Læknablaðið - 01.03.2017, Blaðsíða 4
112 LÆKNAblaðið 2017/103
F R Æ Ð I G R E I N A R
3. tölublað, 103. árgangur, 2017
115
Gunnar Ármannsson
Er hægt að bæta
íslenska heilbrigð-
iskerfið?
Þegar kostir og gallar einka-
rekinna lausna eru ræddir
er sjálfsagt að það sé gert
á opinskáan hátt og öllum
steinum velt við. Það gerðu
Hollendingar og tóku sér
góðan tíma. Úr því að þeim
tókst jafn vel upp og raun ber
vitni gæti verið full ástæða
til að skoða vel aðferðafræði
þeirra.
119
Marta Rós Berndsen, Fritz Hendrik Berndsen
Árangur gallblöðrutöku á sjúkrahúsinu Akranesi 2003-2010
Flestar gallblöðrutökur eru gerðar sem valaðgerð hjá sjúklingum með þekkta ein-
kennagefandi gallsteina eða sögu um fylgikvilla gallsteina eins og gallblöðrubólgu
eða brisbólgu. Bráðaaðgerðir eru yfirleitt gerðar hjá sjúklingum með fylgikvilla
gallsteina eða ef einkenni gallsteina eru sérstaklega slæm og viðvarandi. Fyrsta gall-
blöðrutaka í gegnum kviðsjá var framkvæmd á Íslandi 1991 og varð aðgerðin fljótt
algeng hérlendis.
125
Benedikt Friðriksson, Óttar Bergmann, Sigurður Ólafsson
Meðferð lifrarbólgu C með peg-interferóni alfa
og ríbavíríni á Íslandi 2002-2012
Lifrarbólga C er ein algengasta orsök langvinns lifrarsjúkdóms á Vesturlöndum.
Meirihluti þeirra sem smitast fá langvinna lifrarbólgu sem leitt getur til skorpulifrar
og lifrarfrumukrabbameins. Áætlað er að um 170 milljónir manna um allan heim
hafi langvinna lifrarbólgu C en algengi og nýgengi er mjög misjafnt milli heimshluta.
Stærsti áhættuhópurinn fyrir lifrarbólgu C er fólk sem sprautar sig með vímuefnum
en aðrar smitleiðir eru þekktar svo sem blóðgjöf fyrir tíma skimunar.
129
Héðinn Sigurðsson, Sunna Gestsdóttir, Kristján G. Guðmundsson,
Sigríður Halldórsdóttir
Starfsumhverfi heimilislækna á Íslandi og í Noregi:
Reynsla 16 íslenskra lækna
Það er samdóma álit viðmælenda að betur sé búið að heimilislækningum í Noregi
en á Íslandi og heilbrigðisþjónustan skilvirkari. Þeir telja einnig að til að auka áhuga
læknanema og nýliðun í heimilislækningum á Íslandi sé brýnt að bjóða upp á gott
starfsumhverfi. Þegar gerðar eru breytingar á íslenska heilbrigðiskerfinu er mikilvægt
að líta til reynslu nágrannaþjóða þar sem vel hefur tekist til við skipulag þjónustunnar
að mati fagaðila.
117
Guðmundur Þorgeirsson
Rekstrarform
sjúkrahúsa
Þetta er að sjálfsögðu mik-
ilvæg umræða sem mun
standa um ókomin ár en má
ekki yfirskyggja meginspurn-
inguna: Hver er besta lausnin
fyrir sjúklingana?
L E I Ð A R A R
Læknadagar í Hörpu
15. til 19. janúar 2018
Sendið hugmyndir að dagskrá til Margrétar Aðalsteinsdóttur
(margret@lis.is) fyrir 10. maí nk.