Víkurfréttir


Víkurfréttir - 17.12.2015, Blaðsíða 68

Víkurfréttir - 17.12.2015, Blaðsíða 68
68 fimmtudagur 17. desember 2015 • VÍKURFRÉTTIR -jólin mín Þykir vænt um 50 ára gamalt jólaskraut foreldra sinna Jólabíómyndin sem kemur þér í jólaskapið? Miracle on 34th Street er jólamyndin sem kemur mér í jólaskap. Sendir þú jólakort eða hefur Facebook tekið yfir? Ég sendi jólakort. Ertu vanafastur/-föst um jólin, er eitthvað sem þú gerir alltaf um hátíðarnar? Já ég er frekar vanaföst, held í ákveðnar hefðir; rjúpurnar, mömmukökurnar og hyasintuskreyting er algjört möst. Og svo að sjálfsögðu stórfjölskyldu jólaboðið á annan í jólum. Eftirminnilegasta jólagjöf sem þú hefur fengið? Ég held að eftirminnilegasta jóla- gjöfin sem ég man eftir sé lítil vagga með dúkku í sem ég fékk frá mömmu þegar ég var 7 ára. Hvað er í matinn á aðfangadag? Rjúpur í matinn á aðfangadag. Hvenær eru jólin komin fyrir þér? Það er mjög sérstök lykt sem kemur þegar verið er að byrja að steikja rjúpurnar og þá segja allir á heimil- inu: nú eru jólin komin. Áttu þér uppáhalds jólaskraut? Ég á nú svo mikið jólaskraut að ég gæti skreytt þrjú hús en mér þykir voða vænt um eitt lítið jólaskraut sem foreldrar mínir áttu og er örugg- lega orðið 50 ára gamalt Svo finnst mér voða gaman að setja upp jóla- þorpið mitt. Hefur þú verið eða gætir þú hugsað þér að vera erlendis um jólin? Ég bjó í Danmörku í tvö ár og var þar um jólin. Það voru mjög róleg jól og að sjálfsögðu mikill söknuður eftir fjölskyldunni og á annan í jólum var fjölskylduboðið á Skype. Hvernig verð þú jóladegi? Jóladegi er varið í miklum rólegheitum og jafnvel á náttfötunum mest allan daginn við lestur góðrar bókar eða horft á góða mynd eða tónleika þar sem eldri börnin eru hjá sínu tengdafólki þann dag. Svandís Georgsdóttir og fjölskylda borða alltaf rjúpu á aðfangadagskvöld og þegar matarlyktin berst um húsið finnst þeim jólin vera komin. Jólabíómyndin sem kemur þér í skapið? Engin ein sérstök en það er mjög notalegt að eiga kósýkvöld með börnunum og horfa á jólamynd í desember. Við reynum að hafa svona kósýkvöld tvisvar til þrisvar sinnum fyrir aðfangadag. Sendir þú jólakort eða hefur facebook tekið yfir? Í fyrra gafst enginn tími til að græja jólakort því við vorum að undir- búa flutninga til Montreal, sendum þess vegna facebook-jólakort. Það verður sko ekki gert aftur, mér finnst svo gaman að senda og fá jólakort. Ertu vanaföst um jólin, er eitthvað sem þú gerir alltaf um hátíðarnar? Já, ég er mjög vanaföst. Ég mæti í fullt af jólaboðum svona eins og flestir gera og nýt þess að vera með fjölskyldunni. Síðan um jólin 2001 hef ég og þrjár vinkonur mínar úr Íþróttakennaraskólanum og makar verið með jólamatarboð.Það sem er svo frábært við þetta matarboð, fyrir utan hvað það er alltaf gaman hjá okkur, er að þetta er ekkert stress því við hjálpumst að með veitingarnar þannig að þetta lendir ekki allt á hjónunum sem bjóða heim til sín. Eftirminnilegasta jólagjöf sem þú hefur fengið? Það eru tvær gjafir sem standa upp- úr; aðfangadagskvöldið 1997 voru tveir hringar í jólapakkanum frá Ella mínum og þá trúlofuðum við okkur og svo er það KitchenAid hrærivélin sem ég fékk líka frá Ella. Sakna þess einmitt mjög mikið að hafa ekki hrærivélina hjá mér hér í Montreal, elska að nota hana þegar ég baka. Hvað er í matinn á aðfangadag? Hamborgarhryggur og meðlæti. Hvenær eru jólin komin fyrir þér? Fyrir mér byrja jólin þegar ég fer á jólasýningu hjá Fimleikadeild Keflavíkur. Síðastliðin 30 ár hef ég tekið þátt sem iðkandi, þjálfari eða áhorfandi. Ég er svo glöð að ég verð komin til Íslands rétt fyrir jólasýn- inguna þetta árið. Hefur þú verið eða gætir þú hugsað þér að vera erlendis um jólin? Ég hef aldrei verið erlendis yfir jólin og gæti ekki hugsað mér það þrátt fyrir að hafa búið á Flórída í þrjú ár og svo núna búum við í Montreal. Ég vil bara vera með fjöl- skyldunni minni og vinum yfir há- tíðirnar. Áttu þér uppáhalds jólaskraut? Ó já, hvít keramik jólatré sem ég keypti í Minneapolis þegar ég var í vinnuferð með starfsfólki Heiðar- skóla haustið 2005. Hvernig verð þú jóladegi? Ég fer alltaf í fjölmennt jólaboð með stórfjölskyldunni hennar Gunnu ömmu. Þar er spilað spil sem heitir púkk og þar alltaf mikið stuð. Svo er farið í hangikjöt hjá tengdó eða hjá foreldrum mínum. -jólin mín Jólin koma með jólasýningu Fimleikadeildar Keflavíkur Jane Petra Gunnarsdóttir býr í Montreal í Kanada ásamt eiginmanni sínum og þremur börnum. Þau ætla að dvelja á Íslandi yfir jólin, enda getur Jane Petra ekki hugsað sér jólin í útlöndum fjarri fjölskyldu og vinum. Föstudaginn 18. desember verður Skötuhlaðborð unglingaráðs Víðis haldið í Samkomuhúsinu í Garði.  Á boðstólnum verður meðal annars saltfiskur, plokkfiskur, siginn fiskur að ógleymdri skötunni ásamt tilheyrandi meðlæti. Verðinu er stillt í hóf og kostar aðeins kr. 3000 á manninn. Hádegishlaðborðið er opið milli kl. 11:00 og 14:00 og kvöldborðið milli kl. 17:00 – 20:00. SKÖTUHLAÐBORÐ Í GARÐI Skólamatur ehf. | Iðavellir 1 | 230 Reykjanesbær Sími 420 2500 www.skolamatur.is D Y N A M O R EY K JA V IK 2015 Skafmiðaleikur Víkurfrétta og verslana á Suðurnesjum ÞAÐ GETUR FYLGT ÞVÍ MIKIL LUKKA AÐ GERA JÓLAINNKAUPIN Á SUÐURNESJUM
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.