Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 01.03.2017, Blaðsíða 12

Læknablaðið - 01.03.2017, Blaðsíða 12
120 LÆKNAblaðið 2017/103 gengust undir bráðaaðgerð voru 65% með bráða gallblöðrubólgu samkvæmt vefjagreiningu (sjá töflu II). Tólf sjúklingar voru með aðrar greiningar og var helmingur þeirra með eðlilega gallblöðru í vefjagreiningu og hinn helmingurinn var með sjaldgæfari grein- ingar. Heildartíðni fylgikvilla var 5,5% en meiriháttar fylgikvillar greindust hjá 9 sjúklingum (2,4%). Fimm sjúklingar (1,3%) voru með gallleka og var gerð enduraðgerð hjá þremur þeirra. Eftirfar- andi er lýsing á sjúklingunum sem fengu gallleka: Sjúklingur eitt fékk kviðverki á fjórða degi eftir aðgerð og fór í röntgenrannsókn á gallvegum og brisgangi með holsjá og fékk stoðnet auk þess sem hann fékk kera gegnum húð. Sjúklingur tvö var með auka gall- ganga í lifrarbeði (ducts of Luschka) og fór hann í enduraðgerð í tvígang þar sem saumað var yfir ganga í lifrarbeði. Á sjúklingi þrjú var gerð erfið aðgerð vegna bólgu og síðan enduraðgerð fjór- um dögum síðar þar sem gallleki reyndist vera frá stúf gallblöðru- gangs. Tölvusneiðmynd sýndi einnig stein í gallrás og fór hann því í röntgenrannsókn á gallvegum og brisgangi með holsjá þar sem steinn var fjarlægður og hann fékk stoðnet. Sjúklingur fjögur reyndist vera með leka frá aukagangi og undirgekkst enduraðgerð og fékk kera. Hjá sjúklingi fimm var mikil bólga á aðgerðarsvæði og fékk hann kera í aðgerð. Gall kom í kerann í nokkra daga en hætti sjálfkrafa og var keri fjarlægður án vandkvæða. Fjórir sjúklingar (1,1%) fengu djúpa sýkingu. Enginn sjúkling- ur varð fyrir blæðingu eða skaða á megingallrás og enginn lést í kjölfar aðgerðar. Í töflu III er tíðni fylgikvilla borin saman við hérlendar rannsóknir og GallRiks. Í töflu IV eru þeir 9 sjúklingar sem fengu alvarlega fylgikvilla bornir saman við þá sem ekki fengu alvarlega fylgikvilla. Þeir sjúklingar sem höfðu fengið gallblöðrubólgu áður voru marktækt líklegri til að fá alvarlega fylgikvilla, borið saman við þá sem voru eingöngu með sögu um gallsteinaverki (gagnlíkindahlutfall, OR: 6,7 p=0,007). Ekki var marktækur munur á hvort um bráða- eða valaðgerð var að ræða eða hvort gerð hafi verið röntgenmyndataka af gallvegum í aðgerð. urlands einnig Strandasýslu, Vestur-Húnavatnssýslu og Austur- Barðastrandarsýslu. Höfuðborgarsvæðið er skilgreint sem lands- hlutinn frá botni Hvalfjarðar í norðri til Straumsvíkur sunnan Hafnarfjarðar í suðri. Innan höfuðborgarsvæðisins eru Landspít- ali og allar heilsugæslur höfuðborgarsvæðisins. Viðhlítandi leyfi fengust frá Persónuvernd og vísindasiðanefnd. Upplýsingar voru skráðar á tölvutækt form í Filemaker pro 11. Rannsókn er lýsandi og er tölfræðileg úrvinnsla í samræmi við það með útreikningum á hlutföllum og 95% öryggismörkum. Not- að var Fisher’s exact próf til að meta gagnlíkindahlutfall (Odds ratio, OR) þess að fá alvarlega fylgikvilla. Miðað var við mark- tæknimörk p<0,05. Við tölfræðiútreikninga voru Excel og R studio forritin notuð. Niðurstöður Framkvæmdar voru 378 gallblöðrutökur á 8 ára tímabili. Allar aðgerðir voru framkvæmdar af sama skurðlækni. Konur voru í meirihluta (74%) og var meðalaldur sjúklinga 49,6 ár (bil: 15-89 ár). Flestir sjúklingar voru lagðir inn (94%) og var miðgildi legutíma tveir dagar (bil: 1-31 dagur). Fyrstu árin voru flestir sjúklingar frá Vesturlandi en hlutfall sjúklinga af höfuðborgarsvæðinu jókst á tímabilinu og var síðustu árin um 40% (mynd 1). Ábending fyrir aðgerð var í flestum tilfellum gallsteinaverk- ir þar sem gallsteinar voru staðfestir á ómun (281 einstaklingur, 74%). Aðrir, 90 sjúklingar (24%), höfðu sögu um fylgikvilla gall- steina en þar var bráð gallblöðrubólga algengust (79%) en einnig brisbólga af völdum gallsteina (21%). Hjá 7 sjúklingum (2%) var um ódæmigerða gallsteinaverki að ræða. Allir nema einn þeirra voru með gallsteina á ómun en hjá þeim sem var gallsteinalaus sýndi HIDA-skann fram á vanstarfsemi í gallblöðru. Valaðgerðir voru í meirihluta, 329 (87%) en 49 bráðaaðgerðir voru framkvæmd- ar á tímabilinu. Miðgildi aðgerðartíma var 46 mínútur (bil: 17-240 mínútur) en með röntgenmyndatöku af gallvegum í aðgerð var miðgildi aðgerðartíma 63 mínútur (bil: 36-170 mínútur). Tekin var röntgenmynd af gallvegum í aðgerð hjá 93 sjúkling- um (25%). Algengasta ábendingin fyrir þeirri rannsókn var hækk- un á lifrarprófum, saga um brisbólgu og ef líffærafræði var óljós í aðgerð. Af þeim 97 einstaklingum sem voru með sögu um hækk- un á lifrarprófum höfðu 12 manns farið í röntgenrannsókn á gall- vegum og brisgangi með holsjá (Endoscopic Retrograde Cholangio- pancreatography, ERCP) með totuskurði (sphincterotomy) fyrir aðgerð. Af þeim 93 þar sem röntgenmyndataka af gallvegum var framkvæmd í aðgerð, greindust 22 (23%) með steina í gallrás og fóru þeir í kjölfarið í röntgenrannsókn á gallvegum og brisgangi með holsjá. Einn greindist með stein í gallrás eftir aðgerð þar sem ekki hafði verið tekin röntgenmynd af gallvegum í aðgerð (0,3%). Allar aðgerðir nema þrjár voru gerðar gegnum kviðsjá. Tveim- ur aðgerðum var breytt í opna aðgerð vegna bólgu og samvaxta (0,5%) og ein aðgerð var gerð opin frá upphafi vegna sögu um aðgerð á maga (Billroth II) og þekktra steina í gallrás. Tafla I sýn- ir samanburð á tíðni bráðaaðgerða, aðgerðartíma, tíðni röntgen- rannsókna og breytingu yfir í opna aðgerð milli rannsókna hér- lendis13,14 og sænska gagnagrunnsins GallRiks.15 Allar gallblöðrurnar voru sendar í vefjagreiningu. Af valað- gerðum voru flestir með langvinna gallblöðrubólgu. Af þeim sem R A N N S Ó K N Mynd 1. Fjöldi sjúklinga eftir búsetu á rannsóknartímabilinu. 80 70 60 50 40 30 20 10 0 2003 2004 2005 2006 2007 2008 2009 2010 Annað Höfuðborgarsvæðið Vesturland

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.