Læknablaðið - 01.03.2017, Blaðsíða 32
140 LÆKNAblaðið 2017/103
U M F J Ö L L U N O G G R E I N A R
umgangspesta en eftir að hún fór að finna fyrir þessum einkenn-
um varð hún veik hvað eftir annað. Nú þarf hún að sætta sig við
það að geta ekki komið inn á Landspítalann sem var vinnustaður
hennar um árabil.
Gunnlaugur var ekki einn um að finna fyrir vantrú umhverf-
isins á því að hann væri í raun og veru veikur. Þannig sagði
Kristín frá því að þegar hún var orðin verulega veik og hætti
að geta unnið vegna einkenna hefðu allir hamast við að leita
skýringa annars staðar en í húsnæðinu eða umhverfinu. – Hvað,
geturðu ekki hrist þetta af þér og mætt í vinnu þrátt fyrir einhver
óþægindi? var algengt viðbragð, jafnvel frá öðru heilbrigðisstarfs-
fólki.
Kannski hittir glæran sem Unnur Steina Björnsdóttir ofnæm-
islæknir sýndi naglann á höfuðið en á henni var skopmynd af
lækni sem stóð yfir rúmliggjandi sjúklingi og sagði: Slæmu frétt-
irnar eru þær að þú ert haldinn sjúkdómi sem stafar af myglu.
Góðu fréttirnar eru þær að ég trúi ekki á að mygla geti valdið
sjúkdómum, svo þú ert frískur!
Sumir móttækilegir, aðrir ekki
Helsta ástæðan fyrir þessari vantrú er að sjálfsögðu vanþekking.
Hins vegar auðveldar það ekki baráttuna fyrir skilningi að svo
virðist vera sem það séu bara sumir sem finna fyrir óþægindum
og verða veikir af því að lifa og starfa í raka og myglu. Aðrir virð-
ast þola það. Það liggja ekki margar rannsóknir fyrir, en ætla má
að allt að fjórðungi fólks sé móttækilegur en hinir finni ekki, eða
síður, fyrir vanlíðan við slíkar aðstæður. Þetta er þó misjafnt eftir
löndum og loftslagi og þyrfti að rannsaka betur.
Þeir sem tilheyra móttækilega hópnum eru hins vegar ekki
að ýkja sjúkdómseinkennin sem þeir finna fyrir. Til þess eru
sögurnar sem þeir segja of svakalegar. Á fundi sem haldinn var
um málið hjá verkfræðistofunni Eflu sagði
Baldur Grétarsson verkfræðingur hjá Vega-
gerðinni frá því hvernig hann missti smátt og
smátt kraftinn til þess að geta sinnt störfum
sínum. Hann fór í veikindafrí og náði sér
allvel á strik en um leið og hann mætti aftur
til vinnu fór allt í sama farið. Þetta hafa menn
fundið út víða þótt oft sé töluvert á sig lagt til
að horfast ekki í augu við vandann.
Á Kirkjusandi stendur reisulegt hús sem
er – eða var – höfuðstöðvar Íslandsbanka.
Tveir starfsmenn bankans, Írunn Ketilsdóttir
og Elísabet Helgadóttir, mættu á Læknadaga
og lýstu því sem gerðist þegar áform voru
uppi um að byggja við húsið sem í upphafi var
byggt sem frystihús (þar sem yðar einlægur
lærði að hausa fisk á unglingsárum sínum).
Þegar undirbúningur var hafinn fór að bera á
tíðum krankleika í röðum bankafólks. Af 450
starfsmönnum bankans reyndust 111 manns
– um það bil fjórðungur – vera með einkenni
„sem ekki var hægt að útiloka að tengdust
rakaskemmdum“. Algengustu einkennin voru
frá öndunarfærum en einnig í augum og húð.
Alls var þriðjungur með einkenni frá öðru en
öndunarfærum.
Við rannsókn á húsinu kom í ljós að raki
og mygla voru talsverð í elsta hluta hússins.
Það var þó ekki hár aldur hússins sem var
aðalástæðan heldur hafði húsið verið endur-
nýjað á sjöunda áratug síðustu aldar, þar á
meðal augnstungið eins og sagt er, og í þeim
framkvæmdum átti rakinn upptök sín. Eins
og Írunn sagði voru menn tilbúnir að hefjast
handa við viðbyggingu – komnir með hægri
höndina á skófluna – þegar hætt var við og
ákveðið að flytja starfsemina í nýrisinn turn
í Smáranum í Kópavogi og rannsaka Kirkju-
sand betur.
Þarna fór betur en á horfðist, en í umræð-
um var bent á það að stórfyrirtæki á borð
Frekari upplýsingar um starfið
Um er að ræða 100% stöðu. Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi
sem fjármálaráðherra og Læknafélag Íslands hafa gert.
Starfið veitist frá 1. apríl 2017 eða samkvæmt nánara samkomulagi.
Umsókn skal skilað rafrænt á vef HSU - www.hsu.is undir flipanum
lausar stöður.
Umsókninni þurfa að fylgja staðfestar upplýsingar um menntun og
fyrri störf, ásamt afriti af starfsleyfi.
Umsóknarfrestur er til og með 06.03.2017
Nánari upplýsingar veita
Björn Magnússon - bjorn.magnusson@hsu.is - 432-2000
S. Hjörtur Kristjánsson - hjortur.kristjansson@hsu.is - 432-2500
Deildarlæknir, aðstoðarlæknir
óskast til starfa á
lyflækningadeild Selfossi
Helstu verkefni og ábyrgð
• Hefðbundin deildarvinna ásamt vaktþjónustu.
Hæfniskröfur
• Góð hæfni í mannlegum samskiptum.
• Frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð.
• Áreiðanleiki, jákvæðni og árangursmiðað viðhorf.