Fréttablaðið - 12.01.2018, Side 18

Fréttablaðið - 12.01.2018, Side 18
Yndisleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, Ágústína Berg Þorsteinsdóttir (Gússý ) Sólvangsvegi 3, Hafnarfirði, lést þann 30. desember á Hjúkrunarheimilinu Sólvangi. Útför hennar fer fram frá Fríkirkjunni í Hafnarfirði mánudaginn 15. janúar kl. 15.00. Heiðdís Sigursteinsdóttir Vilhjálmur Þórðarson Hafdís Sigursteinsdóttir Jón Tryggvi Kristjánsson ömmubörn og langömmubörn. Móðir okkar, Sigríður Theodóra Sæmundsdóttir húsfreyja í Skarði, Landsveit, sem lést 6. janúar sl. verður jarðsungin frá Skarðskirkju laugardaginn 13. janúar klukkan 14. Þeim sem vilja minnast hennar er bent á Minningarsjóð Skarðskirkjugarðs (0308-13-700275 kt. 700704-3190). Fyrir hönd fjölskyldunnar, Kristinn Guðnason Helga Fjóla Guðnadóttir Okkar ástkæri, Einar Tjörvi Elíasson verkfræðingur, Kópavogstúni 5, Kópavogi, lést þann 9. janúar sl. á Landspítalanum í Fossvogi. Útförin fer fram frá Fossvogskirkju hinn 15. janúar 2018, kl. 13. Blóm og kransar eru vinsamlegast afþökkuð en þeim sem vilja minnast hans er bent á líknarstofnanir. Inger Johanne Elíasson Ingólfur Tjörvi Einarsson Jennifer Eleanor Einarsson Þórr Tjörvi Einarsson Arna Elísabet Karlsdóttir Rán J. Einarsdóttir Henry John Robert Henry Halldór Tjörvi Einarsson Amalía Ragna Þorgrímsdóttir barnabörn og langafabörn. Páll Theodórsson eðlisfræðingur, Bræðratungu 25, Kópavogi, lést á Landspítalanum í Fossvogi þann 8. janúar. Útför hans verður gerð frá Fossvogskirkju miðvikudaginn 17. janúar kl. 15.00. Svandís Skúladóttir Flóki Pálsson Sigríður Benný Björnsdóttir Sigrún Pálsdóttir Skúli Pálsson Bera Pálsdóttir Gunnar Gunnarsson Flóvenz barnabörn og barnabarnabörn. Ástkær eiginmaður minn, Björgvin Reynir Björnsson húsgagnasmiður, Sóleyjarima 9, Reykjavík, lést á líknardeild Landspítalans í Kópavogi 8. janúar. Útför hans fer fram frá Grafarvogskirkju mánudaginn 15. janúar kl. 13.00. Arndís Sigþrúður Halldórsdóttir Sigrún Elfa Reynisdóttir Ingólfur Guðnason Halldór Már Reynisson María Aletta Margeirsdóttir Hulda Rún Reynisdóttir Sverrir Halldórsson barnabörn og barnabarnabörn. Um helgina hefjast Dagar ljóðsins í Kópavogi. Þar er ýmislegt á boðstólum eins og opinn hljóðnemi, Nýlókórinn, listsýning og þeim lýkur svo með hápunktinum sem er afhending Ljóð- stafs Jóns úr Vör, en hann verður afhentur í Salnum á sunnudaginn 21. janúar. Fyrsti viðburður Daga ljóðsins verður á morgun, laugardag, klukkan 13, en það er ljóða- smiðja „í léttum dúr“ – þar sem Aðal- steinn Ásberg Sigurðsson, rithöfundur og tónlistarmaður, mun leiða börn á aldr- inum 8 til 12 ára um undraheima ljóðsins. Segðu mér Aðalsteinn, hvað verður brallað þarna í smiðjunni? „Ja, það er nú erfitt að svara því, þetta er svona tilraun. Kópavogsbær fékk mig inn til að halda smiðju og svo veit maður ekkert hvað út úr þessu kemur – í fyrsta lagi veit maður ekkert hvað kemur inn af krökkum í þetta. Allavega, það sem ég ætla að gera er að útskýra fyrir þeim aðeins hvað er ljóð, hvernig maður hugsar ljóð og hvaða aðferðum er beitt þegar ljóð eru samin.“ Þú ert sem sagt ekkert að fara inn í þetta með einhverja tilbúna kennslu- skrá? „Nei, alls ekki. Það er erfitt að vera með svoleiðis – maður veit ekki hvernig hópurinn er fyrirfram. En ég er með ýmislegt í verkfærakistunni má segja, og svo beitir maður því eftir því hvernig hópurinn er.“ Þá einhverja leiki og æfingar og annað? „Já, það er svolítið þannig, og aðferðir til að nota í svona hópi.“ Það hlýtur að vera skemmtilegt að fá að kenna ungu fólki um ljóðið? „Ungt fólk er rosalega opið og það er alltaf gaman að vinna með því þess vegna. Stundum lærir kennarinn mest af því að vera með námskeið, það er líka spennandi – maður er svona hluti af því, þetta er ákveðið samvinnuverkefni. Maður kemur alltaf reynslunni ríkari úr svona og þess vegna er maður líka til í að gera svona hluti, það kennir manni alltaf eitthvað og er þroskandi fyrir mann sjálfan. Bæjarfélagið á sannarlega lof skilið fyrir að hafa sinnt þessu með Ljóðstafn- um og líka þessum dögum núna, mér finnst þetta alveg frábært. Kópavogsbær fær sérstakt prik fyrir það.“ stefanthor@frettabladid.is Ætlar að útskýra eðli ljóðsins fyrir krökkum Dagar ljóðsins hefjast í Kópavogi um helgina og standa alveg fram til sunnudags í næstu viku þegar hápunktur þessara daga fer fram en það er afhending Ljóðstafs Jóns úr Vör. Á morgun ríður Aðalsteinn Ásberg á vaðið með léttri ljóðasmiðju fyrir börnin. 1830 Síðasta aftaka á Íslandi: Friðrik Sigurðsson og Agnes Magnúsdóttir, sem höfðu myrt Natan Ketilsson og Pétur Jónsson, voru hálshöggvin. 1940 Seinni heimsstyrjöld: Rússar varpa sprengjum á borgir í Finnlandi. 1969 Led Zeppelin gefa út fyrstu breiðskífu sína. 1970 Nígeríska borgarastyrjöldin: Bíafra gefst upp fyrir her Nígeríu. 1971 Sjónvarpsþáttaröðin All in the Family hefur göngu sína á CBS. Á Íslandi voru þættirnir sýndir í Kanasjónvarpinu frá 1972. 1976 Síðustu spænsku hermennirnir fara frá Vestur- Sahara. 1979 Átján ára starfsmaður sjúkrahúss í Malmö í Svíþjóð játar að hafa orðið fjölda aldraðra sjúklinga að bana með því að eitra fyrir þeim. 1985 Metfrost verða á Mið-Ítalíu. Fjöldi ólífutrjáa drepst. 1991 Persaflóastríðið: Bandaríska þingið staðfestir lög sem heimila bandaríska hernum að ráðast gegn sveitum Íraka í Kúveit. 1992 Hætt við aðra umferð þingkosninga í Alsír þegar Íslamski frelsisframvörðurinn vinnur fyrri umferðina. 1993 Aðild Íslands að Evrópska efnahagssvæðinu, EES, er samþykkt á Alþingi eftir 100 klukkustunda umræður. 1998 19 Evrópulönd banna klónun á mönnum. 2005 Könnunarfarinu Deep Impact skotið á loft frá Canaveral-höfða. 2007 Bygging tónlistarhússins Hörpu hefst formlega. 2010 Jarðskjálfti leggur mikinn hluta Haítí í rúst. Talið er að um 230.000 manns hafi farist. Íslensk rústabjörgunarsveit var fyrst á vettvang. Merkisatburðir Mohandas Mahatma Gandhi hóf sína hinstu föstu þennan janúardag fyrir 61 ári. Gandhi var helsti trúarleiðtogi og stjórnmála- maður Indverja, kallaður „faðir þjóðarinnar“, en millinafn hans merkir „mikil sál“ á sanskrít. Fæð- ingardagur hans, 2. októ- ber, er hátíðisdagur á Indlandi og kunnur á heims- vísu sem alþjóðlegur dagur án ofbeldis. Gandhi var fyrst og fremst friðarins maður og hvatti til aukinna mannréttinda og frelsis um allan heim. Hann lifði látlausu lífi, borð- aði fábreytt grænmetisfæði og fastaði löngum stundum; til hreinsunar fyrir sjálfan sig og í mótmælaskyni. Hann hóf sína síðustu mótmælaföstu í Delí þegar hann vildi knýja fram frið milli Indverja og Pakistana í kjölfar stríðs milli þjóðanna árið 1947, en honum mislíkaði að stjórnvöld skyldu neita Pakist- önum um sáttagreiðslu og bað þess að greiðslan yrði innt af hendi, því hann óttaðist að órói myndi enn auka á reiði Pakistana gagnvart Indverjum og átök breiddust út. Þá var Gandhi miður sín þegar leiðtogar múslima og hindúa gátu ekki sæst á kröfur hvorir annarra. Gandhi rauf föstuna þegar stjórnvöld afhentu Pakistönum féð og trúarleiðtogar sann- færðu hann um að friður yrði saminn. Gandhi var skotinn til bana á kvöldgöngu í Nýju-Delí 30. janúar 1948, en hinstu orð hans voru „Ó, Guð.“ Banamaður Gandhis taldi hann ábyrgan fyrir að hafa veikt þjóð sína með greiðslunni til Pakistans. Þ ETTA G E R Ð I ST : 1 2 . JA N ÚA R 1 9 4 8 Gandhi fastar í hinsta sinn  Aðalsteinn er með ýmislegt í verkfærakistunni sem getur vakið áhuga krakka á ljóðinu. FréttAblAðið/Vilhelm Ungt fólk er rosalega opið og það er alltaf gaman að vinna með því þess vegna. Stundum lærir kennar- inn mest af því að vera með námskeið. 1 2 . j a n ú a r 2 0 1 8 F Ö S T U D a G U r18 T í m a m ó T ∙ F r É T T a B L a ð i ð tímamót 1 2 -0 1 -2 0 1 8 0 4 :2 8 F B 0 5 6 s _ P 0 3 9 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 3 0 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 1 8 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 2 7 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 E B 9 -3 4 C 0 1 E B 9 -3 3 8 4 1 E B 9 -3 2 4 8 1 E B 9 -3 1 0 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 4 B F B 0 5 6 s _ 1 1 _ 1 _ 2 0 1 8 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.