati? Fyrst og fremst gott handrit. Það er mjög pirrandi að horfa á tæknilega góða mynd með slakan söguþráð - það fer illa með annars góða vinnu. Hvernig er að setja sýningar- vélina í gang þegar um lélegar myndir er að ræða? Það skiptir mjög litlu fyrir mig. Þegar ég er í vinnunni horfir ég mjög lítið út í sal nema ef mér langar að sjá viðkomandi mynd. Mér finnst skipta mestu máli að fólkið sem kemur í bíó hafi gaman af myndinni, eins og við vitum er smekkur fólks mjög misjafn. Hvaða mynd hef ur feng ið mesta aðsókn í bíóinu? Ég held að að sókn ar mesta myndin sé Harry Potter og leyni- klefinn. Englar Alheimsins kom mjög vel út af þeim íslensku og teiknimyndirnar hafa verið mjög sterkar. Varstu með einhverja fasta kúnna? Það er mikið af fólki sem kemur reglulega. Ákveðinn hópur fer á ákveðnar myndir. Maður veit að þegar maður tekur listrænar myndir þá koma kunnugleg andlit og þegar maður tekur spennumynd inn þá sér maður manneskjur sem koma einungis á slíkar myndir. Eftirminnilegt atvik á meðan á sýningu stóð? Við vorum með sýningu fyrir Fjölbrautaskóla Suðurnesja og í lokaatriði myndarinnar var bygging sem var að brenna. Á þeirri stundu rann myndin út af plattanum og filmubútur- inn brann. Þegar filman var að brenna á skjánum þá hélt fólk að þetta væri partur af mynd- inni. Við snöruðum mynd- inni af stað aftur en þetta var nokkuð skondið atvik. Síðan hugsa ég oft til litlu stelpunnar sem fór að hágráta þegar ég reif bíómiðann hennar sem hún var Bíódagar Davíðs á enda Ingiber Ólafsson tekur við einni filmunni úr hendi Davíðs, en Ingiber hefur tekið við stjórninni í Nýja Bíó. Davíð með popp og kók í nýju sætunum í bíóinu. Hann segir s æ t i n v e r a g ó ð a kveðjugjöf.

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.