Víkurfréttir - 03.03.2005, Page 14
14 VÍKURFRÉTTIR Á NETINU I www.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!
Grindvískafréttasíðan
U m s j ó n : Þ o r s t e i n n G u n n a r K r i s t j á n s s o n
Ævintýralegt fiskerí hefur verið á línubátunum í Grinda-vík undanfarna daga og hefur hver báturinn af öðrum silast í land drekkhlaðinn. Víkingur GK123 er engin und-
antekning þar á og kom til hafnar sl. fimmtudag með fullfermi,
um 5.5 tonn af blönduðum afla, mestmegnis þorsk. Herlegheitin
komu á einungis 16 bala og hafa sumir meira að segja brugðið á
það ráð að fara með styttri bjóð en venjulega til að þurfa ekki að
skilja neitt eftir af línu þegar báturinn fyllist.
Há berg GK land aði á sunnudag 600 tonnum af loðnu til hrogna-
töku hjá Samherja í Grindavík.
Eftir að hrognin höfðu verið
skilin frá loðnunni var hratinu
dælt aftur um borð í annað
loðnuskip sem flutti loðnuna
til bræðslu annars staðar á land-
inu, en bræðslan í Grindavík
er óvirk eftir stórbruna á dög-
unum.
Að sögn Óskars Ævarssonar,
verksmiðjustjóra hjá Samherja
í Grindavík, komu um 30-40
tonn af hrognum úr loðnunni.
Þetta var fyrsti farmurinn sem
kemur til vinnslu hjá hrogna-
vinnslu Samherja í Grindavík á
vertíðinni. Lítið hefur veiðst af
loðnu til hrognatöku.
600 tonnum
af loðnu til
hrognatöku
Þorskmokstur við Grindavík
Mikið magn af óbirtu
efni hjá Víkurfréttum
Sökum plássvandræða í þessu 40 síðna blaði þá bíður enn mikið
af efni birtingar í blaðinu. Efnið er flest hægt að nálgast á vef
Víkurfrétta, www.vf.is. Má þar nefna pistil Kallsins á kassanum
sem varð að víkja, á samt viðtali við Ernu Alfreðsdóttur um
starfsemi í sal Sálarrannsóknarfélags Suðurnesja og m.fl.