Víkurfréttir - 06.01.2005, Blaðsíða 32
32 VÍKURFRÉTTIR Á NETINU I www.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!
Fyrsta barn árs ins leit dagsins ljós á fæðingar-deild Heilbrigðisstofn-
unar Suðurnesja þann 2. jan-
úar. Barnið er stúlka og fædd-
ist hún sjö mínútur yfir tólf á
hádegi.
Foreldrar stúlkunnar eru Ninna
Jóhannesdóttir og Pornanan
Jampaijit og býr fjölskyldan í
Vogum á Vatnsleysuströnd.
Stúlkan var 3580 grömm að
þyngd og 51 sentimetri. Hún lét
aðeins bíða eftir sér því móðirin
var sett þann 31. Desember.
„Fæðingin gekk bara vel,” segir
Ninna og bætir við. „Okkur
hefur bara liðið vel eftir að
við komum heim. Hún hefur
heldur betur látið vita af sér,”
segir Ninna brosandi.
Stúlka úr Vogunum
8 Fyrsta barn ársins á Suðurnesjum:
Móðir og faðir með litlu
stúlkuna sem fæddist þann
2. janúar á fæðingardeild
Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja.
Stúlkan fæddist 7 mínútur yfir
12 á hádegi þann 2. janúar
og er fyrsta barn ársins á
Suðurnesjum.
Leifum hrossanna sem voru brennd eftir að þau sýktust af miltisbrandi í desember hefur verið komið til urðunar í Álfsnesi.
Sandbeði sem var á svæðinu var einnig mokað
í gám og urðaður. Svæðið á Vatnsleysuströnd
þar sem miltisbrandurinn kom upp verður girt
af. Talin er hætta á frekara smiti fyrir grasbíta á
svæðinu.
Gunnar Örn Guðmundsson héraðsdýralæknir
Gullbringu- og Kjósaumdæmis sagði í samtali við
Víkurfréttir að í bígerð væri að rannsaka svæðið
frekar. Sagði hann að gengið hefði verið um
svæðið og leitað að ummerkjum en ekkert fund-
ist. Gunnar sagði aðspurður að ákveðin hætta
sé á að grasbítar á svæðinu geti smitast af miltis-
brandi.
Þrjú hross drápust úr miltisbrandi á bænum Sjón-
arhóli og var fjórða hrossinu lógað í kjölfarið
fyrir tæpum mánuði síðan. Hræ hrossanna voru
brennd og fylgst hefur verið með hrossum af
nágrannabæjum, ásamt nokkrum sauðkindum.
Umferð dýra og manna var takmörkuð á meðan
svæðið var rannsakað
Leifar miltisbrands-
hrossanna urðaðar
1. tölublað • 2
6. árgangur
Fimmtudaguri
nn 6. janúar 2
005