Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 01.03.2017, Blaðsíða 22

Læknablaðið - 01.03.2017, Blaðsíða 22
130 LÆKNAblaðið 2017/103 og einkennist kerfið því af valfrjálsu flæði sjúklinga. Tilvísanir til sérgreinalækna hafa ekki verið við lýði á Íslandi frá árinu 198413 og valfrjálst flæði sjúklinga til sérgreinalækna hefur einkennt ís- lenska heilbrigðisþjónustu alla tíð síðan. Komið hefur í ljós í rannsóknum að greiðslufyrirkomulag til heimilislækna hefur áhrif á þjónustu og samvinnu heilbrigðis- stétta.14-15 Fastlaunagreiðslur hafa verið á undanhaldi en eru enn notaðar í Austur Evrópu, Grikklandi, Spáni og Svíþjóð.16 Greß og félagar17 telja að blöndun á höfðatölugreiðslum og greiðslu fyrir hvert viðvik í kerfi tilvísana feli í sér gott aðgengi, betri stýringu og stuðli að samfellu í þjónustu. Innbyggður neikvæður hvati í fastlaunakerfi var talinn koma niður á aðgengi og samhæfingu þjónustunnar. Í könnun18 meðal heimilislækna í 15 Evrópuríkjum kom í ljós að launafyrirkomulag og krafa um tilvísun höfðu áhrif á vinnulag heimilislækna. Þar sem heimilislæknar eru sjálfstætt starfandi mælist þátttaka þeirra meiri í lækningastarfsemi og samræmd samlagsskráning allra á heilsugæslustöð eða á heimilis- lækni með tilvísunarskyldu er talin geta komið í veg fyrir ómark- viss ferðalög sjúklinga milli ólíkra sérgreinalækna.19 Í löndum (Bretlandi, Hollandi, Danmörku og Noregi) sem hafa langa reynslu af aðskilnaði milli fyrstu og annarrar gráðu heil- brigðisþjónustu (Fyrsta stigs heilbrigðisþjónusta: forvarnarstarf og fyrsta greining á sjúkdómum, meðhöndlun á algengum heilsu- vanda. Annars stigs: greining og meðferð á flóknari og erfiðari sjúkdómum) er skarpari munur milli heimilislækna og annarra sérfræðinga. Í fyrrnefndum löndum er fagleg staða heimilislækn- inga styrkari og ásókn er í sérfræðimenntun í faginu.20 Rannsóknir sýna jafnframt að jákvætt samband er á milli góðrar heilsugæslu og almenns heilbrigðis, auk þess að auka jöfnuð og lækka kostnað við þjónustuna.7,9 Heimilislæknar á Norðurlöndunum sem vinna fulla vinnu hafa að jafnaði 1200-1500 sjúklinga í samlagi. Skortur á heimil- islæknum á Íslandi er langvinnt vandamál og samanburðurinn við Noreg sérlega óhagstæður. Afleiðing heimilislæknaskorts á Íslandi er mikil ásókn í vaktþjónustu heimilislækna og bráðamót- tökur sjúkrahúsa. Auk þess sem mikið streymi sjúklinga er beint til sjálfstætt starfandi sérgreinalækna. Samkvæmt Solberg og fé- lögum21 eru íslenskir læknar ekki eins ánægðir í starfi og kollegar þeirra í Noregi og er ástæðan fyrst og fremst talin launamunur og of fá tækifæri til að beita sérþekkingu sinni.21 Vísbendingar eru jafnframt um að læknar í einkarekstri séu ánægðari í starfi en aðrir íslenskir læknar.21 Í annarri rannsókn14 voru skoðaðar allar rannsóknir sem birtust á Vesturlöndum árin 1993-1998 er fjölluðu um ólík launagreiðslukerfi heimilislækna og áhrif þeirra á kostn- að og gæði þjónustunnar. Þar var komist að þeirri niðurstöðu að stjórnvöld geti notað ólík rekstrarform í heimilislækningum til að ná fram ákveðnum markmiðum í heilsueflingu, meðferðarheldni og til að breyta áherslum í kaupum á heilbrigðisþjónustu í takt við þarfir á hverjum tíma. Drógu rannsakendur14 þá ályktun að hagstætt væri að nota ólík greiðslukerfi í mismunandi samsetn- ingum til að ná fram sértækum markmiðum. Þeir lögðu jafnframt áherslu á að gæta þyrfti að þeim aðstæðum þegar mikil skörun milli hagsmuna læknis og sjúklings á sér stað. Lítill hluti íslenskra heimilislækna stundar einkarekstur en stjórnvöld hafa frekar stuðlað að því að starfsemin sé undir hatti hins opinbera. Tvær einkareknar heilsugæslustöðvar eru á höf- uðborgarsvæðinu, auk 12 sjálfstætt starfandi heimilislækna. Þá hefur þróun síðustu ára verið í þá átt að sjúklingar eru skráðir á heilsugæslustöð í stað ákveðinna lækna sem er öndvert við norska fastlæknakerfið þar sem ábyrgð fylgir ávallt nafngreindum heim- ilislækni. Eftir mikinn undirbúning var norska fastlæknakerfinu komið á í Noregi árið 2001. Skipulagið grundvallast á einkarekstri. Norsk- um heimilislæknum var heimilt að hafa allt að 2500 skjólstæðinga á skrá hjá sér þótt flestir séu með 1200-1500.16 Sjúklingarnir geta hindrunarlaust skipt um heimilislækni tvisvar á ári gegn vægu gjaldi. Í flestum tilfellum starfa þrír til fimm læknar saman. Skil- greint heilbrigðisumdæmi er ábyrgt fyrir þjónustunni. Einum degi vinnuvikunnar er iðulega ráðstafað til læknastarfa við hjúkr- unarheimili eða ungbarnavernd, sem rekin er sem sérstök eining af sveitarfélögunum (á Íslandi er ungbarnavernd hins vegar starf- rækt á heilsugæslustöðvum). Þrjátíu prósent af heildarinnkomu eru föst laun er taka mið af stærð sjúkrasamlags en 70% eru greiðsl- ur fyrir viðvik eða veitta þjónustu.22 Hlutverk heimilislækna sem hliðvarða í kerfinu er regla í Noregi og þetta skipulag hefur raunar sótt í sig veðrið í vestrænni heilbrigðisþjónustu.23 Stýrikerfi í heil- brigðisþjónustu eiga sér víða langa sögu og voru sett á laggirnar til að veita viðeigandi þjónustu, minnka kostnað og auka jafnræði þjónustuþega.24 Hafa ber í huga að með tímanum hefur heilbrigð- isþjónusta á Vesturlöndum ekki aðeins orðið umfangsmeiri held- ur einnig til muna flóknari en áður var vegna fleiri möguleika við meðhöndlun sjúkdóma. Viðhafðar hafa verið nokkrar leiðir til að greiða heimilislæknum laun (sjá töflu I) en aðrir áhrifa- þættir í starfsumhverfi heimilislækna eru ólíkir víða um lönd og margir tengjast ekki launagreiðslum. Sum lönd tengja þannig launagreiðslur heimilislækna við niðurstöður þjónustukannana, kostnaðarvitund læknisins eða breytingar á gæða- og lýðheilsu- vísum hjá sjúklingum. Þekkt er samband lítillar starfsánægju og kulnunar í starfi25 og tengist gæðum þjónustunnar.26 Þótt skráð af- köst lækna séu meiri í afkastahvetjandi kerfi en þar sem föst laun eru við lýði eru tengslin við gæði veittrar þjónustu þó flóknari en svo að þau ráðist einvörðungu af launum.27 Eigindleg rannsókn á samanburði á starfsgrundvelli heim- ilislækna tveggja Norðurlandaþjóða hefur ekki verið gerð áður. Skoðuð var reynsla 16 íslenskra sérfræðinga í heimilislækningum sem unnið hafa bæði í Noregi og á Íslandi og starfsumhverfi borið R A N N S Ó K N Tafla I. Launakerfi heimilislækna. Launafyrirkomulag Lýsing Afkastahvetjandi greiðslur Greiðslur fyrir viðvik, símtöl og hverja komu sjúklings samkvæmt gjaldskrá Föst laun Tímavinna Höfðatölugreiðsla • Greiðslur fylgja sjúklingi • Greiðslur fylgja lækni Árangurstengdar greiðslur • Greitt eftir mælanlegum heilsufarsþáttum sjúklinga • Greiðslur taka mið af kostnaðarvitund og fylgni við klínískar leiðbeiningar • Greiðslur sem taka mið af niðurstöðum þjónustukannanna Blanda tveggja eða fleiri kerfa

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.