Víkurfréttir - 17.12.2015, Blaðsíða 77
Hvað var það við Afríku sem heillaði þig
svo þú ákvaðst að fara þangað?
„Áfangastaðurinn sjálfur var ekki það sem dró mig útí heim,
heldur var það upplifunin sem ég var að sækjast eftir. Ég
hafði samband við ferðaskrifstofuna Kilroy og fékk minn
eigin ráðgjafa. Ferðaráðgjafinn minn kom með hugmyndir
að áfangastöðum, ævintýraferðum og sjálfboðaliðaverk-
efnum. Á mettíma vorum við komin með tröllvaxna ferð
sem innihélt m.a. tjaldferðalag í Afríku, tvenn sjálfboða-
liðastörf, námskeið, köfunarskóla, ævintýraferð í Ástralíu og
eyjahopp á Fiji eyjum.
Er ekkert erfitt að láta vaða og fara í svona ferðalag?
„Fyrir mér var ekkert svo erfitt að láta vaða í svona ferðalag,
ég vissi að ferðalagið sjálft yrði erfitt en ég var alltaf föst á
mínu á að fara ein útí heim. Tilgangur ferðarinnar var að
skora á sjálfa mig og einmitt rekast á erfiða hluti sem tókst
nú bara svona ljómandi vel, þessi ferð var hvorki átakalaus
né áfallalaus!“.
Teygjustökk við
Vikoríufossa
Þetta er
ekkert
e ð l i -
l e g u r
ferðamáti, af hverju ákvaðstu
að fara til þessara landa og gista
m.a. í tjaldi?
„Það er ekki auðvelt að ferðast ein
á milli landa í Afríku svo ég leitaði
mér að hópferð. Ég féll strax fyrir
tjaldferðalagi á vegum G Adventures
vegna þess hve fjölbreytt sú ferð var.
Það sem stóð uppúr í þessari ferð var
Kande ströndinni við Lake Malawi. Á
Kande fórum við í göngutúr um þorpið,
skoðuðum kirkjuna, spítalann, skólann og
fengum að sjá hvernig þau lifa. Dagurinn
endaði svo með heimalöguðum kvöldmat og
danskennslu í afrískum dansi. Maturinn í þess-
ari ferð var ekki sá besti en það er kanski ekki að
marka þar sem ég er mjög matvönd svo þetta var
mikil áskorun fyrir mig, en það var víst ekkert
annað í boði. Ferðin endaði með miklu adrenalíni
í Livingstone við Viktoríufossa þar sem ég fór meðal annars í
river rafting og teygjustökk.“
Bjargaði mannslífum í Tælandi
Hvað stendur upp úr eftir svona ferðalög?
„Í Eþíópíu komst ég ekki inní landið því að ég var ekki með
áritun, þau hleyptu mér að vísu í gegn eftir um 21 klukku-
stunda bið þegar ég setti upp hvolpaaugun og sýndi þeim
mynd af SOS styrktarbarninu mínu sem ég var að fara heim-
sækja. Ég var án matar, með enga svefnaðstöðu og í mjög
takmörkuðu sambandi við fjölskyldu og vini. Þessi bið og
óvissa var alveg þess virði því ég fékk að heimsækja SOS
þorpið, styrktarbarnið mitt hann Alebes Mammo og SOS
fjölskylduna hans.
Nálægðin við dýrin var svakaleg og þá sérstaklega í tjald-
ferðalaginu. Hádegismatnum var stolið úr höndunum mín-
um af risa fugli, bavíani braust inn í tjaldið mitt og stal af
mér snakki. Ég vaknaði einn morguninn í spreng en ákvað
að halda í mér þegar ég sá nashyrning í um 20 metra fjarlægð
frá tjaldinu.
Skandaalkamp er þorp í Suður Afríku þar sem ég vann sem
sjálboðaliði á leikskóla. Á þessum tíma var að kólna í veðri
svo ég lagði til að safnað yrði fyrir vetrarfötum, það gekk bara
svona rosalega vel, ég ásamt börnunum máluðum og skrif-
uðum á boli og ég seldi í gegnum Facebook. Ég vil nota tæki-
færið og þakka fyrir alveg ómetanlegan stuðning. Öll börnin
fengu vetrarfatnað og fór um helmingur í neyðarsjóð sem er
notaður þegar börnin þurfa að sækja sér læknisaðstoðar.“
„Í Tælandi varð ég ásamt fjórum öðrum vitni af hræðilegu
mótorhjólaslysi. Leigubílstjórinn gerði lítið úr þessu og hálf
glotti en við börðumst fyrir því að hann mundi stöðva bílinn
sem hann gerði. Við vorum fyrst á vettvang, á götunni lá kona
og karl meðvitundarlaus. Við fórum strax í að tékka púls
og öndunarveg og báðum leigubílstjórann um að hringja á
sjúkrabíl. Það kom sér vel að ég er menntaður sjúkraliði og
hef unnið víða í heilbrigðiskerfinu, ég náði að halda ró minni
og tók strax stjórn á vettvangi. Þau voru bæði með veikan
púls og hæga öndun, á tímapunkti átti ég ekki von á að þau
mundu lifa þetta af. Við gerðum allt sem við gátum í þessum
aðstæðum, en á meðan umkringdi fólk okkur og tók myndir.
Eftir nokkrar mínútur rönkuðu þau við sér og okkar verkefni
var að reyna að halda þeim kyrrum þar sem þau voru augljós-
lega illa brotin. Ég sat hjá konunni allan tímann til að ganga
í skugga um að öndunarvegurinn væri opinn og hún myndi
ekki að færa sig til. Það var ekki auðvelt þar sem leigubílstjór-
inn lamdi í mig margsinnis og ýtti mér í burtu en ég barðist
fyrir mínu og neitaði að fara frá konunni þar til sjúkrabíllinn
kæmi. Fólk veltir því kannski fyrir sér afhverju leigubílstjór-
inn hafi verið að lemja mig, jú menningarheimar okkar eru
mismunandi, ef þau hefðu ekki verið tryggð hefði ég líklegast
borið ábyrgð á lækniskostnaði þeirra.
Um fjórum dögum eftir slysið hringdi ég á sjúkrahúsið og
óskaði eftir upplýsingum um þau. Ég fékk þær upplýsingar að
maðurinn hafi verið ílla brotinn á annari löppinni og farið úr
axlarlið en konunni var hinsvegar haldið sofandi í öndunar-
vél, rifbeinsbrotin, hryggbrotin og fótbrotin. Læknirinn á
sjúkrahúsinu þakkaði svo innilega fyrir, hann spurði mig
hvort ég gerði mér grein fyrir því hvað við hefðum gert fyrir
þetta fólk. Annars væru þau sennilega ekki á lífi í dag.“
Finnst þér þú hafa lært mikið af þessari
lífsreynslu og hefur þetta breytt þér?
„Þetta ár hefur verið mjög lærdómsríkt, sjálfstraust mitt
hefur aukist mikið og ég hef fengið nýja innsýn inní lífið. Ég
þurfti svo sannalega að standa á eigin fótum og læra að bjarga
sjálfri mér. Á Balí fór ég í einkameðferð hjá Ósk þerapista og
jógakennara. Þar lærði ég aðferðir til að elska sjálfa mig, auka
sjálfstraust mitt og öðlast meiri lífgæði.“
Ísland er öruggur staður
Í framtíðinni sér Aníta fyrir sér að starfa sem hjúkrunar-
fræðingur og taka þátt í heilbrigðistengdum verkefnum víðs-
vegar um heim. Hún hefur nú þegar tekið fyrsta skrefið í átt
að því markmiði þegar hún hóf fjarnám í hjúkrunarfræði við
háskólann á Akureyri nú s.l. haust.
„Eftir að hafa í rúma fjóra mánuði ferðast um heiminn kom
ég heim en ég fann fljótt að ég var ekki komin með nóg og
ákvað að fara aftur út eftir aðeins fimm vikna stopp á Íslandi.
Ég tók skólabækurnar með mér til Cape Town í Suður-
Afríku, stundandi námið af kappi og aðstoðaði svo á leikskól-
anum sem ég hafði verið að vinna sem sjálfboðaliði nokkrum
mánuðum áður. Tæpum tveimur mánuðum síðar neyddist ég
hreinlega til að koma aftur heim.“
Sennilega hefur þú lært að meta eða horfa öðruvísi á Ísland
eftir af hafa verið á öllum þessum ólíku stöðum?
„Ísland er öruggur staður, samfélagið og þjónustan sem við
búum við er ekki sjálfgefin. Við ættum að líta á það sem for-
réttindi að hafa fæðst hér og fá að búa á þessu landi.“
pósturu eythor@vf.is
Börnin í sjálfboðaliðastarfinu í Cape Town, Suður-Afríku.
Á röltinu með apa á öxlinni á Balí. Eins og ekkert sé sjálfsagðara.
Það þarf að höggva bananatré fyrir filana,
Aníta í sjálfboðaliðastarfinu í Tælandi. Daglegur göngutúr í sjálfboðaliðastarfinu í Tælandi.