Fréttablaðið - 12.01.2018, Blaðsíða 8
Svo bætti ég við
fyrri tillöguna að
ráðherra myndi framkvæma
skoðanakönnun meðal
heilbrigðisstarfsfólks.
Bryndís Haralds-
dóttir, þingkona
Sjálfstæðisflokks-
ins í Suðvestur-
kjördæmi
MANNRÉTTINDI „Maður hefur ansi oft
upplifað að fólk sé einfaldlega búið
að gefa upp alla von. Þá finnur maður
hvað fólk er tilbúið að deyja og vill fá
að fara með reisn,“ segir Súsanna R.
Sæbergsdóttir. Hún kannaði viðhorf
nemenda Háskóla Íslands til annars
vegar dánaraðstoðar og hins vegar
til aðstoðar við sjálfsvíg. Hún mun
ljúka námi í félagsráðgjöf í vor, en
hefur einnig starfað sem sjúkraliði á
sjúkrahúsi.
Niðurstöðurnar sýndu að tæp 77
prósent eru annaðhvort mjög eða
frekar jákvæð til dánaraðstoðar.
Aðeins voru um fimm prósent frek-
ar eða mjög neikvæð. Þátttakendur
voru einnig spurðir hvort þeir vildu
eiga kost á því að óska eftir slíkri
aðstoð læknis ef kæmi upp sú staða
að þeir greindust með ólæknandi
sjúkdóm og upplifðu miklar þjáning-
ar. Tæp 93 prósent þátttakenda vilja
eiga kost á því, í stað þess að þjást og
deyja af völdum sjúkdómsins.
Ekki var um jafn mikinn stuðning
að ræða þegar spurt var um aðstoð
við sjálfsvíg, en tæp 45 prósent voru
mjög eða frekar jákvæð. Sama hvort
um var að ræða dánaraðstoð eða að-
stoð við sjálfsvíg voru flestir sammála
um að slíkt væri siðferðislega rétt ef
sjúklingurinn glímir við ólæknandi
sjúkdóm, sem erfitt er að meðhöndla
og væri líklegur til að draga fólk til
dauða. Þátttakendum fannst mikil-
vægt að sjúklingurinn óskaði sjálfur
eftir aðstoðinni og að hann gæti
sjálfur innbyrt lyfin.
Súsanna vissi af einum Íslendingi
sem hefur fengið slíka aðstoð og af
fleirum sem myndu eða hefðu viljað
það. „Fólk á sem sagt ekki rétt á að
fara í dánar- eða sjálfsvígsaðstoð, en
fólk getur óskað eftir þessari aðstoð.
Ef fólk fær til dæmis grænt ljós í Sviss
og getur sýnt fram á stöðu sína með
læknaskýrslum frá læknum hér á
Íslandi, þá er ekkert sem bannar
það. Þú átt samt engan rétt á að fara í
dánaraðstoð, en þú getur óskað eftir
því. Það eru ströng viðmið sem þarf
að uppfylla,“ segir Súsanna.
Lögð var fram þingsályktunartil-
laga á Alþingi í mars árið 2017 sem
verður lögð fram aftur í ár. „Tillagan
gengur út á að fela heilbrigðisráð-
herra að gera könnun á því hvernig
þessum málum er háttað í löndum í
kringum okkur. Annars vegar hvort
þetta hafi verið leyft, og ef svo er,
hver reynslan hafi verið af því og hins
vegar hvort einhver umræða sé um
það í þessum löndum. Svo bætti ég
við fyrri tillöguna að ráðherra myndi
framkvæma skoðanakönnun meðal
heilbrigðisstarfsfólks. Ég geri ráð fyrir
að það verði flutningsmenn úr öllum
eða nánast öllum flokkum,“ segir
Bryndís Haraldsdóttir, þingkona
Sjálfstæðisflokksins í Suðvestur-
kjördæmi og fyrsti flutningsmaður
tillögunnar. lovisaa@frettabladid.is
Langflestir styðja dánaraðstoð
Súsanna R. Sæbergsdóttir kannaði viðhorf nemenda HÍ til líknardráps og að-
stoðar til sjálfsvígs í meistararitgerð sinni í félagsráðgjöf. fRéttablaðið/Stefán
Ný íslensk rannsókn
sýnir að langflestir
vilja geta óskað
eftir dánaraðstoð fengju
þeir ólæknandi eða
illvígan sjúkdóm. Slík
aðstoð er ekki lögleg á
Íslandi, en tillaga verður
lögð fram á þingi um
dánaraðstoð í ár.
sAMfÉlAg Vísindavefur Háskóla
Íslands birti árið 2017 alls 334 svör
á vef sínum. Heildarfjöldi gesta
árið 2017 var samkvæmt talningu
Modernus 738.093 og hafði gestum
fjölgað um sjö prósent frá árinu
2016, eða rétt tæp 50.000. Sama er
að segja um bæði innlit og flettingar
árið 2017. Innlit jukust um rétt rúm-
lega 245.000 og flettingar um rúm-
lega 263.000.
Birt eru vinsælustu svör hvers
mánaðar síðasta árs. Í janúar var til
dæmis vinsælast svar Iðunnar Garð-
arsdóttur, lögfræðings og aðstoðar-
konu heilbrigðisráðherra, um hvort
bannað sé að ljúga á Alþingi.
Önnur vinsæl svör fjölluðu um
hitakrem við bólgum í febrúar, í
maí hvort kindur hafi orðið skógum
landsins að bana, í júní af hverju
bjór hafi verið bannaður á Íslandi
en ekki annað áfengi og í nóvem-
ber af hverju fremsti hluti typpisins
heitir kóngur. Listann er að finna á
www.visindavefur.is. – la
Flestir vildu vita
hvort megi ljúga
iðunn
Garðarsdóttir
334
svör voru birt á Vísindavef
Háskóla Íslands á árinu 2017
HEKLA · Laugavegi 170-174 · Reykjavík · Sími 590 5000 · hekla.is
Höldur Akureyri · Bílasala Selfoss · Bílás Akranesi · HEKLA Reykjanesbæ www.skoda.is
MINNI EYÐSLA, MEIRA
PLÁSS, MEST GAMAN
ŠKODA OCTAVIA G-Tec. FULLVAXINN FJÖLSKYLDUBÍLL SEM SPARAR ÞÉR KRÓNURNAR.
ŠKODA OCTAVIA frá:
3.350.000 kr.
Octavia G-Tec er einn mest seldi bíll á Íslandi, enda bæði sparneytinn og góður í endursölu. Hann er mjög rúmgóður og gengur
bæði fyrir bensíni og metani sem lækkar eldsneytiskostnaðinn til muna. Komdu í reynsluakstur og kynnstu Octaviunni betur.
1 2 . j A N ú A R 2 0 1 8 f Ö s T U D A g U R8 f R É T T I R ∙ f R É T T A B l A ð I ð
1
2
-0
1
-2
0
1
8
0
4
:2
8
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
0
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
0
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
E
B
9
-5
2
6
0
1
E
B
9
-5
1
2
4
1
E
B
9
-4
F
E
8
1
E
B
9
-4
E
A
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
7
B
F
B
0
5
6
s
_
1
1
_
1
_
2
0
1
8
C
M
Y
K